blaðið - 01.06.2006, Page 15
blaðið FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2006
SKOÐUN I 15
Garmurinn hann Ketill
Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur
Það hlýtur að vera :
áhyggjuefni í lýð- Hr
ræðisþjóðfélagi að W
Framsóknarflokk- I
urinn skuli bæði ý-1 Æ
í þingkosningum I
og bæjarstjórnar- ™
kosningum vera Jóhanna
leiddur til valda þó Sigurðardóttir
hann býði afhroð
í kosningum. Það
er líka sannarlega fátítt í lýðræðis-
ríkjum að forystumaður í stjórn-
málaflokki með örfá prósent á bak
við sig skuli verða forsætisráðherra.
Það er heldur ekki hollt fyrir lýðræði
og valddreifingu að sömu flokkar og
setið hafa í nærri 12 ár í ríkisstjórn
skuli einnig stjórna höfuðborginni.
En íhaldið hefur góða reynslu af því
að geta beygt og stjórnað framsókn-
armönnum að vild í landsmálum.
Því vildu þeir líka nýta garminn
hann Ketil við stjórn borgarinnar.
Um leið og Villi smellti fingrum var
hækjan því mætt og sagði umsvifa-
laust já án þess að málefnapakkinn
lægi fyrir. Launin voru formennskan
í borgarráði.
Áfram í hækjuhlutverkinu
Það er auðvitað kaldhæðnislegt að
það skuli vera framsóknarmenn
sem leiði Sjálfstæðisflokkinn til
valda í höfuðborginni. Ekki síst í
ljósi þess sem Björn Ingi Hrafnsson
sagði um þann flokk fyrir kosningar,
sem nú virðist gleymt og grafið.
Sannarlega er það líklegt að það geti
orðið flokknum dýrkeypt í komandi
alþingiskosningum, því fjöldi fólks
hefur fengið meira en nóg af undir-
lægjuhætti framsóknar við íhaldið í
hveju málinu á fætur öðru. Það var
m.a. þess vegna sem Framsóknar-
flokkurinn galt afhroð víðast hvar
í sveitastjórnarkosningunum. Fram-
sóknarmenn þurfa heldur ekki að
undra að þeim sé kennt um slæm
kjör og aðbúnað lífeyrisþega og vax-
andi fátækt og misskiptingu í þjóðfé-
laginu. Verkefni þeirra var að verja
velferðarkerfið en ekki að gerast
hækja íhaldsins í að eyðileggja það.
Framsóknarmenn hlustuðu ekki á
skilaboðin frá kjósendum, sem höfn-
uðum þeim víðast hvar um landið í
sveitastjórnarkosningunum. Garm-
urinn hann Ketill hélt bara áfram
uppteknum hætti að leiða íhaldið
allsstaðar til valda og vera áfram í
hækjuhlutverkinu.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar.
www. alth ingi. is/johanna
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
Meirihluta-
flóran er orðin
fjölskrúðug
Þetta eru dagar hinna miklu meiri-
hlutamyndana. Smám saman er
að komast mynd á í hvað stefnir.
Þrátt fyrir tal um annað síðustu
dægrin, þá blasir við að meirihlut-
arnir verða fjölbreyttir að allri
gerð. Þessi flóra verður með öðrum
orðum býsna fjölskrúðug. Það er í
sjálfu sér ánægjulegt og er til vitnis
um kraft og fjölbreytileika stjórn-
málanna. Það mætti ætla að þeir
sem ekki koma auga á þetta séu
glámskyggnir í meira lagi.
Skemmtilegast er auðvitað að
tala um sveitarfélögin þar sem
Sjálfstæðisflokkurinn er í hreinum
meirihluta. Þau eru alls 13 sveitar-
félögin þar sem flokkurinn er í
slíkri stöðu. Og smám saman eru
aðrir meirihlutar að fæðast. Lítum
á nokkur dæmi.
Á ísafirði og í Kópavogi verður
farsælu og reyndu meirihlutasam-
starfi Framsóknar og Sjálfstæð-
isflokksins haldið áfram. Sama
mynstur verður í höfuðborginni.
Nú er verið að reyna meirihluta-
myndun Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar á Akureyri. f Borgar-
byggð verður framhaldið öflugu og
ágætu samstarfi Sjálfstæðisflokks
og Félagshyggjufólks. Á Akranesi
er nýbúið að ljúka meirihluta-
myndun Sjálfstæðisflokks og Frjáls-
lyndra þar sem Gísli S. Einarsson
verður bæjarstjóri.
í Fjarðarbyggð eru það Framsókn-
armenn sem mynda meirihluta
með Samfylkingu og sama er verið
að reyna í Skagafirði. Framsókn,
Sjálfstæðisflokkur og VG reyndu
meirihlutamyndun á Dalvík og
allir nema Sjálfstæðisflokkur
reyndu að berja saman meirihluta
í Árborg. Hvorugt tókst. Athyglis-
vert er að ekki eru mörg dæmi um
klassíska vinstri meirihluta með
margflokka samsetningu. Ætli
sporin hræði ekki þar.
Af þessu öllu má sjá hversu frá-
leitt samsæristal Vinstri Grænna
og Samfylkingar er um meirihluta-
myndanir, út frá þeim meirihluta
sem myndaður var í Reykjavík.
Það sem einkennir meirihluta-
myndanir í sveitarstjórnum nú - og
eflaust líka oft fyrr og síðar er ein-
mitt fjölbreytnin. Samsæriskenn-
ingarsmiðirnir verða því að smíða
dellumakeríið sitt upp á nýtt og
leggja út frá þeirri miklu samsæris-
kenningu, að allir stjórnmálaflokk-
arnir koma að meirihlutamynd-
unum í afskaplega fjölbreyttum
myndum.
EinarK. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra
www. ekg.is
SETTU ÞAÐ SAMAN
Innréttingar í eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Þessi gullfallega innrétting heitir EG HVID DEK0R/900 og er hönnuð og framleidd af snillingunum
í HTH í Danmörku. Ein allra vinsælasta og mest selda eldhúsinrétting frá HTEI Settu þaÖ saman,
enda gott dæmi um smekklega, nútímalega hönnun og vandaða framleiðslu.
Ósamsettu innréttingarnar frá HTH eru léttar á pyngjuna en standast ítrustu kröfur og væntingar.
Ótæmandi möguleikar, gæði og þjónustu í skiptum fyrir - hagstætt verð.
ORMSSON
1
TILAÐVER51A
SMÁRAUND ■ Símar: 530-2906 / 530-2907 / 530-2908
AKUREYRI Furuvöllum 5 • Sími: 461-5003