blaðið - 10.07.2006, Qupperneq 11
blaöift MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006
ÁLIT I 11
Vestfirðingar og vegaframkvæmdir
Farsakennd-
ar viðræður
Eftir Össur Skarphéðinsson
Viðræður ís-
lensku ríkis-
stjórnarinnar
við Banda-
ríkjamenn
eru að verða
að farsa. Eina
niðurstaðan
sem forsætis-
ráðherrann
treysti sér til
að greina frá í lok fundarins í
vikunni var að engin niðurstaða
hefði orðið. Það fannst honum
reyndar hið besta mál því það
hefði hvort sem er aldrei verið
ætlast til neinnar niðurstöðu af
fundinum!
Ég minnist þess að forsætis-
ráðherrann hafði áður tjáð þá
afstöðu, að góðar vonir væru
bundnar júlífundinum. Ætli
)ær góðu vonir hafi stafað af
wí, að fundurinn átti ekki að
eiða til niðurstöðu?
í dag liggur ekki fyrir - skv.
þeim upplýsingum sem ég hef
sem alþingismaður í utanríkis-
málanefnd þingsins - hvenær
eða í hvaða ásigkomulagi Banda-
ríkjamenn skila aftur þeim land-
svæðum eða byggingum sem
þeir hafa haft til ráðstöfunar.
Það liggur ekki einu sinni
fyrir að þeir vilji skila svæð-
unum aftur.
Sjálfum finnst mér margt
benda til að Bandaríkjamenn
vilji helst ekki skila landsvæð-
unum á Miðnesheiði aftur. Ég
held að þeir vildu helst hafa hér
land og byggingar áfram innan
girðingar til að geta komið aftur
með viðbúnað ef þeim hentar -
til dæmis til að nota ísland vegna
herflutninga til átakasvæða. Slík
niðurstaða yrði óviðunandi.
Það er reyndar ekki skrítið að
málið skuli hanga svona í lausu
lofti. Um hvað á ríkisstjórn að
semja, sem veit ekki hvað hún
vill?
Björn Bjarnason, dómsmála-
ráðherra, er helsti sérfræðingur
ríkisstjórnarinnar í varnar- og
öryggismálum - og betur að sér
um þau mál en samalagður emb-
ættismannaherinn. Það er at-
hyglisvert, hvernig honum hefur
verið haldið utan við þessar við-
ræður. Það bendir ekki til þess
að nýi forsætisráðherrann sé sér-
lega sjálfsöruggur í þessu máli.
Björn hefur hins vegar fellt
sinn dóm um samningatækni
ríkisstjórnarinnar. I nýlegri
grein i tímaritinu Þjóðmálum
sagði hann að markmið hennar
hefðu byggst á óskhyggju. Það
eru orð að sönnu.
Er nema von, að ríkisstjórn,
sem að dómi helsta sérfræðings
í hennar röðum byggir á ósk-
hyggju en ekki raunveruleika
í samningum við Bandaríkja-
menn, reki einsog skip sem er
búið að fá nótina í skrúfuna?
Af http://web.hexia.net/roller/page/oss-
ur//
Þetta er ánægju-
leg tilbreyting
fráþeirrisíbylju
sem oft heyrist
um að of mikið
fé fari út á land
til vegagerðar
og þessir lands-
hlutar þá teknir
sem dæmi, en EinarK.
of lítið fé fari Guðfinnsson
til vegagerðar .................
á höfuðborgar-
svæðinu. Hefur Sturla Böðvars-
son samgönguráðherra til dæmis
fengið marga ósanngjarna demb-
una frá þessu fólki, fyrir að vera
of áhugasamur um að drífa áfram
framkvæmdir þar sem þeirra er
mest þörf úti á landi. Þeir sem
hæst hafa talað í þessa veru þegja
nú og verður að ætla að þeir hafi
nú skipt um skoðun, sem er sann-
arlega vel.
ekg.is
Dæmigert |
l'yrir þessa y*’.
trúðleikara er |
niðurskurður h
á vegafram-
kvæmdum á |
Vestfjörðum ..f'
og Norð-Aust-
urlandi. Sem
þáttur í sam- Sverrir
drætti eru þær Hermannsson
eins og kræki-..........
ber í helvíti
miðað við þann vanda sem við er
að etja. En að því er gætandi að á
þeim svæðum er fáum atkvæðum
hætt hvort sem er; og eins hitt að
forystumenn ísfirðinga a.m.k.
eru þekktir fyrir að kyssa á pólit-
íska vöndinn eftir nótum.
xf.is
TORLEIÐI
í fyrsta sinn á ísland
Toyota FJ Cruiser
Vél: 4,0L V6 24 ventla 239 hestöfl
Sjálfskipting: 5 þrepa me& "Overdrive".
Drifbúnaður:
• Sjálfskiptur: Fjórhjóladrifin með háu og lágu drif.
• Beinskiptur: Sídrif með háu og lágu drifi, spólvörn og stöðugleikakerfi.
Fáanlegir litir: Gulur, svartur,dökkrauður,silfur og blár.
Abyrgð: Tveggja ára ábyrgð.
Lánamöguleikar: 20% útbogun afg. til allt að 84 mán.
Búnaður í sýningarbíl:
ABS bremsukerfi, litað gler, líknabelgir, loftkæling, rafdrifnar rúður, vökvastýri, hliðarrör, "TRD
Performance" pústkerfi, "16 TRD álfelgur með heilsársdekkjum, hlíf undir vél, driflæsing að aftan.
"Convenience" pakki: Rafknúnir álútispeglar, bakkskynjari, dökkt gler, lykillaust aðgengi,
hraðastillir ("CruiseControl"), afturrúðuþurka, líknabelgir hjá bílstjóra og farþega - hliðarlíknabelgir
í lofti fyrir 1. og 2. sætaröð.
"Convenience" pakki (PPO): Þakbogar, dráttarkrókur, hlíf yfir varadekk.
"Prefered Premium Accessory" pakki: Gólf fyrir alla veðráttu og motta í farangursrými, geymsla í
afturhurð, sjúkrakassi, armpúði fyrir bílstjóra og farþega.
Verð frá: 4.746 þús.
Verð á sýningarbíl: 5.584 þús.
Sýningarbíll á staðnum.
www.sparibill.is
Skúlagötu 17 • Sími: 577 3344