blaðið - 27.06.2006, Page 22
30 IFÓLK
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 2006 blaðið
SKRÍTIN SKILTI
Smáborgarinn var á rúntinum um helg-
ina með ís í hendi og góðan félaga í far-
þegasætinu. Tilgangur ferðarinnar var
að skoða nokkur af hinum fjölmörgu
nýju hverfum sem virðast spretta upp
á höfuðborgarsvæðinu eins og gorkúl-
ur þessa dagana. Smáborgarinn gerir
slíkt reglulega til að skoða í hvað pen-
ingum landsmanna er eytt þessa dag-
ana. Hann talará þessum ferðum mikið
um óþarfa eyðslusemi almennings
- sem taki lán fyrir allt of stórum húsum
sem fólk hafi ekki efni á. Um leið öfund-
ar hann eigendur þessara sömu húsa
innst inni. Slíkt myndi hann hinsvegar
aldrei gefa upp, sama hver ætti í hlut.
Varúð, sprengingar
Þar sem smáborgarinnar keyrði um
eitt af þessum nýju hverfum blasti
allt í einu við honum skilti sem á stóð
- Varúð, sprengingar! Smáborgaranum
brá að vonum verulega þegar hann rak
augun í skiltið og beygði sig ósjálfrátt
niður um leið og hann hóf að horfa í
kring um sig í leit að illilegum mönn-
um í vinnugöllum með dínamíttúpur í
hendi. Hann hægði einnig verulega á
sér til að hafa betri tíma til að skima
í kring um sig eftir þeirri gríðarlegu
hættu sem skiltið varaði við. En ekkert
var þarna að sjá og stuttu síðar keyrði
smáborgarinn út úr hverfinu án þess að
hafa lent í nokkurri hættu, og án þess
að heyra svo mikið sem kókómjólkur-
fernu sprengda af einhverju saklausu
barninu.
Með hjálm í aftursætinu?
Smáborgarinn hefur síðan náð að jafna
sig af hræðslutilfinningunni sem hrísl-
aðist um æðar hans þarna um helgina,
en viðurkennir að hann hefur hugsað
mjög mikið um skiltið „góða". Hann velt-
ir því nú fyrir sér af hverju það hafi verið
sett niður. Hvaða ráðstafanir átti hann
að gera? Búast menn við að almenning-
ur keyri til að mynda um með appelsínu-
gula hjálma í aftursætinu sem settir
eru upp þegar von er á spreningum í
næsta nágrenni? Eða að fólk myndi
allt í einu taka u-beygju á götunni og
láta sig hverfa, og þannig gefa verktak-
anum betra næði til að vinna vinnuna
sína? Honum hefur líka dottið í hug að
verktakinn hafi einfaldlega viljað koma
í veg fyrir að fólki myndi bregða ef helj-
arsprenging yrði við hliðina á bíl þess
á ísrúntinum. Smáborgarinn verður
að viðurkenna að hann telur að skiltið
muni ekki hafa þau áhrif.
HVAÐ FINNST ÞER?
BlaÖiÖ/SteinarHugi
Jótt Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra.
Sprakk ríkisstjórn Þorsteins Pálsson-
ar ekki í beinni?
Það er þjóðsaga. Það vissu allir sem að málinu komu. Fjöl-
miðlungar vildu hins vegar þakka sér þetta gustukaverk.
ingólfur Margeirsson, sagnfræðingur, hefur sett fram þá kenningu að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar, sem Jón Baldvin átti
sæti í, hafi ekki sprungið í beinni útsendingu í sjónvarpssal eins ávallt hefur verið haldið fram.
1 m W m. ,$»' M| | j Æ * m, J i jþgij
ú á wmÉ % ffr Í'
m 1 1 Jgjp V'; íTfiiiP
Það var margt sem gladdi augað þegar vor- og sumarlína Emporio
Armani var kynntfyrir árið 2007. Sýningin fór fram á tískuviku í
Mílanó og enn á ný má greinaferska sýn hjá Armani.
Og þá grétu allir
Kidman og Urban grétu bœði í brúðkaupi sínu um helgina.
