blaðið

Ulloq

blaðið - 01.06.2006, Qupperneq 14

blaðið - 01.06.2006, Qupperneq 14
blaðið____ Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson. Ritstjóri: Ásgeir Sverrisson. Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. EINANGRUN HAMAS Otti magnast um að valdabarátta hinnar íslömsku Hamas-hreyf- ingar og fylgismanna Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, kunni að kalla frekari hörmungar yfir palestínsku þjóðina. Fylkingar þessar hafa löngum tekist á í Palestínu enda er hugmyndafræðilegur ágrein- ingur þeirra djúpstæður. Frestur sem Abbas hefur gefið fylkingunum til að binda enda á deilur sínar rennur út um næstu helgi. Náist ekki sættir hyggst forsetinn boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um landamæri sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Verði fyrirliggjandi tillaga í því efni samþykkt felur hún í sér óbeina viðurkenningu á tilverurétti Ísraelsríkis. Þann rétt neitar Hamas-hreyfingin að viðurkenna. Á vettvangi palestínskra öryggismála er ástandið vægt til orða tekið eldfimt. Hið sama gildir um stjórnmálasviðið. Ríkisstjórnir Vesturlanda hafa brugðið á það ráð, að freista þess að ein- angra með öllu ríkisstjórn Hamas á alþjóðavettvangi. Viðbrögð þessi eru einkum til komin sökum afstöðu hreyfingarinnar til fsraelsríkis. Rétt- mætt er að bregðast með þessum hætti við yfirlýstri stefnu Hamas-hreyf- ingarinnar en forsendan er sú að ábyrgir aðilar í forustusveitinni nái að sveigja stefnu hinnar nýju stjórnar Palestínu í átt til raunsæis. Gerist það ekki er voðinn vís. Margir ráðamanna Hamas gera sér ljóst að algjör einangrun á alþjóða- vettvangi og skortur á fjárhagslegum stuðningi mun kalla enn frekari hörmungar yfir palestínsku þjóðina. Palestínumenn höfnuðu Fatah-hreyf- ingu Abbas forseta með eftirminnilegum hætti í þingkosningunum í janúar. Verði sú niðurstaða til þess eins að auka á hörmungar þjóðarinnar er líklegt að Palestínumenn hafni hinu lýðræðislega ferli og glati allri trú á slíkum stjórnarháttum. Slíkt gæti haft ólýsanlegar hörmungar í för með sér. Hafa ber í huga að Hamas nýtur mikils stuðnings í ríkjum Araba. Sigur hreyfingarinnar í þingkosningunum og myndun ríkisstjórnar í Palestínu hefur víða vakið vonir um að unnt verði að koma á viðlíka pólitískum um- skiptum. Spilltir og valdasjúkir leiðtogar fjölmargra Arabaríkja njóta hverf- andi alþýðuhylli. Með því að gera Hamas ókleift að stjórna Palestínu er því óbeint unnið gegn pólitískum breytingum í þessum heimshluta. Hamas-hreyfingin er illa þokkuð á Vesturlöndum sökum þeirra hryðju- verka sem liðsmenn hennar hafa staðið fyrir í Israel. Sú afstaða er réttmæt. Algjör einangrun hreyfingarinnar mun á hinn bóginn skila því einu að gera erfitt ástand stórhættulegt. Fái Hamas með engu móti stjórnað Pal- estínu er raunveruleg hætta á að barátta stjórnvalda og Fatah-hreyfingar Abbas forseta leiði til upplausnar og jafnvel borgarastríðs. Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson. Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík. Aðalsími: 510 3700. Símbréf á fréttadeild: 510.3701. Símbréf á auglýsingadeild: 510.3711. Netföng: vbl@vbl.is, frettir@vbl.is, auglysingar@vbl.is. Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins. Dreifing: íslandspóstur. Oriental BBQ-marinerin? meistara flr?entínu komin i verslanir Oriental BBQ-marinering meistara Argentínu steikhúss hefúr notið gríðarlegrar hylli gesta staðarins í 16 ár. Nú er þessi óviðjafnanlegi kryddlögur fáanlegur í verslunum svo að eldklárir grillmeistarar heimilanna geta nýtt sér hann til aukinna vinsselda í sumar. Fullkomnaðu grillsteikina að hœtti Argentínu steikhúss! 14 I ÁLJT FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2006 blaóiö PÚiMMRmn ÖtW&l/M Á TVÆR. íNHfriWtl- SiGl-UFJOR-P 06 BoLONG/tÍVjK EPUNEJWW GbNG SVC HtLVítI 669 MiR vtmm 5m wm Aftur og nýbúnir Eins og rakið var á þessum stað í gær var árangur Samfylkingarinnar í ný- liðnum kosningum ekkert til þess að hrópa húrra yfir. Og hvað mega þá framsóknarmenn segja? En það er fleira, sem máli skiptir en atkvæða- hlutföll og fulltrúafjöldi. Þannig virðist framsóknarmönnum ætla að lukkast bærilega að komast inn i meirihlutasamstarf víða um landið, en Samfylkingin hefur ekki átt góða viku í þeim efnum. Ákafast horfa menn til Reykjavíkur í þeim efnum og vinstrimenn hafa gantast með að Björn Ingi Hrafnsson hafi sagt baráttuna standa milli sín og áttunda manns Sjálfstæðisflokks- ins, en svo hafi á daginn komið, að hann sjálfur hafi reynst áttundi maður þeirra! En þá má eins spyrja hvort það hafi ekki verið vinstri- grænir eða samfylkingarmenn, sem hafi kosið Björn Inga í meirihlutann. Ljóst var að meirihluti yrði trauðla myndaður í Reykjavík án aðkomu íhaldsins og vísasti vegurinn til þess að halda framsóknarmönnum frá stjórnartaumunum hefði þá verið að mynda meirihluta með Sjálfstæðis- flokknum fremur en að bjóða Birni Inga upp í fjögurra flokka dans og eftirláta íhaldinu um leið þann eina kost. Eða hvað? Vinstrigrænir misstu af vagninum af ótta við andstöðu Ögmundar Jón- assonar meðan óbeit Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur á Sjálfstæðis- flokknum kom í veg fyrir að þann kost mætti nefna á nafn í herbúðum Samfylkingarinnar hvað þá meir. Tvær stjörnur Óhætt er að segja að kosningar lið- innar helgar hafi skotið tveimur nýjum stjörnum upp á himinn ís- lenskra stjórnmála. Það voru þau Björn Ingi Hrafnsson og Svandís Svavarsdóttir, sem hvort á sinn hátt eru til alls líkleg og geta hæglega orðið leiðtogar flokka sinna fyrr en margan myndi gruna. Hugmyndaríkidæmið var líka ágætt hjá þeim og sjálfsagt veitir ekki af því hjá Birni Inga, því það mun að líkindum velta nokkuð á honum hvern árangur naflaskoðun Fram- sóknarflokksins í heild ber. Verk- efnið er ekki lítið og mikið í húfi, því staðan kallar á endurfæðingu flokks- ins; nú eða menn gefist einfaldlega upp og kasti rekunum. Andrés Magnússon En auðvitað voru þau tvö ekki einu stjörnurnar. Jónmundur Guðmars- son, hinn ungi og sigursæli bæjar- stjóri á Seltjarnarnesi er ljóslega fram- tíðarmaður í Sjálfstæðisflokknum. Eins verður því vart trúað að Sam- fylkingin kalli Lúðvík Geirsson, bæj- arstjóra í Hafnarfirði ekki til trún- aðarstarfa í fremstu röð á næstunni. Eins gæti sjálfstæðismaðurinn Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, nánast bent á það, sem hann vildi. Eftirskjálftarnir En áhrifin liggja víðar. Stórsigur Lúðvíks í Hafnarfirði valtaði um leið yfir Sjálfstæðisflokkinn þar. Sem hlýtur að vekja Hafnarfjarðar- ráðherrana Árna M. Mathiesen og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur til umhugsunar. Imprað hefur verið á að annað hvort þeirra fari í Suður- kjördæmi, þar sem sumum þykja framboð sjálfstæðismanna vera lítil meðan eftirspurn