blaðið


blaðið - 09.06.2006, Qupperneq 12

blaðið - 09.06.2006, Qupperneq 12
121 DEIGLAN FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 blaðiö ÞorvaldurThoroddsen Ráðstefna um Þorvalds Thoroddsen Vísindafélag Islendinga í samvinnu við fræðslumiðstöð þjóðgarðsins á Þingvöllum stendur fyrir ráð- stefnu um vísindamanninn Þorvald Thoroddsen á morgun. Ráðstefnan verður haldin í fræðslumiðstöð- inni á Þingvöllum og stendur frá klukkan 13.30 til 16.15. Fjölmargir fræðimenn munu stíga í pontu og fjalla um ævi og störf Þorvalds frá hinum ýmsu sjón- arhornum. Þannig mun Sigurður Steinþórsson, prófessor í jarðfræði við Háskóla íslands (HÍ), fjalla um jarðfræðirannsóknir Þorvalds og þá mun Helga Kress, prófessor í bók- menntafræði við HÍ, tala um bréfa- safn hans. Einnig verður sýnt brot úr heimildamynd um Þorvald sem Þorsteinn Helgason, sagnfræðingur, vinnur nú að. Þorvaldur Thoroddsen (1855-1921) var lengi vel ein helsta uppspretta heimsins um flest það sem náttúru íslands varðaði. Hann skrifaði fjöl- margar ritgerðir og bækur um rann- sóknir sínar á íslenskri náttúru og hlaut fyrir það fjölmargar alþjóð- legar viðurkenningar. Ægisborg fagnar 25 ára afmæli Leikskólinn Ægisborg við Ægis- síðu fagnar 25 ára starfsafmæli í dag. I tilefni dagins verður efnt til hátíðar í skólanum og hefst hún klukkan 15. Boðið verður upp á margvísleg skemmtiatriði fyrir gesti og gang- andi. Þar má m.a. nefna harm- onikkuleik, atriði úr leikritinu Hafinu bláa og þá mun verða sett upp sýning á verkum barnanna í leikskólanum. Þá verða grillaðar pylsur og að sjálfsögðu boðið upp á afmælisköku. 'Börn og starfsfólk Ægisborgar bjóða gömlum nemendum, starfs- mönnum og öðrum velunnurum að samfagna í dag. Hátíðinni lýkur klukkan 17. Blokkflautukór Áslandsskóla lék undir á opnunarhátíð Bjartra daga í Hafnarfirði í síðustu viku. Knattspyrna og Hansakaupmenn Mikið verður um dýrðir á lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar í dag en hátíðinni lýkur formlega á morgun. I tilefni af heimsmeist- aramótinu í knattspyrnu sem hefst í Þýskalandi í dag verður sérstök áhersla lögð á knattspyrnumenn- ingu og tengsl Hafnarfjarðar við hinu þýsku Hansakaupmenn. ÞU FÆRÐ HM SÆTIÐ HJÁ OKKUR kr. 19.900,- MATTHEW HÆGINDASTÓLL MEÐ MICROFIBERÁKLÆÐI SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Þýskubíll Lista- og menningarhátíð Hafn- arfjarðar, Bjartir dagar, hófst á fimmtudaginn í síðustu viku en henni lýkur formlega á morgun. I ár var sérstök áhersla lögð á börn, unglinga og fjölmenningu og var m.a. haldin alþjóðleg söngvakeppni um síðustu helgi í tengslum við það þema. I dag og á morgun mun allt snú- ast um knattspyrnu enda hefst heimsmeistaramótið í knattspyrnu í Þýskalandi í dag. Sýnt verður beint frá opnunarleik mótsins á risaskjá í Kaplakrika og hefst sýning klukkan 16. Sérstakur þýskubíll verður á svæðinu til að kynna mótið og fá áhugasamir þar tækifæri til að fræð- ast um allt sem viðkemur þýskri knattspyrnumenningu og jafnvel læra nokkur þýsk orð er snúa að íþróttinni. Knattspyrnumót Á morgun heldur svo veislan áfram en þá verður haldið svokallað Han- samót í knattspyrnu. Þar munu etja kappi krakkar úr 5. flokki FH og Hauka í búningum merktum þýskum borgum. Hefst keppnin klukkan 12. Á sama tíma verða haldnir há- degistónleikar í Hafnaborg undir yfirskriftinni „Uppháhaldslagið hans langafa, Stefán Islandi.