blaðið - 01.06.2006, Page 8

blaðið - 01.06.2006, Page 8
8IFRÉTTIR FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2006 blaöið Vöruskiptahallinn kemur að landi Vöruskiptahall- inn eykst um 21 milljarð 1 aprílmánuði voru fluttar frá landinu vörur fyrir 17,7 millj- arða króna og til landsins fyrir 27,3 milljarða. Frá þessu greinir Hagstofa íslands. Vöruskiptin voru því óhagstæð um 9,7 millj- arða króna, en á sama tímabili í fyrra voru þau óhagstæð um 5,4 milljarða á föstu gengi. Ef litið er til fyrstu fjögurra mánaða ársins nam vöruskipta- hallinn 41,6 milljörðum króna en á sama tíma í fyrra voru vöruskiptin óhagstæð um 20,6 milljarða á sama gengi. Reuters íraskur lögreglumaður notar málmleitartæki til að athuga hvort sprengjur kunni að vera faldar líkkistum við útför sem fram fór í bæn- um Hilla I gær. Þá voru borin til grafar 25 fórnarlömb í sjálfsmorðsárás sem gerð var í bænum. Heita því að veita upplýsingar um meint fjöldamorð í Irak Sérfræðingar hjálpa til við sakfellingu Bandaríkjaher vinnur að rannsókn á því hvort landgönguliðar hafi tekið rúmlega tuttugu íraska borgara af lífi í nóvember í fyrra. Málið er talið geta orðið alvarlegra og haft enn verri afleiðingar en Abu-Ghraib-hneykslið. mbl.is | Héraðsdómur Reykja- víkur hefur dæmt konu í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að falsa nafn fyrrum sam- býlismanns fyrir yfirdráttar- heimildir, samtals nærri 7 millj- ónir króna. Konan neitaði sök en maðurinn sagði hana hafa játað fölsunina fyrir sér. Fyrir dóminn komu sænskir sérfræðingar sem rannsökuðu undirskriftirnar á skjölunum og báru þeir báðir að niður- stöður þeirra bentu til þess að maðurinn hefði ekki skrifað undir skjölin. Komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að konan hafi vitað að umrædd skjöl voru fölsuð þegar hún framvísaði þeim. Við erum flutt - en bara stutt Viðopnum 2. júní Talsmaður George W. Bush Banda- ríkjaforseta hét því á þriðjudags að birtar yrðu allar upplýsingar sem fram kæmu í tengslum við rannsókn á meintu fjöldamorði á óbreyttum borgurum í írak. Stjórnvöld brugðust með þessu við fullyrðingum um að hermenn úr landgönguliði Bandaríkjanna (e. „Marines”) hefðu myrt 24 óbreytta íraka í bænum Haditha í nóvember- mánuði. Talsmaðurinn sagði Bush forseta áhyggjufullan vegna upp- lýsinga sem fram'hefðu komið um fjöldamorðið en kvað hann vilja að Bandaríkjaher lyki rannsókn máls- ins áður en hann tjáði sig um það. Meira áfall en Abu Ghraib? Forsætisráðherra íraks lýsti því einnig yfir í gær að stjórnvöld þar í landi hygðust rannsaka ásakanir þessar. Ráðherrann, Nouri Maliki, sagði í samtali við Reuters-frétta- stofuna að takmörk væru fyrir því hvað talist gætu „ásættanlegar afsak- anir” þegar um mannfall í röðum óbreyttra borgara ræddi. Bandaríska varnarmálaráðu- neytið vinnur nú að tveimur rann- sóknum tengdum fjöldamorðinu meinta í Haditha. Annars vegar er kannað hvort manndrápin hafi í raun í átt sér stað en hin rann- sóknin beinist að fullyrðingum um að reynt hafi verið að halda þeim leyndum. Samkvæmt fyrstu skýrslum Bandaríkjahers féllu 15 óbreyttir