blaðið - 27.06.2006, Side 8
8IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 blaAÍÖ
Reuters
Viö Brandenburgarhliðið er mikilfenglegt minnismerki yfir myrta Gyðinga sem
gert er úr 2700 steinsúlum.
Um minnismerki
Óttar Guðmundsson skrifar frá Berlín.
Það er nánast
fullt starf að
fylgjast með
heimsmeist-
arakeppninni
í knattspyrnu.
Á morgnana
eru blöðin
lesin og skoð-
anir blaða- ÓttarGuömundsson
manna og
álitsgjafa bornar saman við eigin
álit á leikjum gærdagsins. Síðan
þarf að undirbúa daginn áður en
sjálfir leikirnir hefjast eftir hádegi.
Síðustu vikurnar hef ég horft á 2-3
leiki á hverjum degi frá klukkan
þrjú og fram að miðnætti. Þetta
mætti kalla fulla vinnu á stöð-
ugum kvöldvöktum.
Þjóðverjarnir á kránni fögnuði
gífurlega í gærkveldi þegar Hol-
lendingar voru sendir heim af pilt-
unum hans Salazars frá Portúgal.
Keppnin er að snúast uppí stóra
þýska veislu þar sem landsliðinu
gengur vel og kalvinistísku erki-
féndurnir farnir heim til að rækta
túlipana og sleikja sár sín. í hvert
skipti sem áhyggjufullt andlit
Marcó van Bastens þjálfara Kal-
vínistanna birtis í skjánum hlógu
menn dátt og glöddust innilega.
„Ohne Holland wir fahren nach
Berlin,“ var sungið enn og aftur og
ölkúsum veifað.
En Berlin hefur uppá margt
annað að bjóða en knattspyrnu og
fagnaðarlæti. Saga borgarinnar á
tuttugstu öldinni er mikill harm-
leikur. Með valdatöku litla korp-
óralsins frá Austurríki árið 1933
hófst ljótasti kafli allrar Evrópusög-
unnar. Á tólf ára valdaferli sínum
leiddi hann þjóðina útí tortíming-
arstríð þar sem húmanisminn
var fyrsta fórnarlambið. Lítilsigld
meðalmenni höguðu sér eins og
Guð almáttugur og réðu yfir lífi og
dauða. Gyðingar voru drepnir kerf-
isbundið í útrýmingarbúðum auk
Sígauna, homma, þroskaheftra og
fjölda annarra sem ekki voru í náð-
inni hjá hinum nýju almáttugu
yfirvöldum.
Berlin er í dag full af minnis-
merkjum um allt þetta dána fólk.
Útum alla borg má finna litla
skildi með nöfnum og einhverri
áletrun. Við Brandenburgarhliðið
er mikilfenglegt minnismerki
yfir myrta Gyðinga sem gert er úr
2700 steinsúlum. Víða má finna
texta sem minnir á eyðilagða
eða brennda Synagógu, Gyðinga-
kirkjugarða eða skóla. Maður fær
þá tilfinningu að Berlín sé í raun
tvær borgir; önnur er sýnilega en
hin liggur þarna einhvers staðar
undir nútímabyggingum og
minnismerkjum en er ekki síður
raunveruleg.
Það má segja Þjóðverjum til
hróss að á síðustu 2-3 áratugum
hafa þeir tekist á við skuggalega
fortíð sína eins og öll minnis-
merkin sýna vel. Venjulegir þýskir
borgarar eiga aldrei að fá að
gleyma þessari sögu.
Stundum hlæja þeir reyndar
að þessu minnismerkjaæði stjórn-
valda og segja þetta til merkis um
keppnisanda og stórveldisdrauma
þjóðarinnar. Þjóðverjum finnist
þeir alltaf þurfi að vera fremstir
í hópi þjóða. Þeir eiga heimsmet
í fjöldamorðum og skipulagðri út-
rýmingu annarra þjóða.. Nú eru
þeir orðnir ótvíræðir heimsmeist-
arar í því að byggja minnismerki
yfir eigin grimmdarverk.
Auglýsingar 510 3744
blaðiða
Hvað vakir fyrir Kim Jong-il?
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa eina ferðina enn ákveðið að treysta
á ögranir sem samningatækni. Norður-Kóreumenn segjast eiga
kjarnavopn og nú hóta þeir að skjóta á loft langdrægri eldflaug.
Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa eina
ferðina enn ákveðið að ögra alþjóða-
samfélaginu, trúlega í þeim tilgangi
að bæta samningsstöðu sína gagn-
vart Vesturlöndum og nágranna-
ríkjum. Að þessu sinni er á hinn bóg-
inn vandséð nákvæmlega hvað það
er sem stjórn Kim Jong-il, leiðtoga
Norður-Kóreu, telur sig geta fengið
fram með því að hóta að skjóta á loft
langdrægri eldflaug í tilraunaskyni.
