blaðið - 10.07.2006, Page 8
8IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 bla6ið
A annað hnndrað
æsSumSL
' &
::*?í
‘
w-
taldir af
Fjöldi barna var um borð í farþegaflugvél
sem fórst í lendingu í Irkutsk í gær.
Hátt í fimm hundruð hafa farist í flugslysum í
nágrenni borgarinnar Irkutsk undanfarin tólf ár.
'»-•3
Um 130 manns eru taldir af í
kjölfar þess að rússnesk farþega-
flugvél fórst í lendingu í borginni
Irkutsk í Síberíu í gær. Flugvélin,
sem var af gerðinni Airbus A-310,
var að koma frá Moskvu og voru
tvö hundruð manns um borð. Sam-
kvæmt rússneskum fréttastofum
var fjöldi barna á leið í sumarfrí
við Baikal-vatn meðal farþega.
Sjónarvottar segja að þegar vélin
lenti á brautinni hafi hún ekki
hemlað og virtist þeim sem áhöfn
vélarinnar hafi ekki haft stjórn á
henni. Flugvélin varð alelda þegar
hún rakst á steinvegg og steyptist
svo áfram á geymsluhúsnæði sem
stendur við flugbrautina. Af þeim
tvö hundruð sem voru um borð
komust sextíu og átta úr vélinni
þegar hún nam loks staðar. Tíu
þeirra sluppu úr vélinni eftir að
einn úr áhöfninni náði að opna
neyðarútgang í aftasta enda vél-
arinnar en öðrum, þar á meðal
einum flugmannanna, var bjargað
úr logunum af slökkviliðs- og
björgunarmönnum. Rúmlega fimm-
tíu voru fluttir á sjúkrahús með
alvarleg brunasár og reykeitranir.
Það tók slökkviliðsmenn rúmar
tvær klukkustundir að slökkva í
eldunum. Að minnsta kosti tvær
miklar sprengingar urðu á meðan
slökkviliðsmennirnir unnu að því
að ráða niðurlögum eldsins, en
talið er að um eitt tonn af flugvéla-
eldsneyti hafi verið í vélinni.
I fyrstu var slysið rakið til
veðurskilyrða en flugbrautin var
blaut og hál eftir miklar rigningar
undanfarið. En þegar líða tók á
daginn fullyrtu samgönguyfirvöld
að bilun á hemlunarbúnaði hafi
valdið slysinu. Fréttir herma að flug-
stjóri vélarinnar hafi sagt við flug-
umferðarstjórn að lendingin hafi
tekist vel en í kjölfar þess hafi sam-
band við vélina rofnað. Samgönguyf-
irvöld í Rússlandi hófu rannsókn á
tildrögum slyssins samdægurs.
Slysið í gær er fjórða flugslysið
sem verður við borgina Irkutsk
Kona sem lifði af flugslysið heldur í átt að flugvellinum eftir að gert hafði verið að sárum hennar.
á aðeins tólf árum. í janúar árið herflutningavél á byggð í borginni ust svo 143 þegar rússnesk farþega-
1994 létust 124 þegar vél fórst í flug- með þeim afleiðingum að 72 fórust. flugvél hrapaði til jarðar í grennd
taki. í desember árið 1997 hrapaði I júlímánuði fyrir fimm árum lét- við borgina.