borgarar og átta íraskir uppreisnar- menn í átökum sem blossuðu upp eftir að landgönguliði hafði týnt lifi í sprengjutilræði í Haditha. Banda- ríkjaher segir nú að rannsóknin beinist að dauða 24 manna. Fréttaskýrendur ýmsir halda því fram að komi í ljós að fjöldamorð hafi verið framið í Haditha 19. nóv- ember geti það reynst meira áfall fyrir Bandaríkjamenn en upplýs- ingar um að fangar hafi verið pynt- aðir og niðurlægðir í Abu Ghraib- fangelsinu í Irak. Heita því að ekkert verði dregið undan Tony Snow, nýr talsmaður Banda- ríkjaforseta, sagði ráðamenn í varn- armálaráðuneytinu hafa fullvissað hann um að „öll atriði” rannsókn- arinnar yrðu gerð opinber. „Við munum fá glögga mynd af því sem gerðist,” sagði Snow. Kvað hann Bush forseta ekki hafa fengið vitn- eskju um málið fyrr en í byrjun ársins þegar fréttamaður einn tók að spyrja hann um fjöldamorðið meinta í Haditha. Hefði forsetinn þá fengið embættismenn til að veita sér upplýsingar um málið. Breytt útgáfa íslenskra vegabréfa VAKIN ER ATHYGLI ÁAÐ: Á höfuborgarsvæðinu er aðalumsóknarstaður hjá Sýslumanninum í Kópavogi, Dalvegi 18. Afgreiðslutími frá kl. 09:00 til 15:30. Sækja má um vegabréf hjá öllum sýslu- mannsembættum utan Reykjavíkur og hjá Lögreglustjóranum ÍReykjavík, Borgartúni 7b, óháð búsetu eða lögheimili. Myndataka fyrir vegabréfsumsókn ferfram á umsóknarstað á sama tíma og sótt er um, umsækjanda að kostnaðarlausu. Einnig má koma með eigin myndir frá Ijósmyndara á rafrænu formi. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið frekari upplýsingar fást Á: www.vegabref.is Forsetinn hefði ákveðið að fylgja reglum í þessu efni og því væri það Bandaríkjahers að rannsaka málið og skila um það skýrslu. Sagði Snow að landgönguliðar flotans tækju þátt í rannsókninni. John Murtha, þingmaður Demó- krataflokksins og fyrrum land- gönguliði, segist hafa fengið upplýs- ingar um rás atburða í Haditha frá embættismönnum innan hersins. Murtha telur að óbreyttir borgarar hafi verið myrtir og að reynt að hafa verið, skipulega, að hylma yfir málið. Fréttaritari breska ríkisút- varpsins í Washington segir að upp- lýsingum varðandi Haditha hafi verið lekið í bandariska fjölmiðla og margir Bandaríkjamenn telji ásakanirnar mjög alvarlegar og ef til vill sannar. Bandaríkjaher fullyrti að óbreyttir borgarar hefðu fallið ann- aðhvort í sjálfu sprengjutilræðinu eða í bardaga sem blossaði upp eftir það. Sagt er að þá hafi íröksu uppreisnarmennirnir verið felldir. Vitni að atburðinum hafa hins vegar aðra sögu að segja. Fullyrt er að landgönguliðarnir hafi gjör- samlega tapað sér þegar einn félagi þeirra týndi lífi í sprengjuárásinni. Þessar frásagnir hafa verið birtar í bandarískum fjölmiðlum. „Ég þóttist vera dáin" Safa Younism, tólf ára stúlka sem lifði árásina af segir að bandarískir hermenn hafi barið að dyrum á heimili hennar í Haditha. Þeir hafi skotið föður hennar og varpað handsprengju inn á baðherbergið. „Bandaríkjamennirnir héldu áfram að skjóta. Ég þóttist vera dáin og þeir áttuðu sig ekki á því,” segir hún að því er fram kemur í gögnum sem írösk mannréttindasamtök hafa