blaðið - 01.06.2006, Síða 24

blaðið - 01.06.2006, Síða 24
24 I FERÐALÖG FIMMTUDAGUR 1. JÚNÍ 2006 blaöiö Að láta drauminn rœtast Ekki láta neitt aftra ykkur. Seljið bílinn, leigið út íbúðina, gefið pottaplönturnar og haldið á vitþess óvœnta. Við veljum okkur mismunandi ferðamáta. Sumir vita ekkert betra en að dorma inn á glæsilegu hótelherbergi í Lundúnum eða París, kíkja í búðir og njóta alls þess sem stórborg hefur upp á að bjóða. Aðrir vilja storma með alla fjölskylduna til Hollands eða Dan- merkur, leigja sumarhús og bruna um sveitirnar á bílaleigubíl. Svo eru það þeir sem gera ferðalagið að Iífsstíl mánuðum saman og leggja upp í heimsreisu með ævintýraþrá í ómældu magni í farteskinu. Flest höfum við líklega oft látið okkur dreyma um að leggja upp í alvöru heimsreisu. Það er óneitanlega heillandi til- hugsun að komast burt úr hversdags- lífinu, pakka helstu nauðsynjum í lítinn bakpoka og leggja af stað á vit ævintýra í framandi löndum. Fæstir ná þó að láta þennan draum verða að veruleika. Það er alltaf eitthvað sem nær að kyrrsetja okkur. Við fáum ekki margra mánaða frí frá vinnu, eigum erfitt með að útvega pössun fyrir köttinn og erum dauðhrædd við framandi skordýr og sjúkdóma. Því ypptum við bara öxlum, jörðum drauminn góða og höldum áfram að sinna daglegu amstri eins og alla aðra daga. Reglulega heyrum við þó af fólki sem lætur ekkert stoppa sig, tekst að losa sig úr viðjum hins borg- aralega lífs og gerir það sem okkur flest langar til. Tommi fer út í heim Þeir eru fjölmargir sem hafa lifað drauminn sinn undanfarna mánuði í gegnum ungan pilt frá Blöndósi, Tómas Inga Ragnarsson, sem hefur þrisvar sinnum lagt upp í langferð yfir heimsins höf og ferðast um Asíu. Tómas hefur sagt ferðasögu sína á slóðinni www.landakonnun.blogs- pot.com. Tómas er grafískur hönn- uður og starfar sem slíkur í Reykja- vík. „Ég kom heim 12. maí úr nokkra vikna ferð um SA-Asíu. Það er dálítið erfitt að koma aftur heim til íslands, sérstaklega þar sem veðrið hefur verið frekar leiðinlegt. Mér er búið að FULLKOMLEGA FERSKT - LENGUR! Te og kaffi notar einungis kaffibaunir frá bestu ræktunar- svæðum heims og ristar þær daglega. Umbúðirnar eru með sérstöum einstreymisventli sem heldur kaffinu fullkomlega fersku - lengur! Njótið vel, við höfum vandað okkursíðan 1984! Verslanir: Kringlunni Smáralind Laugavegi 27 Suðurveri Akureyri Egilsstöðum Sveitasæla í Laos sem leiddur var af leiðsögumanni sem var vel kunnugur svæðinu. Ég held að það hafi verið ágæt leið til að byrja að ferðast um framandi slóðir. Asía töfraði mig upp úr skónum og ég hef farið í tvær langar ferðir þangað síðan.“ Ópíum í næturlest Tómas segir það ekki einfalt mál að útskýra hvað það sé við þennan heimshluta sem hafi náð að heilla hann svo mjög. „Þetta er sambland af ólíkum þáttum. Fyrst og fremst er svæðið gjörólíkt öllu því sem ég þekki frá Isíandi. Menningin, sagan, veðurfarið og landslagið freistar mín mjög og það er frábær hvíld að kynn- ast einhverju framandi og nýju.“ Það er oft ekki tekið út með sæld- inni að ferðast um framandi slóðir. Margur ferðalangurinn kemst í hann krappann. Flest höfum við heyrt sögur af ráðvilltum Vesturlanda- búum sem hafa verið rændir og prett- aðir af innfæddum eða villst af leið svo um munaði. Tómas Ingi hefur þó ekki orðið fyrir neinum teljandi skakkaföllum á ferðum sínum. „Ég hef þó vissulega lent í ýmsu á þessum ferðum mínum. Minnisstæðust er líklega nóttin þegar ég ferðaðist með næturlest til Hanoi í Víetnam. Ég deildi lestarklefa með þremur öðrum ferðalöngum en þeir höfðu brugðið sér frá. A meðan ég var einn i klef- anum kom starfsmaður lestarinnar inn með stóran böggul sem innihélt 20-30 kíló af ópíum sem hann ætlaði að smygla til Hanoi. Mér leist ekki á blikuna og beitti miklum fortölum til þess að telja starfsmanninn á að fara með böggulinn annað. I Víet- nam liggur nefnilega dauðarefsing Bmio/Frim við eiturlyfjasmygli og því hefði verið ákaflega slæmt að láta góma sig með slíkan farangur. Ég lenti aldrei í líkamsárás eða ránum af neinu tagi en eitt sinn munaði litlu að ég lenti í miðjum slagsmálum óðra vatnabuffa- lóa og hefði það hæglega getað orðið minn bani.“ Eðlilega á Tómas erfitt með að gera upp á milli allra þeirra fjölmörgu staða sem hann hefur heimsótt á ferðum sínum enda hefur hann tyllt niður tá á mörgum svæðum sem talin eru meðal þeirra fegurstu í ver- öldinni. „Ég er nýkominn frá Nepal og Himalayafjöllin eru mér mjög ofar- lega í huga. Einnig varð ég mjög heill- aður af N-Víetnam. Fólkið þar tók mér sérlega vel og var í alla staði ynd- islegt. Fólkið sem maður hittir fyrir í þessum löndum er svo stór hluti af þessu öllu saman.“ segir Tómas Ingi. Tómas Ingi Ragnarsson vera svolítið kalt í Reykjavík eftir að hafa vanist asíska hitanum." Tómas hefur lengi haft áhuga á ferðalögum: „Ég er með ferðabakt- eríu á háu stigi. Áhuginn kviknaði fyrir alvöru þegar ég lauk prófi í graf- jskri hönnun frá Listaháskóla Islands fyrir nokkrum árum. Ég fór í fyrstu ferðina árið 2003 en þá keypti ég ferð til Asíu með ástralskri ferðaskrif- stofu og ferðaðist með litlum hóp

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.