“ Fram koma Stefán Helgi Stefánsson, tenór, ásamt Antoníu Hevesí sem leikur undir á píanó. Margt annað verður í boði en há- tíðinni lýkur formlega klukkan 20 með sýningu dansleikhúshópsins Panic Production á verkinu Rauðar liljur í Hafnarfjarðarleikhúsinu. HUSGAGNAVERSLUN OPNUNARTlMI: MÁNUD - FÖSTUD 11:00 -1800 LAUGARDAGA 11:00 -16:00 SUNNUDAGA LOKAÐ SETT HÚSGAGNAVERSLUN • ASKALIND 2A - 201 KÓPAVOGUR - SÍMI534 1400 - VWVW.SETT.IS Ofbeldi gegn öldruðum algengt hér á landi Finna þarfleiðir til að skilgreina og takast á við vandann að mati Sigrúnar Ingvars- dóttur, félagsráðgjafa. Margt bendir til þess að ofbeldi gagnvart öldruðum sé frekar al- gengt hér á landi. Félagsráðgjafi hjáþjónustumiðstöð Laugar- dals og Háaleitis telur að skoða þurfi þann möguleika að koma á fót sérstöku eftirlitskerfi til að sporna gegn ofbeldi af þessu tagi. Alþjóðlegur dagur gegn ofbeldi á öldruðum verður hald- inn í fyrsta skipti þann 15. júní næstkomandi. Ofbeldið meira en mælingar sýna Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og Öldrunarfræðafélag Islands stóðu fyrir sérstöku málþingi í gær um forvarnir gegn ofbeldi á öldruðum. Málþingið var haldið í tilefni af alþjóðlegum degi gegn ofbeldi á öldruðum sem haldinn verður þann 15. júní næstkomandi. Er þetta í fyrsta skipti sem haldið er upp á þennan dag en markmið hans er að vekja umræðu og með- vitund um ofbeldi gegn öldruðum og sporna gegn því. I óformlegri könnun sem gerð var á síðasta ári og 41 félagsráð- gjafi tók þátt i kom í ljós að 70% þeirra höfðu orðið varir við of- beldi gagnvart öldruðum í sínu starfi. Þá sýna erlendar kannanir fram á að um 2 til 10% aldraðra verði fyrir einhvers konar ofbeldi og telja fagaðilar í þeim löndum að rannsóknir sýni aðeins toppinn af ísjakanum. Á vefsíðu velferðarsviðs Reykja- víkurborgar stendur nú yfir könnun þar sem ætlunin er að mæla á óformlegan hátt tíðni ofbeldis gegn öldruðum en fáar mælingar hafa verið gerðar hér á landi. Niðurstöður verða kynntar sérstaklega í næstu viku. Margar birtingarmyndir Sigrún Ingvarsdóttir, félagsráð- gjafi og deildarstjóri hjá Þjónustu- miðstöð Laugardals og Háaleitis, segir margt benda til þess að ofbeldi gagnvart öldruðum sé vandamál hér á landi. Vísar hún til málþings sem Öldrunarfræði- félagið hélt fyrir þremur árum þar sem allir þeir fagaðilar sem tóku til máls þá höfðu orðið varir við einhvers konar ofbeldi. „Á þessari ráðstefnu komu þrjú dæmi frá lög- reglunni þar sem um var að ræða kynferðislegt ofbeldi gagnvart eldri konum. Slíkt er reyndar ekki algengt en sýnir okkur engu að síður að þetta getur komið upp.“ Sigrún segir ofbeldið hafa margar birtingarmyndir og ekki 99...................... Við viljum ekki fara út í ofmikla forræð- ishyggju og taka þannig fram fyrir hendurnar á fólki sem er kannski fullfært um að sjá um sig sjálft. sé alltaf um beint Hkamlegt of- beldi að ræða. Þetta getur verið andlegt ofbeldi, fjárhagsleg mis- notkun eða hrein vanræksla. Vand- inn að sögn Sigrúnar er að skil- greina hvenær ofbeldi á sér stað. .Hvenær verður ofbeldi ofbeldi? Það er vandamál að skilgreina þetta nákvæmlega og því þurfum við að fara varlega þegar skoðaðar eru tölur yfir ofbeldi gagnvart öldruðum. Við viljum ekki fara út í of mikla forræðishyggju og taka þannig fram fyrir hendurnar á fólki sem er kannski fullfært um að sjá um sig sjálft.“ Að sögn Sigrúnar gerir skilgrein- ingarvandinn það að verkum að gerendur átta sig ekki alltaf á því að þeir séu að beita fólk ofbeldi. „Oft er þetta ákveðið samskipta- mynstur milli geranda og þolanda sem erfitt er að brjóta. Ég hef ekki rekið mig á að það sé virkileg ætlun gerenda að beita fólk ofbeldi." Þá segir Sigríður eðlilegt að skoða þörfina á því að hér verði komið upp einhvers konar eftir- litskerfi til að bregðast við ofbeldi. „1 Bandaríkjunum eru til staðar sérstök teymi sem fagaðilar hafa samband við ef þeir verða vitni að eða þá grunar að um ofbeldi sé að ræða. Það þarf að athuga hvort vilji sé fyrir hendi hér á landi að koma á fót svipuðu kerfi."

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.