safnað um málið. Samkvæmt frétt í bandaríska dagblaðinu Wall Street Journal liggja sannanir fyrir um að bandarísku hermennirnir hafi tekið óbreytta borgara, konur og börn þar á meðal, af lífi. Segir í fréttinni að líklegt megi telja að margir landgönguliðar verði dregnir fyrir rétt, sakaðir um morð. Þá sé og trúlegt að fleiri verði gerðir ábyrgir fyrir yfirhylmingunni. Ryan nokkur Briones, landgöngu- liði sem tók þátt í aðgerðunum í Haditha, hefur sagt í viðtali við dagblaðið Los Angeles Times að hann hafi tekið ljósmyndir og hjálpað til við „hreinsunarstarfið” sem m.a. hafi falist í því bera lík út úr húsum. „Þetta voru lítil börn, karlar og konur. Ég mun aldrei losna undan þessari reynslu. Ég finn ennþá blóðlyktina.” Teddy Roosevelt og hinir hörðu reiðmenn hans í spænsk-bandaríska stríðinu 1898. Bandarískir símnot- endur hafa verið að borga fyrir stríðið í 107 ár. Símnotendur Ijúka fjármögn- un á stríði Bandaríkjamenn hafa nú lokið við að fjármagna stríðið við Spánverja sem var háð árið 1898 um yfirráð yfir nýlendum Spánverja í Kyrrahafinu og í Karabíska-hafinu. Eitt síðasta verk Jack Snow, fráfarandi fjár- málaráðherra Bandaríkjanna, var að tilkynna að 107 ára skatt- lagningu á símtöl væri lokið. Til þess að fjármagna stríðið við Spánverja á sínum tíma setti William McKinley, þáver- andi forseti Bandaríkjanna, á skattheimtu á símanotkun. I upphafi var þetta skattur á fríð- indi þar sem að einungis vel stætt fólk átti síma á þessum tíma. Stríðið tók aðeins fjóra mánuði en eins og oft vill verða gleymdu yfirvöld að afnema skattinn. Fram til þessa dags hafa Bandaríkjamenn þurft að greiða 3% skatt af öllum sím- tölum. Skatturinn hefur runnið beint í ríkissjóð og hefur aldrei verið eyrnamerktur ákveðnum verkefnum eins og endurfjár- festingu í símakerfi landsins. Símnotendur geta þó huggað sig við þá tilhugsun að Banda- ríkjamenn sigruðu stríðið og sá sigur er yfirleitt talinn marka upphafið að framgangi banda- ríska heimsveldisins. Exista kaupir VÍS eignar- haldsfélag Exista ehf. hefur eignast 100% hlutafjár í VÍS eignarhaldsfé- lagi hf. Eigendur rúmlega 80% hlutafjárs samþykktu kauptil- boð Exista en fyrir átti félagið tæp 20%. Kaupverðið, 53,2 milljarðar króna verður greitt með nýút- gefnum hlutum í Exista og fá seljendur tæplega 18,5% hluta- fjár í Exista. Heildarverðmæti VÍS er metið í kaupunum á 65,8 milljarða króna. Samkvæmt til- kynningu frá Exista eru þessi kaup Iiður í umbreytingu fé- lagsins en gert er ráð fyrir að félagið verði skráð í Kauphöll íslands í sptember. Þá stendur til að sameina VÍS eignarhaldsfélag og Exista undir nafni þess síðarnefnda. Innan Exista eru Vátrygginga- félag íslands og vátryggingafé- lagið Vörður Islandstrygging en markaðshlutdeild þeirra á ís- lenskum vátryggingamarkaði er um 38%. Exista rekur einnig líftryggingafélagið Lífís, Örygg- ismiðstöð Islands og eignaleigu- fyrirtækið Lýsingu. Finnur Ingólfsson lætur af störfum sem forstjóri VÍS eign- arhaldsfélags en hann verður starfandi stjórnarformaður Vá- tryggingafélags Islands.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.