blaðið - 10.07.2006, Page 22

blaðið - 10.07.2006, Page 22
22 I ÍPRÓTTIR MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 blaðiö Leikmannamark- aðurinn fer á flug Glatt á hjalla hjá Fabio Cannavaro, fyrirliöa ítalska landsliðsins, og Giorgio Napolitano, forseta Italíu. Enskir fjölmiðlar segja að Cannavaro sé á leið til Chelsea. I kjölfar þess að heimsmeistaramót- inu í knattspyrnu er lokið má fast- lega gera ráð fyrir að knattspyrnu- stjórar Evrópu hugsi sér nú gott til glóðarinnar og reyni að styrkja lið sín fyrir átök vetrarins. íþrótta- síður enskra fjölmiðla eru óðum að fyllast af fréttum og vangaveltum um þau leikmannakaup sem eru í farvatninu. Enskir fjölmiðlar fullyrða að for- ráðamenn Newcastle ætli að styrkja lið sitt með því að fá til sín David Beckham, fyrrum fyrirliða enska landsliðsins og leikmann Real Madrid. Til þess að auka líkurnar á að Beckham gangi til liðs við Newc- astle stefna forráðamenn liðsins að því að tryggja sér þjónustu hollenska sóknarmannsins Ruuds Van Ni- stelrooy. Hafi Beckham ekki áhuga á að leika listir sínar í Newcastle- borg munu eigendur liðsins reyna að kaupa Shaun Wright-Phillips, en hann hefur til þessa lítið fengið að spreyta sig með Chelsea. Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, mun eiga ann- ríkt í sumar enda þarf hann að fylla í skarðið sem Ruud Van Nistelrooy skilur eftir sig. Talið er líklegt að hann reyni að kaupa spænska marka- hrókinn Fernando Torres sem leikur með Atletico Madrid. Torres lék feykivel með spænska landsliðinu á HM og hafa stórlið eins og Real Madrid og A.C Milan reynt að fá kappann í sínar raðir. Forráðamenn Atletico hafa lýst því yfir að Torres sé ekki falur fyrir lægri upphæð en fjörtíu milljónir punda. Enskir fjöl- miðlar sögðu einnig frá því um helg- ina að Ferguson ætli að reyna að fá Michael Carrick, miðjumann hjá Tottenham, til liðs við sig. Skoski knattspyrnustjórinn hefur lengi haft hug á að kaupa Mahmadou Di- arra frá Lyon en hefur snúið sér að Carrick þar sem Diarra fer að öllum líkindum til Read Madrid í sumar. Eins og síðustu sumur verður fylgst náið með leikmannakaupum Chelsea í sumar enda eru vasar eig- anda félagsins ákaflega djúpir. Liðið hefur nú þegar fest kaup á úkra- ínska sóknarmanninum Andriy Shevchenko en samkvæmt breskum fjölmiðlum er Jose Mourinho, knatt- spyrnustjóri liðsins, rétt byrjaður að styrkja lið sitt. Samkvæmt breska ríkissjónvarpinu, BBC, verða kaup liðsins á ítalska varnartröllinu Fa- bio Cannavaro frá Juventus tilkynnt fljótlega. Auk þess eru forráðamenn Chelsea að reyna að festa kaup á argentínska undrabarninu Carlos Tevez. Upphafið að endi ferils Cristianos Ronaldos hjá Manchester United? fleulers Ronaldo vill yfirgefa Manchester Cristiano Ronaldo, leikmaður Manc- hester United og portúgalska lands- liðsins, sagði í viðtali við spænska fjölmiðla í gær að dagar hans sem leik- maður United væru taldir og að hann vilji leika á Spáni á næstu leiktíð. Ronaldo segir ómögulegt fyrir sig að halda áfram að leika á Eng- landi með United eftir að honum og Wayne Rooney lenti saman í leik Eng- lendinga og Portúgala á HM á Þýska- landi. Margir telja að Ronaldo hafi beinlínis átt veigamikinn þátt í því að dómari leiksins ákvað að sýna Ro- oney rauða spjaldið í leiknum. Haft er eftir Ronaldo í spænska íþrótta- blaðinu Marca að hann meti stöðu sína hjá United þannig að hann hafi hvorki stuðning Alex Fergusons, knattspyrnustjóra liðsins, né eig- enda þess og hann muni ljúka við að ganga frá sínum málum á næstu