blaðið - 09.06.2006, Qupperneq 2
...••••»1
blaðið^—
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Lést í umferð-
arslysi á Elliða-
vatnsvegi
M a ð u r i n n
sem lést í um-
ferðarslysi á
Elliðavatnsvegi
síðastliðiðþriðju-
dagskvöld hét
Hallgrímur
Páll Guðmunds-
son. Hann var
fæddur árið
1971, ókvæntur
en lætur eftir
sig fjögurra ára gamlan son.
Hallgrímur Páll var starfs-
maður Blaðsins. Við fráfall Hall-
gríms sendir starfsfólk Blaðs-
ins fjölskyldu hans innilegar
samúðarkveðjur.
Hallgrímur Páll
Guðmundsson.
Hafna kröfu
Jóns Ólafssonar
Hæstiréttur hafnaði í gær kröfu
kaupsýslumannsins Jóns Ólafs-
sonar, um að embætti ríkislög-
reglustjóra verði gert að fella
niður rannsókn á hendur Jóni
vegna ætlaðra brota hans á
skattalögum og fleiri lögum og
til vara að ríkislögreglustjóra
væri skylt að víkja sæti við
rannsóknina.
2IFRÉTTIR
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 blaöiö
Bruni í Súðarvogi
Blaöiö/Steinar Hugi
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að verksmiðjuhúsnæði við Súðarvog laust fyrir hádegi i gær, en þar hafði kviknað eldur í
loftræstistokki. Engan sakaði í brunanum en einhverjar reykskemmdir urðu á húsnæðinu þar sem verið er að innrétta vinnustofur fyrir
listamenn.
Sakaður um
fimm milljóna
svik hjá Fróða
Tímaritsútgáfan Fróði sakar
Bjarna Brynjólfsson, fyrrver-
andi ritstjóra Séð og Heyrt, um
að hafa svikið alls fimm millj-
ónir út úr fyrirtækinu. Elín G.
Ragnarsdóttir framkvæmda-
stjóri Fróða sakaði Bjarna um
fjársvik þegar hún meinaði
honum að sækja einkaeigur
sínar á þriðjudaginn síðastlið-
inn eftir að honum hafði verið
vikið úr starfi.
Samkvæmt Bjarna mun hann
vera sakaður um að hafa svikið
verktakalaun upp á tvær millj-
ónir og fréttaskot og greiðslur til
þeirra sem hafa sent inn myndir.
Alls gera þetta fimm milljónir,
samkvæmt Bjarna.
Bjarni hefur vísað ásökunum
framkvæmdastjórans á bug
og hefur hann vísað málinu
til Blaðamannafélags íslands.
Munu viðbrögð Bjarna skýrast
eftir helgi þegar lögfræðingar
hans hafa farið yfir málið.
Húsnæðisvandi Blóðbankans
gríðarlegur en engin svör fást
Yfirlæknir veltir því fyrir sér hvort ófriður á stjórnarheimilinu orsaki seinagang í mál-
efnum Blóðbankans. Forstjóri LSH bindur enn vonir við liðveislu stjórnvalda.
Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir
og forstöðumaður Blóðbankans,
segir að húsnæðismál Blóðbankans
við Barónsstíg séu í miklum ólestri.
„Það læðist að manni sá grunur að
ófriður á stjórnarheimilinu hafi
valdið því að menn hafi ekki sinnt
því starfi að leysa húsnæðisvanda
Blóðbankans. Ef svo er þá er það
mjög alvarlegt mál að slíkt skuli
bitna á jafn viðkvæmri starfsemi og
okkar. Ef svo er ekki þá hljóta heil-
brigðisráðherra og fjármálaráðherra
að vera búnir að leysa sín mál og við
megum eiga von á að fá nýtt hús-
næði mjög bráðlega. Við fáum hins
vegar engin svör þessa stundina,“
segir Sveinn í samtali við Blaðið.
Alvarlegar athugasemdir
Sveinn segir að starfseminni verði
ekki áfram sinnt við núverandi
aðstæður. „Við höfum fengið alvar-
legar athugasemdir frá Vinnueftir-
litinu. Við vitum og þekkjum það
að húsnæðið uppfyllir heldur ekki
skilyrði um brunavarnir og öllum
aðbúnaði starfsfólks og þá sérstak-
lega blóðgjafa er mjög ábótavant. Á
þetta hefur verið bent í vel á annan
áratug. Það eru komnir mjög stífir
Evrópuskilmálar um starfsemi blóð-
banka. Okkur er ætlað að standa við
þá og það er heilbrigðisyfirvalda
að tryggja að sá möguleiki sé fyrir
hendi,“ segir Sveinn.
