blaðið - 09.06.2006, Síða 22
30 I ÍPRÓTTIR
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 blaöiö
Cisse sárþjáður eftir f ótbrotið.
Govouí
stað Cisse
Sidney Govou, sóknarmaður
Lyon, hefur verið kallaður inn í
franska landsliðið í stað Djibril
Cisse sem fótbrotnaði í vináttu-
landsleik gegn Kína á miðviku-
dag. Cisse var frá vegna svip-
aðra meiðsla nær allt tímabilið
2004-5 en þá fótbrotnaði hann
hins vegar á vinstri fæti, en nú
á þeim hægri. Govou, sem er
26 ára, var einnig kallaður inn
í franska landsliðið fyrir EM
2004 á síðustu stundu en þá
kom hann í stað Ludovic Giuly
sem meiddist.
Thierry Henry, samherji
Cisse hjá franska landsliðinu,
segir að hugur liðsins alls dvelji
hjá Cisse um þessar mundir og
fyrirhugað sé að liðið fari að
heimsækja hann. Cisse dvelur á
sjúkrahúsi í Þýskalandi þar sem
hann þurfti að gangast undir
skurðaðgerð á fætinum. „Ég
veit að hann kemur tvíefldur til
baka þegar hann hefur jafnað
sig af meiðslunum. Við munum
reyna að finna tíma til að fara að
heimsækja hann,“ sagði Henry.
■ HM-leikir dagsins
Þýskaland - Kosta Ríka
Michael Ballack fagnar samherja sínum Miroslav Klose I æfingaleik. Ballack verður fjarri
góðu gamni í dag vegna kálfameiðsla en Klose heldur upp á 28 ára afmæli sitt.
A-Riðill
ki.16
Leikstaður:
Allianz-leikvangurinn í Munchen.
Dómari:
Horacio Elizondo frá Argentínu.
Styrkleikalisti FIFA:
Þýskaland: 19
Kosta Ríka: 26
Veðbankarnir:
Sigur Þýskalands á HM: 7/1
Sigur Kosta Ríka á HM: 500/1
Staðreyndir um leikinn:
• Þjóðverjar verða án fyrirliða
síns, Michael Ballack, en hann
hefur ekki náð að jafna sig af
kálfameiðslum sem hann hlaut í
æfingaleik gegn Kólumbíu fyrir
viku.
• Tim Borowski, leikmaður Werder
Bremen, mun að öllum líkindum
hlaupa í skarð Chelsea-mannsins.
• Paulo Wanchope, fyrrum leik-
maður Derby, er stærsta stjarnan
í landsliði Kosta Ríka og stjórnar
sóknarleik þeirra.
Þýskaland og Kosta Ríka
hafa aldrei áður mæst í
knattspyrnuleik.
Það telst vart lengur til tíðinda
að stórþjóðir tapi fyrir veikari
andstæðingum í opnunarleikjum
HM. Árið 1990 töpuðu þáverandi
heimsmeistarar Argentínu fyrir
Kamerún r-o og árið 2002 töp-
uðu þáverandi heimsmeistarar
Frakka fyrir Senegal 1-0.
Þýskaland hefur tekið þátt í 15
heimsmeistaramótum en aðeins
einu sinni tapað fyrsta leik sínum.
Það var árið 1982 þegar liðið tap-
aði óvænt fyrir Alsír 2-1.
Jurgen Klinsmann, þjálfari Þýska-
lands, er annar tveggja þjálfara
sem hafa unnið HM sem leik-
maður. Klinsmann var í sigurliði
Vestur-Þýskalands árið 1990 en Ri-
cardo Lavolpe, þjálfari Mexíkó, var
í sigurliði Argentínu á HM1978.
Þýski sóknarmaðurinn Miroslav
Klose heldur upp á 28 ára afmæli
sitt í dag. Hann var markahæstur
í silfurliði Þýskalands á HM 2002.
Þýskaland er gestgjafi HM í annað
sinn en þar var mótið einnig
haldið árið 1974. Það var í eitt af
þremur skiptum sem Þýskaland
sigraði mótið, þá eftir úrslitaleik
gegn Hollandi.
Skeytin inn
Alþjóða knattspyrnusam-
bandið, FIFA, hyggst
beita sér fyrir því að í
efstu deild á Englandi og víðar
verði aðeins 18 lið
í stað 20. Á fundi
FIFA í gær var
lögð fram tillaga
að knattspyrnu-
sambönd þjóða
yrðu skylduð til að
fækka í efstu deild fyrir þarnæsta
tímabil. „Okkur hefur verið gefið
vald til að vinna að þessu og við
munum gera það. Með þessu fyr-
irkomulagi fáum við fjóra daga
aukalega til landsleikja," sagði
Sepp Blatter, forseti FIFA.
Dan Johnson, talsmaður
ensku úrvalsdeildarinnar, segir
þessa hugmynd FIFA fráleita.
„Okkur líst ekkert á þetta. Það
er enginn að fara að segja okkur
hvernig við eigum að reka deild-
ina nema stjórnarformenn
eirra 20 liða sem í henni leika.
g veit að þeir eru ekki hrifnir
af þessu,“ sagði Johnson.
