blaðið

Ulloq

blaðið - 01.06.2006, Qupperneq 20

blaðið - 01.06.2006, Qupperneq 20
+ 20 I SAMSKIPTI FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ2006 blaðið Auðveldar konur Eiga konur að reyna við karlmenn? íslenskar konur eru meðal fárra í heiminum sem eiga oft frumkvæðið að því að reyna við karlmenn. Það er erfitt að segja til um hvað veldur þessari sérstöku áræðni íslenskra kvenna. Kannski bara það að við búum á eyju? Samskipti eyjarskeggja eru oft ólík því sem gerist á meg- inlandinu og hefur svo verið í gegnum tíðina. Það eru ekki margir sem búa á þessari eyju og þegar kemur að samskiptum kynjanna þá hefur það stundum verið frumskógarlögmálið sem gildir. Það er kannski einn árennilegur karl á svæðinu og um að gera fyrir einhleypar konur að stökkva á stegginn áður en einhver önnur nær honum. Því hefur oft verið fleygt að álitlegir piparsveinar séu af skornum skammti á íslandi (þær voru ófáar konurnar sem fóru til Bandaríkjanna i seinni heims- styrjöldinni). Kannski hefur þetta alltaf verið svona? Kannski hefur þetta erfst i gegnum langömmur og ömmur til dætra tuttugustu og fyrstu aldarinnar? Otlendir karlmenn sem hingað koma verða oft forviða yfir þessum hressleika íslenskra kvenna. Þeir hafa aldrei upplifað það áður að áræðnar konur gangi upp að þeim og bjóði jafnvel í glas sem endar svo í náttúrunnar glímutökum á hótelherbergi eða í heimahúsi. Þetta kemur þeim oft skemmtilega á óvart, kannski vegna þess að fljótlega halda þeir aftur til heimalandsins. Flestir karlmenn eru nefninlega aldir upp við það að „auðveldar“ konur séu ekki vænlegir kvenkostir. Þeir verða helst að hafa fyrir því að ná sér í konu. Konan á ekki að láta „glepjast" strax heldur á hún að halda honum frá sér á meðan hann sýnir allskonar kúnstir til að ganga í augun á henni. Bjóða henni út að borða og kaupa blóm. Eftir einhvern tíma lætur svo daman undan, þau kyssast og eftir það er leiðin að alt- arinu greið. Þetta hefur alveg farið framhjá flestum íslenskum konum. Ef þær sjá strák sem er álitlegur þá hika þær oft ekki við að reyna við þá líkt og karlmenn reyna við konur. Senda SMS eða bara ganga upp að þeim á skemmtistað og hefja spjall. En hvernig ganga svo þessi sambönd? Því miður þá virðst það vera svo að þessi öfuga aðferð sé ekki eins heppileg og sú aðferð sem notuð er í mökunarferlum víðast hvar annars- staðar í heiminum. Karlar hérlendis virðast einnig þurfa að hafa svolítið fyrir því að ná í konur til að virða þær til fulls. Kannski er þetta veiði- eðli? Það gæti verið. Allavega hefur mér sýnst á flestum þeim stelpum sem ég þekki að ef þær eiga frum- kvæðið að því að hefja kynni við karlmenn þá endist það sjaldan eins vel og þegar þeir fá að byrja. Byrja og vinna svo leikinn. Vinna og hugsa -Jesss, ég náði henni! Þetta leiðir til þess að þeir halda meira upp á feng- inn sinn. Passa hann betur. Passa að enginn annar nái honum af þeim og þetta gera þeir með því að standa sig sem góðir kærastar. Er þetta andfeminískur áróður? Ég held ekki. Ég held að þetta snúist kannski frekar um hormónastarf- semi, ólíkt eðli og félagslegt uppeldi kynjanna. Auðvitað eru alltaf und- antekningar líka. Það eru eflaust til mörg farsæl sambönd sem hófust á því að konan átti frumkvæðið. Svo eru eflaust líka til sambönd sem byrjuðu þannig að hann reyndi við hana heillengi en fór svo að leiðast fljótlega eftir að hún beit á öngulinn og fór að hugsa um eitthvað annað en að reyna að vera sjarmerandi. En hvað sem þessu líður. Ekki vera of auðveldar stelpur. Þó að þið vitið betur þá vita þeir það ekki og þess vegna er óþarfi að ljóstra þessu upp... Hvað er svona merki- legt við það að vera karlmaður? Það er