Svo virðist sem Norður-Kóreu-
menn vinni áfram að undirbúningi
tilraunarinnar í norðausturhluta
landsins þrátt fyrir afdráttarlausar
viðvaranir stjórnvalda í Japan og
Bandaríkjunum. Sérfræðingar segja
að Norður-Kóreumenn hafi ítrekað
beittslíkumögrunumsemsamninga-
tækni og vera kunni að hugsunin nú
sé að beita eldflauginni sem vopni i
viðræðum við Bandaríkjamenn. Þar
ræðir einkum um kjarnorkuáform
Norður-Kóreumanna sem kveðast
ráða yfir gereyðingarvopnum.
„Frá Bandaríkjunum heyrum við
að þar séu menn búnir að fá sig
fullsadda á ósveigjanleika stjórn-
valda í Norður-Kóreu. Þetta [þ.e.a.s.
fyrirhuguð tilraun með eldflaug-
ina] sýnir að Norður-Kóreustjórn
er sama sinnis og leitast nú við að
vekja athygli Bandaríkjamanna
á kröfum sínum,“ segir Jun Bong-
Geun, sem starfar við Utanríkis- og
öryggismálastofnun Suður-Kóreu í
höfuðborginni, Seoul.
Viðræðum slitið
Viðræður sex rikja um kjarnorku-
áætlun Norður-Kóreumanna hafa
legið niðri frá því í nóvembermán-
uði. Þá sakaði stjórn Kim Jong-il
Bandaríkjastjórn um að hafa gripið
til refsiaðgerða í kjölfar tilbúinna
ásakana um fjármálasvik. Mill-
ljónir dollara í eigu norður-kóreska
ríkisins hafa verið frystar í banka
einum í Macau vegna fullyrðinga
Bandaríkjastjórnar um að bankinn
hafi tekið þátt í peningaþvætti á
vegum stjórnvalda í Norður-Kóreu.
Stjórn Kim Jong-il hefur krafist þess
að fjármunir þessir verði losaðir og
lýst yfir því að viðræður verði ekki
hafnar á ný fyrr en gengið hafi verið
að þeirri kröfu. Þátt í viðræðunum
taka auk Bandaríkjanna og Norður-
Kóreu, Kína, Suður-Kórea, Rúss-
land og Japan. Tilgangurinn með
þeim er að fá stjórnvöld í Norður-
Kóreu til að hætta við kjarnorku-
áform sín gegn þróunaraðstoð og
öryggistryggingum.
Bandaríkjamenn hafa þver-
tekið fyrir að verða við kröfum
Norður-Kóreu.
„Norður-Kóreumenn eru að koma
þeim skilaboðum á framfæri að þeir
eigi bæði eldflaugar og kjarnorku-
vopn,“ segir Jun, sem er fyrrum ráð-
gjafi sameiningarráðherra Suður-
Kóreu en sá embættismaður fer
með samskiptin við nágrannaríkið
í norðri.
Hófleg áhætta eða fífldirfska?
Sumir sérfræðingar telja hins vegar
að stjórn Kims muni einfaldlega
ganga of langt verði langdrægu eld-
flauginni skotið á loft. Sagt er að hún
muni geta dregið alla leið til Alaska i
Bandaríkjunum. Hún er einnig talin
bera létta hleðslu sem vakið hefur
grunsemdir um að henni sé ætlað
að ferja kjarnorkusprengju.
Kim Tae-Woo, sem starfar við
Rannsóknarstofnun á sviði varnar-
mála í Suður-Kóreu, segir að skjóti
Kim Jong-il eldflauginni á loft taki
hann mikla áhættu og sennilega
óhóflega áhættu. Hann spáir því að
Bandaríkjamenn muni grípa til enn
hertra efnahagslegra refsiaðgerða
verði af tilraunaskotinu. „Stjórn-
völd í Pyongyang finna nú þegar
fyrir áhrifum refsiaðgerða Banda-
Reuters
Fyrrum foringjar í her Suður-Kóreu mótmæla fyrirhuguðu eldflaugaskoti stjórnar Kims,
leiðtoga nágrannaríkisins í norðri.
Taro Aso, utanríkisráðherra Japans, ræðir
öryggismál á fundi með blaðamönnum í
Tókíó. Japanar hafa boðað hörð viðbrögð
skjóti Norður-Kóreumenn á loft lang-
drægri eldflaug í tilraunaskyni.
ríkjamanna. Stjórnin myndi að
auka missa marga vini og stuðnings-
menn í Suður-Kóreu,“ segir Kim.