Óskarsverðlaunaleikkonan Nicole
Kidman gekk um síðustu helgi í
það heilaga með kántrísöngvaran-
um Keith Urban. „Ég mun elska þig
og virða alla mína ævidaga," sagði
leikonan við Urban með gleðitárin
í augunum.
„Fallegasta stundin í brúðkaupinu
var þegar allir sátu við borðin í veisl-
unni og svo stóð Urban upp og gekk
upp á sviðið og söng gullfallegt lag
tU konu sinnar. Annars var þetta í
heild sinni ótrúlega falleg athöfn,“
sagði Jessica Rowe eftir athöfnina.
„Ég held að ekki hafi verið þurrt
auga í salnum, Kidman grét og allir
grétu," hélt hún áfram.
Kidman, sem er 39 ára, var sem
kunnugt er áður gift Tom Cruise
en skildi við hann 2001 eftir tíu ára
hjónaband. Hún og Urban, sem er
38 ára, eru sennilega nú þegar farin
af stað í brúðkaupsferðina og líklegt
þykir að staðirnir Fiji og Tahiti hafi
orðið fyrir valinu.
Hafðu augun hjá þér, við söknum tveggja fanga.
HEYRST HEFUR...
AFSÖKUWAR
BEIÐNI
Hér á þessum stað birtist
þann 20. þessa mánaðar
klausa þar sem fullyrt var að
Viggó Sig-
urðsson,
f y r r u m
þjálfari
landsliðs
íslands í
handknatt-
leik, hefði
daginn áð-
ur mætt í
Héraðsdóm Reykjavíkur vegna
umferðarlagabrots. Þetta er
ekki rétt. Viggó Sigurðsson
mætti ekki í Héraðsdóm og
hefur ekki verið sakaður um
umferðarlagabrot.
Viggó Sigurðsson er hér með
beðinn afsökunar á þessum
röngu staðhæfingum.
ValurGrettisson.
Heyrst hefur að blaðamað-
ur tímaritsins Grapevine,
Paul F. Nikolov, sé farinn að
skrifa pistla og fréttir bæði í
Grapevine og svo fyrir hinn
nýja samkeppnisaðila þeirra,
Reykjavík Mag, sem er á enskri
tungu líkt og Grapevine. Sam-
kvæmt heimildum mun hann
vera í barneignarleyfi þessa
stundina og nýtir tækifærið
til þess að skrifa í bæði blöðin.
Samkvæmtstaðfestumheimild-
um fyrirgefa Grapevine-menn
honum fyllilega og segjast lítið
sem ekkert hafa fundið fyrir
samkeppni á markaðnum enn
sem komið er.
Peir sem skemmtu sér í mið-
bænum á laugardagskvöld-
inu ráku upp stór augu þegar
þeir sáu skyndilega Kalla á þak-
inubregða
fyrir, en
Sveppi
úr Strák-
u n u m
leikur per-
s ó n u n a
að öllu
jöfnu við
góðar undirtektir. Slík sjón er
undarleg á hvaða degi sem er
en menn ráku upp enn stærri
augu þegar þeir áttuðu sig á
því að þarna var Eiður Smári
Guðjohnsen fótboltakappi
klæddur eins og persónan
viðkunnanlega. Ekki er vitað
hvers vegna hann klæddi sig
þannig en uppi eru kenningar
um að hann taki að sér hlut-
verkið í hjáverkum á meðan
hann bíður þess að fara til Barc-
elona.
Heimasíðan
b r u n a r
oft inn á rit-
völlinn en á
síðunni má
finnaskemmti-
legar samsær-
iskenningar.
Á síðunni er
varpað fram
þeirri kenn-
ingu að Bjarni Ármanns,
forstjóri Glitnis, verði næsti
formaður Framsóknarflokks-
ins. Menn muna þegar Árni
Magnússon fór til Glitnis þeg-
ar hann hætti sem ráðherra
og vilja menn meina að það sé
hluti af samsærinu mikla. Það
sem færri vita kannski og ýtir
undir kenninguna er að Bjarni
er bóndi í hjáverkum þegar
hann dvelur í Skorradalnum á
góðum dögum.
valur@bladid.net
Málefni.com