margt sem kynin eiga sameiginlegt og annað ekki. En hvað er það sem gerir karlmann að karlmanni. Hvað er karlmennska? Að drekka í botn, fara út i gadd á stuttermabol, grilla ber að ofan -Það er ýmisiegt sem aðeins karl- menn virðast hafa áhuga á að gera en konur ekki og það er vel. Því við getum bara ekki verið eins, sama þó við reynum. Enda væri það lítið gaman þegar allt kemur til alls. Alvöru karlmaður... Er með ör á líkamanum Auðvitað væri best ef örið hefði verið eftir árás þar sem þú varðir þig karl- mannlega með því að snúa árásar- manninn niður en ör eftir straujárn er alvegjafngott. -Úff, var þetta ekki ógeðslega vont?! -Nei, nei. Yddar blýant -með veiðimannahníf Frekar karlmannlegt ekki satt? Losar úrgang Það er sérlega karlmannlegur verkn- aður að keyra með rusl, lyfta því og kasta svo í hrúgu af öðru rusli. Hávaði, lœti oggereyðing. Mjöggott. Drekkur í botn Sérstaklega ef þú stendur upp frá borði, skellir þér í jakkann og klárar svo restina af bjórnum í einum sopa. Svo hnykkirðu höfði að dyrunum segir„komum okkur'og strunsar af stað á meðan restin af liðinu reynir að halda í viðþig. Úff... þetta er harka. Á mjóa spýtu 1 skúrnum eða geymslunni, sérstaklega til að hrœra málningu. * Sparkar í bílskúrshurðina Klang-g-g-g-g-g-! -Reyndu þetta Eiður Smári! Eg sparka svo fast að þjófavarnir bílanna fara í gang! Pælir ekkert í því hvað hann er þungur Fita er fyrir feminista. Frábœrt. Meira beikon fyrir mig! Sker steikina ...og segir um leið að hann sé mest / fyrir lœri eða bringur við strákana og -Má bjóða þér fyllingu vina, við stelpurnar. Blikkar Það gerir konur veikar í hnjánum -Erþaggi?! Prófar sleggjur Helst œtti Byko að vera með mátunar- klefa þar sem þú getur fylgst með því hvernig þú tekur þig út með hamar- inn eða hvaða verkfæri sem er. fesss... flottur! Tekur 50.000 kall út úr hrað- banka, rúllar þeim upp og setur teygju utan um bunkann: Ókei, þú ert að fara að borga pípar- anum á eftir en það er samt ein- hver Joe Soprano tilfinning yfir þessu. Sem verður enn betri þegar þú togar seðlana úr rúllunni og réttir pípar- anum hvern á eftir öðrum. Endar svo á því að spyrja - Sáttur? Fær raunverulega alvar- legan sjúkdóm Þetta erfrábært, sér í lagi efþú gerir rosalega lítið úr því „Afhverju gat ég ekki mœtt? Ha? Já, það kom upp smá heilaæxli. Ekkert stórmál." Fer með Blaðið á klósettið Þetta eru skila- boð til annara þýða -Ég er ao fara að létta á mérogþetta verða engin lambaspörð svo égætla að taka mér tíma takk. margret@bladid. net Opnar krukkur fyrir konur Uhmmmm... hún er að rembast með sultukrukkuna. Þú tekur hana föður- lega afhenni ogskrúfarlokið áreynslu- laust af. Krukkur erukarlmannsverk! Segir „vinur“ við aðra karlmenn Þetta hljómar mjög sannfærandi þegar lögreglumaður segir það en jafnvel þó þú segir þetta bara við krakka þá gerir það þig ósjálfrátt að meiri karlmanni. Er þunnur með bólu í andlitinu Þegar stelpur djamma þá verða þær bara svolítið slappar næsta dag en þú hefur líkamlegar sannanir þess að þú hafir verið að skemmta þér og þetta sönnunargagn sprettur út úr andlitinu. Notar rafmagnsverkfæri Helst aðeins öflugri en þú hefur þörf fyrir að nota. Til dæmis er mjög kúl og karlmannlegt að vinna með högg- borá meðan maður reykir sígarettu. afleiðandi að besta bílstjóra Evrópu. Á ekki simtöl sem endast lengur en mínútu Öfugtviðstelpurnar þá koma karlmenn sér beint að efninu. „Hæ. Já tökum pool. Gaukurinn? Sjáumst sjö. Bœ.“ Bakkar í stæði Sleðar afturábak ( hvaða stæðisboru sem er. Getur g Schumacher gert þetta? \ ■ Nei, afþvíþað eru ekki bakk- gírar á bílunum sem hann keyrir, sem gerir ÞIG þar 4

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.