blaðið - 09.06.2006, Síða 1

blaðið - 09.06.2006, Síða 1
■ AFPREYING í hlutverka- leik í svefn- herberginu | SÍÐA 37 Frjálst, óháð & ókeypis! Aukablað um mat fylgir Blaðinu i dag |SÍÐUR 17-24 “™= j ~'-aÍͰílÍ.H_Mmeí mexíkóska matnum Ofbeldi gegn öldruðum algengt hér á landi Margt bendir til þess að ofbeldi gagnvart öldruðum sé frekar algengt hérá landi. í óformlegri könnun sem gerð var á síðasta ári og 41 félags- ráðgjafi tók þátt í kom í Ijós að 70% þeirra höfðu orðið varir við ofbeldi gagnvart öldruðum í sínu starfi. Félagsráðgjafi hjá þjónustumið- stöð Laugardals og Háaleitis telur að skoða þurfi þann mögu- leika að koma á fót sérstöku eftirlitskerfi til að sporna gegn ofbeldi af þessu tagi. | SfÐA 12 íéutérs GlNURNAR GERÐAR KLÁRAR I SLAGINN Starfsmaður klæðir gínur í búninga knattspyrnumanna í Berlín f gær. Á borðinu liggur dómarinn og sýnist sem skóþvengur hans sé enn óhnýttur. Mikið var um dýrðir í höfuðborg Þýskalands í gær en þar hefst í dag heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Spennan fer vaxandi fyrir fyrsta leikinn sem blásinn verður á klukkan 16 i dag en þá mæta Þjóðverjar liði Kosta Ríka. Mikill hús- næóisvandi Blóöbanka Boðar stjórnarslit verði þingi framsóknar flýtt Áhrifamaður innan Framsóknarflokksins segir að ekki verði liðið að gengið verði gegn vilja formannsins. Tekist á um tímasetningu flokksþings á miðstjórnarfundinum. Húsnæðismál Blóðbankans eru i þvílíkum ólestri að starfsem- inni verður ekki haldið uppi öllu lengur við núverandi aðstæður. Stofnunin hefur fengið alvarleg- ar athugasemdir frá Vinnueft- irlitinu en þrátt fyrir mikia við- leitni hafa stjórnvöld hundsað kröfur um úrbætur. „Við fáum engin svör," segir Sveinn Guðmundsson, forstöðu- maður Blóðbankans, í samtali við Blaðið. | SÍÐA 2 Leitt er líkum að því að fái Halldór Ásgrímsson ekki sínu fram á mið- stjórnarfundi Framsóknarflokks- ins sem hefst á Hótel Sögu í dag klukkan fjögur, verði ekkert af frek- ara ríkisstjórnarsamstarfi. Blaðið hefur þetta eftir áhrifamanni innan Framsóknarflokksins. Á miðstjórnarfundinum verður helst tekist á um tímasetningu flokksþings Framsóknarflokksins, en Halldór hefur lagt til að það verði haldið í haust. „Það er alveg ljóst að fái Halldór ekki fullan stuðning á þessum mið- stjórnarfundi verður ekkert úr frek- ara ríkisstjórnarsamstarfi. Ef hann kemur ekki út úr þessum fundi með miðstjórnina á bak við sig og það lítur út fyrir að flokkurinn lendi í höndunum á Guðna, Siv og Kristni, þá verður ekkert af frekara sam- starfi á milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokksins,“ segir heimild- armaður Blaðsins. „Þetta er staðan eins og hún blasir við.“ Þessi heimildarmaður heldur því fram að bíði Halldór lægri hlut á miðstjórnarfundinum muni sjálf- stæðismenn slíta ríkisstjórnarsam- starfinu og þá yrði boðað til nýrra kosninga. Halldór Ásgrímsson lýsti því yfir á Þingvöllum á mánudag að flokks- þingið yrði haldið snemma í haust. Guðni Ágústsson hefur hins vegar sagt að hann telji ekki óeðlilegt að flýta þinginu. Undir þetta sjón- armið hafa fleiri þingmenn tekið þ.á.m. Kristinn H. Gunnarsson. Hjálmar Árnason, þingflokks- formaður, sagðist í samtali við Blaðið í gær telja að það væri „inni í myndinni“ að flýta þinginu yrði það til þess að eyða óvissunni um það hver næsti leiðtogi flokksins verði. Hins vegar hafa aðrir áhrifa- menn innan Framsóknarflokksins vertekið fyrir að flýta þinginu. Þingvöllum sagðist Halldór Ás- grímsson ætla að nýta tímann fram að flokksþingi í haust til þess að hvetja flokksmenn til dáða fyrir þingkosningar sem halda á, að öllu óbreyttu, næsta vor. Heimildir Blaðsins herma hins vegar að tímann eigi ekki síst að nýta til þess að finna verðugan eftirmann í formannstólinn sem skákað gæti Guðna Ágústssyni, varaformanni. Því munu samherjar Halldórs leggja á það höfuðáherslu að flokksþinginu verði ekki flýtt. Bush fagnar dauða al-Zarqawi George Bush, forseti Bandaríkj- anna, sagði í gær að dauði hryðju- verkaleiðtogans Abu Musab al-Zarqawi væri mikið áfall fyrir al- Qaeda-samtökin. Kvað forsetinn stjórnvöld í írak nú fá mikilvægt svigrúm til þess að kveða niður uppreisnina í landinu. Bandarískir sérsveitarmenn felldu al-Zarqawi á miðvikudag. Hann hefur stýrt uppreisn íslamista fyrir hönd aí-Qaeda í Irak og er sagður bera einna mesta ábyrgð á þeirri skálm- öld sem hefur verið á milli súnníta og sjíta múslima í landinu. Forsetinn sagði ennfremur að Bandaríkjamenn þyrftu að sýna áframhaldandi þolinmæði gagn- vart ástandinu í írak. Hann sagði hins vegar að fall al-Zarqawi gæfi ástæðu til bjartsýni um að sigur myndi hafast í svokölluðu hryðju- verkastríði. George Bush mun funda með ráðamönnum í írak í næstu viku um hvernig banda- rískar hersveitir geti nýst þeim við að slökkva það ófriðarbál sem logar í landinu. Reuters George Bush Bandaríkjaforseti er bjartsýnn á ástandið Irak

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.