dögum. Ronaldo gengur svo langt að saka stjórn félagsins um að bola sér í burtu. Líklegast þykir að Ronaldo gangi til liðs við Real Madrid verði honum leyft að yfirgefa Manchester United. Ramon Calderon, nýkjörinn forseti Real, er sagður hafa mikinn áhuga á að fá portúgalska sóknarmanninn í sínar raðir. Einnig er talið líklegt að Barcelona muni bjóða í Ronaldo. Reuters Gleðikonur og knattspyrna Óttar Guðmundsson skrifarfrá Berlín. Þegar undirbúningur heimsmeist- arakeppninnar stóð sem hæst í vetur og vor komust ískyggilegar fréttir á síður heimsblaðanna. Sagt var að flytja ætti til Þýskalands 50 - 100 þúsund konur frá fátækum löndum og selja þær knattspyrnu- áhugamönnum sem flykkjast mundu á leikina. Víða á Vestur- löndum var rekið upp mikið rama- kvein. Öll helstu kvenfélög og baráttusamtök kvenna sendu frá sér yfirlýsingar um málið. Jafnvel á litla íslandi varð þetta hitamál. Fulltrúar fjölmargra samtaka sáu ástæðu til að leggja leið sína í Laug- ardalinn alvarlegir á svip til að afhenda Eggerti Magnússyni harð- orða ályktun um þetta mál. Lítið hefur farið fyrir þessari umræðu eftir að keppnin hófst fyrir alvöru. Ég ákvað að kanna málið og hjólaði að kvöldlagi á þá staði borgarinnar þar sem konur hafa staðið um áratugaskeið og falboðið sig í Oranienburgarstræti, Kurfurstastræti og við Sigursúl- una. Þar var allt sem fyrr og ég sá engin merki um fátæku konurnar 50 þúsund sem sagt var að mundu leggja undir sig markaðinn. í gærkvöld var umfjöllun um þetta mál í þýska sjónvarpinu. Þar var viðtal við nokkra eigendur vændishúsa og þeir báru sig ákaf- lega aumlega. Heimsnieistara- keppnin með öllum sínum hávaða og látum hafði ekki fært þeim svo mikið sem eina aukaevru í kassann. Þeir kvörtuðu undan því að allar þessar tugþúsundir karlmanna af ýmsu þjóðerni sem streymdu til landsins hefðu í raun ekki haft neinn áhuga á öðru en að drekka bjór og syngja á götum úti. Þeir sögðu líka að allt of margir hefðu komið með konu og börn með sér sem auðvitað væri nei- kvætt fyrir þeirra viðskipti. „Þetta var líka svona vina- og fjölskyldu- hátíð,“ sagði einn vændiskóngur- inn dapur í bragði. „Menn voru á fylleríi með vinum sínum og áhug- inn fyrir gleðikonum borgarinnar var bara enginn í þessari innilegu knattspyrnuvináttu í gleði og u Auk þessara gleðihúsakónga urðu nokkrir veitingamenn fyrir svörum. Þeir voru sammála um það að HM hefði verið mikil gós- entíð. Bjórbirgðir væru á þrotum og brugghúsin sinntu á engan hátt eftirspurn eftir þessum knattspyrnudrykk. Ég sat eftir hugsi. Greinilegt var að Bakkus kallinn hafði vinning- inn i þessari keppni um peninga og tíma gestanna. Kannski var sagan um 50 -100 þúsund fátækar stúlkur bara stormur í vatnsglasi eða hafði öll þessi umræða, álykt- anir og samþykktir kvenfélaganna fælt menn frá vændishúsunum og inn á barina? Viðmælendurnir í sjónvarpsþættinum áttu engin svör en þeir könnuðust ekki við þennan stórfellda innflutning á vændiskonum. „Af hverju ætti ég að flytja inn stúlkur þegar allar vændiskonurnar mínar eru meira eða minna atvinnulausar?“ sagði einn eigandi vændishúss alvarlegur í bragði. „En þetta er kannski tímanna tákn. Miðaldra karlmenn eru svo takmarkaðir í andanum að þeir geta bara hugsað um eitt í einu. Þegar fótbolti og bjór eru annars vegar kemst ekk- ert annað að. Er þetta ekki líka það sem allar eiginkonur kvarta undan?“ Fulltrúar brugghúsanna og knæpanna glottu við tönn eins og þeir einir gera sem alltaf vinna á endanum.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.