blaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 17
blaðiö FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006
FJÖLSKYLDAN I 25
Geronimo er aftur
kominn í vandrœði!
Þegar Geronimo Stilton frá Mús-
ítalíu gefur út símaskrá fulla af
villum lendir hann í óhugnanlegri
lífsreynslu sem tekur til silfureyju,
sjóræningjakatta og ferðalags með
loftbelg. Hin ostaspennandi bók
Sjóræningjakettirnir er sú þriðja í
ítalska bókaflokknum um ritstjóra-
músina Geronimo Stilton en áður
eru útkomnar Leyndardómur smar-
agðsaugans og Fluguhristingur
handa greifanum.
Geronimo er ráðsettur ritstjóri
í Músahöfn sem lendir einatt í
ótrúlegum ævintýrum, oftast fyrir
tilstuðlan Teu, systur sinnar, eða
Styrmis frænda síns. Benjamús,
litli frændi, er einnig oft með í för.
Geronimo lauk embættisprófi í
músafræðum og meistaraprófi í nag-
dýrabókmenntum. { rúmlega tutt-
ugu ár hefur hann ritstýrt farsæl-
lega stærsta dagblaði Músahafnar,
fæðingarbæ sínum, Músahafnar-
fréttum. Hann hefur að auki hlotið
Bókmenntaverðlaun músabókasala
fyrir rit sitt Leyndardómurinn um
horfna fjársjóðinn. { frístundum
sínum safnar Geronimo osta-
skorpum frá 18. öld og spilar golf.
Bækurnar um Geronimo eru
gefnar úr hjá Vöku-Helgafelli en
það er Sigríður Halldórsdóttir sem
þýðir þær.
Tmmpólínin halda vinsœldum sínum
Leiktœki ígarðinum gera útiveruna ennþá skemmtilegri
Skemmtileg leiktæki í garðinn gera útiveruna ennþá skemmtilegri.
Þegar vorar færist leikvettvangur
barnanna út úr húsi og þá er
skemmtilegt að hafa eitthvað
fyrir stafni í garðinum. Margt er í
boði þegar kemur að leiktækjum
í garðinn. Sum leiktækin eru
sniðin fyrir yngstu kynslóðina á
meðan allur aldur getur skemmt
sér við önnur tæki. Trampólínin
hófu innreið sína fyrir nokkrum
árum og vinsældir þeirra fara síst
dvínandi.
garð fyrir krakkana.“
Hjá Húsasmiðjunni fengust þær
upplýsingar að körfuboltaspjöid til
að festa á vegg væru mjög vinsæl.
Þá selur timbursala Húsasmiðj-
unnar einnig trérólusett sem sam-
anstendur af kastala, rennibraut
og rólu sem kostar 35.203 krónur.
Minni útfærsla er til af þessu sem
er róla og renni-
braut en
þ a ð
verslunina hafa selt trampólín í
gámavís undanfarin ár og að ekkert
lát sé á vinsældum þeirra. „Svo virð-
ist sem æðið fyrir trampólínunum
færist á milli landshluta en nú er
mikil sala á þeim í Vestmannaeyjum.
{ sumar fáum við einnig barnatjöld
sem tilvalið er að
setja út í
Hjá Europris við Fiskislóð er hægt
að fá eina stærð af trampólínum
sem eru 3,6 metrar að þvermáli en
þessi stærð af kostar 14.900 krónur. {
Einnig er hægt að kaupa öryggisnet
við trampólinið og yfirbreiðslu. Ey-
þór Österby, verslunarstjóri, segir
kostar
31.565 krónur.
Helga Hans-
dóttir, starfs-
maður Húsams-
iðjunnar, segir
þessi tæki henta
vel börnum frá 2-3 ára aldri. „í
Húsasmiðjunni er
einnig hægt að
fá plastsund-
laugar sem
eru 90 cm í
þvermál en
þær kosta 460
krónur. Þá
seljum við
fótboitamark
sem hægt er að
nota fyrir golf eða
hafnarbolta með því
að setja aukahluti
í netið. Þá selur
Húsasmiðjan
lítil fótbolta-
mörk á 1.890
krónur ásamt
minni leik-
föngum eins
og skóflum og
fötum.“
Það ættu því
allir að fá eitthvað við sitt
hæfi í garðinn í sumar en minni
leiktæki eins og körfuboltaspjöld
nýtast einnig í sumarbústaðinn.
hugrun@bladid.ne
Herdís L. Storgaard, sérfræðingur íslysavörnum barna
Hlaupahjól, línuskautar
og hjólabretti
Það er skemmtilegt að leika sér á
hlaupahjólum, línuskautum og
hjólabrettum og ekki síður nauð-
synlegt fyrir börn og unglinga að
finna sér leið til að stunda holla
hreyfingu. En því miður fylgja
slys þessum farartækjum sem
sum hver eru mjög alvarleg. Það er
því mikilvægt að fara að öllu með
gát. Hér fyrir neðan eru að finna
nokkur góð ráð sem geta komið í
veg fyrir slys:
1. Mikilvægt er að velja vand-
aðan búnað sem uppfyllir allar
kröfur sem gerðar eru.
2. Notið alltaf hjálm. Hjálmar
sem má nota eru reiðhjóla-
hjálmar og brettahjálmar.
Notið alltaf hnéhlífar, olnboga-
hlífar og úlnliðshlífar.
3. Mikilvægt er að læra vel á farar-
tækin og fara sér hægt í fyrstu.
4. Haldið farartækjum í góðu
standi. Mikilvægt að fara yfir
slit reglulega en slitinn bún-
aður getur valdið slysum.
5. Mikilvægteraðveljasvæðisem
eru laus við rusl, möl og sand.
6. Farið gætilega i kringum aðra
vegfarendur og munið að
hægja á ykkur þegar þið mætið
öðrum á gangstéttum.
7. Mikilvægt er að vera ekki á um-
ferðargötum, jafnvel þó þær
séu fáfarnar.
Góða skemmtun
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar
Morgunblaðið eftir að ráða fólk á öllum aldri í blaðburð
víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 30.915 kr. á mánuði fyrir
klukkustundar langan hressandi göngutúr.* Til viðbótar kemur
þungaálag og greiðslur fyrir aldreifingar tvisvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 5691440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
’Miöað vió aó 65 eintökum af Morgunblaóinu sé dreift i 30 skipti.