Wigel Martyn, mark-
vörður Everton, hefur
neyðst til að leggja
skóna á hilluna vegna þrálátra
bakmeiðsla. Martyn, sem er
39 ára, fór í sneiðmyndatöku
á miðvikudag og leiddi hún í
ljós að bein í bakinu hafði ekki
gróið sem skyldi. Martyn gekk
til liðs við Everton frá Leeds
2003 og átti upphaflega að verða
varamarkvörður fyrir Richard
Wright en hefur verið að miklu
leyti í byrjunarliðinu.
Farðu alla leið '■
lífsins með Heilbrigðum
—
■ HM-leikir dagsins
Ekvador
Luis Antonio Valencia er einn af lykilmönnum Ekvador.
Raulætlar
aðsannasig
Spænski sókn-
armaðurinn
Raul segist
ætla að þagga
niður í gagn-
rýnisröddum
með því að
verða einn
af bestu leik-
mönnum HM.
Raul var frá í
þrjá mánuði í
vetur vegna hnémeiðsla og skor-
aði aðeins fimm mörk fyrir Real
Madrid á tímabilinu. Frammi-
staða hans hefur orðið til þess að
sæti hans í byrjunarliði Spánar
er ótryggt.
„Þetta er eJcki í fyrsta sinn sem
ég er gagnrýndur. En ég veit að
ég nýt ennþá trausts landsliðs-
þjálfarans og liðsfélaga minna,“
sagði Raul. „Eftir að hafa verið
frá í þrjá mánuði er ég betur
hvíldur en ella og er þrátt fyrir
allt með miklu meira sjálfs-
traust en áður,“ sagði Raul enn
fremur og bætti við að hann hafi
mikla trú á að Spánn geti orðið
spútniklið keppninnar.
Er þér heitt?
Sknfstofo-
og tolvukœlar
líshúsið ehf S-.566 6000
Pólland -
A-Riðill
KI.19
Leikstaður:
Veltins-leikvangurinn í Gelsenkirchen
Dómari:
Kamikawa Toru frá Japan.
Styrkleikalisti FIFA:
Pólland: 29
Ekvador: 39
Veðbankarnir:
Sigur Þýskalands á HM: 7/1
Sigur Kosta Ríka á HM: 500/1
Staðreyndir um leikinn:
• Búist er við því að Artur Boruc,
markvörður Celtic, muni verja
mark Póllands í stað Tomasz
Kuszczak, leikmanns WBA, eftir
herfileg mistök hins síðarnefnda
í æfingaleik gegn Kólumbíu í
síðustu viku. Annar leikmaður
Celtic, Maciej Zurawski, fer fyrir
sókn Póllands en hann skoraði sjö
mörk í undankeppninni.
• Hnémeiðsli hafa hrjáð Agustin
Delgado, en hann er helsti sókn-
armaður Ekvador, og því er óvist
hvort hann verði með.
Pawel Janas, þjálfari Póllands,
hefur sagst ætla að notast við Ieik-
kerfið 4-5-1 sem fleytti Pólverjum
í þriðja sætið á HM í Þýskalandi
1974-
Pólland og Ekvador hafa einu
sinni mæst áður. Það var í vináttu-
landsleik sem fram fór í Barcelona
í nóvember í fyrra. Pólverjar sigr-
uðu3-o.
Ekvador tók í fyrsta sinn þátt á
HM í Japan og Suður-Kóreu 2002.
Þá komst liðið ekki upp úr riðla-
keppninni. Pólverjar eru hins
vegar að taka þátt í sínu sjöunda
móti og hafa tvisvar hafnað í
þriðja sæti - árin 1974 og 1982.
Ekvador vann alla heimaleiki
sína í undankeppninni en veru-
lega erfitt þykir að leika á heima-
velli Ekvador sökum þess hversu
hátt hann er yfir sjávarmáli.
Liðið vann aðeins einn útileik,
gegn Bólivíu, en heimavöllur
þeirra er einmitt líka afar hátt
yfir sjávarmáli.
Andreas Isaksson, mark-
vörður Svía, mun missa
a f
fyrsta leik
liðsins á HM
gegn Trínidad
og Tóbagó
eftir að hafa
orðið fyrir
minniháttar
m e i ð s 1 u m
á æfingu. Is-
aksson fékk fast skot liðsfélaga
sins, Kim Kallström, í höfuðið
og skall í jörðina með þeim af-
leiðingum að hann hlaut heila-
hristing. Það verður því Rami
Shaaban eða John Alvbage sem
mun standa í sænska markinu
í fyrsta leiknum en hvorugur
hefur mikla reynslu af því að
leika með landsliðinu. Búist er
við því að Isaksson verði búinn
að ná sér fýrir annan leik liðsins
gegn Paragvæ 20. júní.
Brasilíski sóknarmað-
urinn Ronaldo missti
af æfingu liðsins í gær
vegna veikinda.
Læknar brasil-
íska liðsins gáfu
út yfirlýsingu
þar sem sagði að
Ronaldo hefði
fengið háan hita
en þeir búast þó
við því að hann verði búinn að
jafna sig fyrir fyrsta leik liðsins
gegn Króatíu 13. júní. Ronaldo,
sem var markakóngur HM
2002, missti af síðustu leikjum
Real Madrid á tímabilinu vegna
meiðsla en er að sögn orðinn
góður afþeim.
Raul á æfingu.