Japanir og Bandaríkjamenn
hafa þegar látið þau boð út ganga
að brugðist verði hart við taki eld-
flaugin flugið. Stjórnvöld í Kína og
Norður-Kóreu hafa á hinn bóginn
lítt látið til sín taka í deilunni.
Afstaða Suður-Kóreu-
manna og Kínverja
Stjórnvöld í Suður-Kóreu fylgja
þeirri stefnu að reyna eftir fremsta
megni að auka samskiptin við lok-
aða nágrannaríkið í norðri. Sérfræð-
ingar telja heldur ólíklegt að horfið
verði frá þeirri stefnu framkvæmi
Norður-Kóreumenn tilraunaskotið.
Haft var eftir varnarmálaráðherra
Suður-Kóreu á fimmtudag að til-
raunaskotið væri ekki „yfirvofandi",
Norður-Kóreumenn hefðu hvergi
nærri lokið undirbúningi þess.
Kínverjar, sem eru helstu stuðn-
ingsmenn stalínistastjórnarinnar
í Pyongyang, þykja ekki líklegir til
að styðja frekari refsiaðgerðir gegn
stjórn Kim Jong-il. Sú afstaða myndi
síðan hafa í för með sér að viðbrögð
Bandaríkjamanna reyndust ekki
jafn áhrifamikil og að væri stefnt.
Ýmsir fræðimenn telja raunar að
afstaða ráðamanna í Suður-Kóreu
og Kína geti orðið til þess að Kim
ákveði að stíga skrefið til fulls og
skjóti eldflauginni á loft. „Ýmsir
eru þeirrar hyggju að Norður-Kór-
eumenn hafi þegar lokið við þetta
reikningsdæmi og hafi komist að
þeirri niðurstöðu að tilraunaskotið
verði frekar til að styrkja stöðu
þeirra en hitt,“ segir Jun.
Kveðast eiga gereyðingarvopn
Norður-Kóreumenn hafa einu sinni
áður skotið langdrægri eldflaug á
loft í tilraunaskyni. Það var árið
1998. Tilraunaskotið vakti gífur-
lega hörð viðbrögð en að mati Juns
reyndist niðurstaðan ráðamönnum
i Pyongyang heldur hagfelld. „Þegar
til lengri tíma er litið kann að vera
að sú tilraun hafi heldur orðið til
þess að snúa þróun mála þeim í
hag,“ segir hann. Jun minnir á að
skömmu eftir tilraunaskotið 1998
hafi samningaviðræður við Banda-
ríkjamenn hafist á ný. Ári síðar lýsti
Norður-Kóreustjórn yfir því að frek-
ari tilraunir á þessu sviði eldflauga-
tækni yrðu ekki gerðar.
I fyrra lýstu fulltrúar Norður-
Kóreustjórnar síðan ítrekað yfir
því að ríkið réði yfir kjarnorku-
vopnum. Kváðust stjórnvöld tilbúin
að hætta við þá vopnaáætlun gegn
efnahagsaðstoð og öryggistrygg-
ingum. Síðar sleit stjórn Kim Jong-
il viðræðunuih og spennan tók að
vaxa á ný í sajmskiptum við Banda-
ríkjamenn. Sú spenna hefur nú náð
nýju stigi með boðuðu tilraunaskoti
Norður-Kóreumanna.
íslendingar
styðja Englend-
inga en hafa
litla trú á þeim
íslendingar styðja flestir Eng-
lendinga á heimsmeistaramót-
inu í knattspyrnu. Brasilíumenn
fylgja fast á hæla þeirra en
Hollendingar eru i þriðja sæti
nokkuð á eftir. Þetta kemur
fram í könnun sem Gallup fram-
kvæmdiádögunum. 27,i%þeirra
sem svöruðu sögðust halda með
Englendingum, 22,5% halda með
Brössum og 7,8% styðja Hollend-
inga. Hins vegar svöruðu 11,6%
aðspurðra á þann veg að þeir
styddu ekkert land í keppninni.
Frændur okkar Svíar nutu að-
eins stuðnings fimm prósenta
aðspurðra og Frakka styðja rúm
tvö prósent.
Þrátt fyrir þennan mikla
stuðning við Englendinga virð-
ast menn þó hafa takmarkaða
trú á því að þeir muni hampa
titlinum. Þegar fólk var beðið
um að spá fyrir um sigurvegara
mótsins kom í ljós að 62% lands-
manna eru á því að Brasilía
muni hampa titlinum. Heima-
menn í þýska landsliðinu koma
næstir en ríflega 11% spá þeim
sigri og fylgja Argentínumenn
í kjölfarið. Aðeins um fimm pró-
sent aðspurðra hafa trú á því að
Englendingar fari alla leið.