kjósenda sé gífurleg. Fyrir norðan hafa sjálfstæð- ismenn lfka áhyggjur og leita fram- bærilegra frambjóðenda í dyrum og dyngjum. Þá má ekki gleyma því að tap Sam- fylkingarinnar 1 Reykjavík kann að hafa þau áhrif að öflugir borgarfull- trúar hennar reyni fyrir sér í lands- málunum, eins og nokkuð hefur verið um rætt. Útlitið fremur tvísýnt hjá frjáls- lyndum þrátt fyrir að þeim gengi síður en svo illa í kosningunum. Þingmaðurinn Magnús Þór Haf- steinsson náði raunar kjöri í bæj- arstjórn Akraness, þar sem hann myndaði meirihluta með sjálfstæðis- mönnum, en sumir hafa spurt hvort hann sé ekki aðeins að leita sér að útleið af þingi. Stóra spurningin hjá þeim er hvort Margrét Sverrisdóttir reyni ekki fyrir sér á næsta ári, en hún er sjálfsagt ein vannýttasta at- kvæðaauðlind á íslandi. En hafi mönnum þótt framboðin í sveitarstjórnarkosningunum ein- sleit og baráttan daufleg ættu þeir kannski ekki að vænta of mikillar spennu á næsta ári. Miðjusóknin í landsmálunum er síst minni en sveitarfélögunum. Svo kannski fáum við bara endurtekið efni. En í stærri skömmtum. Höfundur er blaðamaður. Klippt & skorið klipptogskorid@vbl.is Tll tfðlnda bar í fjölmiðlaheimmum f gær að ritstjórum tímaritanna Sáð og heyrt og Vikunnar, sem Fróði gefur út, var sagt upp störfum. Þetta eru þau Bjarni Brynjólfsson, sem verið hefur ritstjóri Séðs og heyrðs frá upphafi, og Elín Albertsdóttir hjá Vikunni. Þetta var kynnt á starfsmanna- fundi hjá Fróða og um leið var tveimur blaða- mönnum sagt upp. Ástæðan ersögð vera slæm afkoma beggja blaðanna á fyrstu mánuðum ársins og á að grípa til rekstararhagræðingar, en blöðin halda áfram að koma út. Stutt er sfðan Kristján Þorvaldsson lét af störfum sem hinn ritstjóri Séðs og heyrðs, en það hefur fengið talsverða samkeppni frá Hér og nú, sem Dagsbrún hefur gefið út á sömu miðum. Nýleg breyting DV í vikublað er svo talið munu enn þrengja að Séð og heyrt. Frjálshyggjumennirnir á Vef-Þjóðvilj- anum (www.andriki.is) hafa aldrei tekið undir kröfur þeirra, sem vilja að Alþingi starfi lengur. Telja þeir enda að aukin framleiðni þar á bænum sé helst til þess fallin að minnka frelsi borgaranna og auka skatta þeirra. í gær gerir Vef-Þjóðviljinn nýsett sumarþing að umræðu- efni og lýstekki nema mátulega á hin veigamiklu málefni, sem þar eru tekin til kostanna. Sérstaka at- hygli vekur hann á fyrirspurn Valdimars Leós Friðrikssonarum fþróttastefnu rfkisins. „Valdimarspyr-öllum aö óvörum - hvortað aukiö fjármagn til íþróttamála eða iþrótta- hreyfingarinnarmuni fylgja framkvæmd stefnunnar, og geta menn giskaö á hvort að Valdimar telur ástæöu til að auka eöa minnka styrki rlkisins til iþróttamála." Einkennileg sending barst lesendum Morgunblaðsinsgegnumlúgunaígær- morgun. Með blaðinu fylgdi aukablað um fullnaðarsigur fslend- inga í þorskastríðunum. Orðræðan í kálfinum er í anda upphafinnarþjóðern- ishyggju, en undarlegri er þó hin mikla umfjöllun, sem Sigurður Einars- son, stjórnarformaður KB- banka, Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis og sjávarútvegssérfræðingar Landsbankans fá, þvf klippara er ekki kunnugt um að þessir sómamenn hafi leikið neitt sérstakt hlutverk f þorskastríðunum. En síðan er ekkert rætt við útgerðarmenn eða sjómenn. Ef til vill er þetta til marks um þá söguskoðun sem stunduð er á tímum „útrásar-víkinga."

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.