Ófullnægjandi húsnæði
í Blóðbankanum starfa um 50
manns og fær Blóðbankinn um
20.000 heimsóknir frá blóðgjöfum
á ári hverju. „Húsnæðið er allsendis
ófullnægjandi til að sinna þörfum
starfseminnar. Það hafa verið
gerðar þarfagreiningar og skoðanir
og það er ljóst að Blóðbankinn þarf
á um 1.600 fermetra húsnæði að
halda. Það voru áform um að byggja
við núverandi húsnæði. Stjórn Land-
spítalans hefur staðið við bakið á
okkur og hefur sagt þetta vera for-
gangsmál,“ segir Sveinn. Húsnæði
Blóðbankans við Barónsstíg er um
650 fermetrar.
Að sögn Sveins var svo skyndilega
tekin ákvörðun í byrjun árs um að
falla frá áformum um slíka viðbygg-
ingu og ákveðið var að athuga með
leiguhúsnæði
fyrir Blóðbank-
ann. „Það hafa
verið skoðuð
nokkur hús-
næði til leigu,
meðal annars
ákveðið hús-
næði í nágrenni
Landspítala- há-
skólasjúkrahúss
við Hringbraut
sem var eins og
sérsniðið fyrir þarfir okkar. Fjár-
málaráðherra tók hins vegar þá
ákvörðun um að þetta ætti að fara
í útboð. Það virðist einnig vera fyrir
atbeina fjármálaráðuneytisins að
ekkert hafi gerst í þessum~málum
svo mánuðum skiptir og því eru
málin í þessu öngþveiti.“
1 svari heilbrigðisráðherra við fyr-
irspurn Valdimars L. Friðrikssonar,
þingmanns Samfylkingarinnar, um
málefni Blóðbankans kemur fram
að endurnýjun á húsnæði Blóðbank-
ans hafi verið til skoðunar undan-
farin ár. Þar kemur jafnframt fram
að óskað hafi verið eftir heimild
Sveinn
Guðmundsson
fjármálaráðuneytisins til að auglýsa
eftir húsnæði, en ekkert svar hefur
borist enn.
Bindur enn vonir við yfirvöld
Magnús Pétursson, forstjóri Land-
spítala-háskólasjúkrahúss, segir
að stjórn spítalans sé vel kunnugt
um húsnæðisaðstæður Blóðbank-
í framkróka ur 1 að reyna að leysa
þennan vanda.tUpphaflega átti að
byggja við Bléjðbankann en það
gekk hins vegaí ékki eftir.“
Magnús segir að stjórnin hafi
reynt að fá samþykki fyrir því að
fá á leigu fyrrum húsnæði UVS í
Skátaheimilinu við Snorrabraut.
„Stjórnin hefur einnig samþykkt að
nota hluta af söluandvirði eigna á
þessu ári til að geta gert þetta. Það
liggur hins vegar fyrir að ekki er
hægt að fá húsnæði á leigu án heim-
ildar frá stjórnvöldum og þær heim-
ildir hafa ekki komið. Við bindum
hins vegar enn vonir við það að
yfirvöld verði okkur hliðholl við
að koma þessu máli í höfn,“ segir
Magnús.
Glæsileiki engu líkur
Meik sem aðlagast
þínum húðlit á
fullkominn hátt.
Svo létt að þú
gleymir því sjálf
að þú sért meikuð.
Fæst í Hagkaupum Smáralind og í betri spótekum
Merkiö tryggir gæöin
Helðskírt léttskýjaðL-Jk Skýiaö Alskvlað'm—* I
Algarve 24
Amsterdam 22
Barcelona 22
Berlin 20
Chicago 18
Dublin 21
Frankfurt 23
Glasgow 22
Hamborg 19
Helsinki 14
Kaupmannahöfn 19
London 24
Madrid 32
Mallorka 27
Montreal 14
New York 17
Orlando 23
Osló 24
París 25
Stokkhólmur 16
Vín 18
Þórshöfn 10
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands