blaðið

Ulloq

blaðið - 10.07.2006, Qupperneq 24

blaðið - 10.07.2006, Qupperneq 24
24 I MATUR MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 blaöiö Fiskisúpur af himnum ofan Þegar halda skal glæsilegt mat- arboð með litlum tilkostnaði og lágmarks skipulagningu er tilvalið að elda fiskisúpu. Þær eru frábærar jafnt á hlýjum sum- arkvöldum i sumarbústaðnum sem og á haustin þegar farið er að kólna eilítið í lofti. Öll fjöl- skyldan getur sameinast yfir ilm- andi súpunni og gert sér glaðan dag í góðra vina hópi. Nauðsyn- legt er að bera fram gott, þurrt hvítvín með súpunni en það setur punktinn yfir i-ið og gerir súpuna ljúfu ógleymanlega. Hér á eftir fylgja tvær uppskriftir að fiski- súpum sem hafa verið prófaðar i ótal fjölskyldum og ætíð vakið mikla lukku. Lykilatriði þegar laga skal góða fiskisúpu er að hráefnið sé ferskt og að fiskurinn sé ekki látinn sjóða of lengi. Ef að þessu er gætt lætur árangurinn ekki á sér standa. Himneskfiskisúpa (fyrir 4-5) 1 laukur 2 sellerístötiglar 2 gulrœtur 1 gul paprika í lítri gott fiskisoð (eða vatn og teningur) 1 dós niðursoðnir tómatar 1 camenbert ostur íoo gr rjómaostur í peli rjómi 1 dl hvítvín salt pipar 400 grfiskur (blanda af t.d. lúðu, ýsu, laxi, skelfiski) 1. Allt grænmetið saxað og látið mýkjast í ólívuolíu. 2. Fiskisoð og tómatar settir út í og soðið í 15-20 mín. 3. Osturinn settur út í og slökkt undir pottinum. Súpan látin standa í 30-60 mín. 4. Rjóma, hvítvíni og kryddi bætt út í og suðan látin koma upp. 5. Fiskurinn settur út í og látinn sjóða við lágan hita í augnablik. 6. Súpan borin fram með nýbökuðu brauði og góðu hvítvíni. Corleone fiskisúpa frá Sikiley (fyrir 4-5) Þessi uppskrift er í eigu sikileyskrar mafíósafjölskyldu og er notuð þegar mikið liggur við. 1 laukur 2 hvítlauksrif 3 kartöflur ífennel höfuð 3 gulrœtur 3 sellerístönglar 2 dósir niðuroðnir tómatar 1 l gott fiskisoð (eða vatn og teningur) 1 dl hvítvín 1 dl rjómi 600 gr fiskur (lúða, rœkjur og kræklingur) 1. Laukur og hvítlaukur léttsteikt í ólívuolíu í stutta stund. 2. Kartöflurnar saxaðar ásamt fennel höfðinu, gulrótunum og sellerístönglunum og þessu bætt út í laukinn. Látið krauma í stutta stund. 3. Tómötum, fiskisoði, hvítvíni og rjóma bætt út í og súpan soðin í ca. 30 mín. 4. Kryddið með salti, pipar og ítölsku kryddi eftir smekk. 5. Fiskurinn settur út i og soðinn við lágan hita í augnablik. 6. Súpan borin fram með nýbökuðu brauði og góðu hvítvíni. ókeypis til heimila og fyrirtækja atla virka daga Bónus • Hagkaup • World Class • Hreyfing • Hress Hollusta / hverjum bital \ T Ólívumar í ísskápnwn Þeir eru margir sem leggja ást á ólívur og geta ekki hugsað sér að snæða pítsu eða salat án þeirra. I flestum tilfellum er þetta áunnin ást sem tekur dágóðan tíma að stofna til því bragðið af ólivunum virkar eilítið framandi og einkennilegt við fyrstu kynni. Ólívur eru mikið not- aðar í matreiðslu Miðjarðarhafsins en hafa unnið mikið á hér á íslandi hin siðari ár.Gott er að hafa í huga að elda ólívur ekki of lengi þar sem þær verða beiskar við of mikla suðu. 1 mörgum ísskápnum leynist ein- hvers staðar hálf krukka af ólívum sem eigandinn veit ekkert hvað á að gera við. Það er ómögulegt að láta þetta hráefni fara til spillis og því fylgja hér á eftir sex ráð til þess að nýta hálfa krukku af ólívum. IBragðbætið tilbúna pastasósu úr krukku með fínlega söx- uðum ólívum, kapers og an- sjósum. Berið fram með pasta og klippið ferska basilíku út á. Bragð- góður og einfaldur réttur í miðri viku. 2Búðið til mauk úr smátt söx- uðum ólívum og nokkrum hvítlauksrifjum. Maukið í ma- tvinnsluvél þar til blandan er orðin kekkjalaus. Bætið smá ólívuolíu út í og bragðbætið með sítrónusafa. Frá- bært mauk með snittubrauði. 3Setjið blandað salat í skál, gjarnan með léttri salatsósu. Bættu fetaosti, ólívum og tómötum út í. Berið fram með ný- bökuðu focaccia brauði. 4Skerið stóra tómata í tvennt. Hreinsið úr þeim kjötið og fyllið þá með soðnum, köldum hrísgrjónum bragðbættum með pressuðum hvítlauksrifjum, ól- ívum, sítrónusafa og basil eða stein- selju. Léttur forréttur sem hentar vel á hlýjum sumarkvöldum með þurru hvítvíni. 5Saxið ólívurnar og blandið þeim saman við fitulítið majones eða sýrðan rjóma. Bragðbætið með sítrónusafa. Góð sósa með salati eða á samlokur. 6Búið til marineringu úr söx- uðum ólívum, balsamik ediki, ólívuolíu og kryddi að eigin vali. Þekjið kjúklingalæri með þessu og látið bíða í klukkustund í ísskáp. Setjið í eldfast mót með sítrónubátum og rósmarín. Hitið ofninn í 190°C og eldið í 20 mín. Snúið við og eldið í 20 mín til við- bótar. Berið fram með góðu salati og sítrónubátum. Ferskar, franskar ostrur Ferskar ostrur frá Oléron á Bretagne- skaganum í Frakklandi fást nú í Mela- búðinni sem er eini staðurinn sem selur þær ferskar. Við fáum alltaf fer- skar ostrur seinnipart fimmtudags eða á föstudagsmorgnum og hafa þær mælst sérstaklega vel fyrir hjá gestum okkar sem koma aftur og aftur í ostrurnar. Við framreiðum ostrurnar þannig að við opnum þær (pössum að Atl- antshafið leki ekki úr þeim), setjum sítrónu/lime með og framreiðum á fati á muldum ís. Ferskari verða þær ekki!!! Einnig er mjög vinsælt að setja alls konar vinaigrettur sem til dæmis innihalda ólífuolíu, salt & pipar og gott balsamedik. Ostrur má líka gratínera með osti fyrir þá sem eldci vilja þær lifandi og þá gjarnan með söxuðum charlottu- lauk og sítrónusafa. V VIN & SKEL Ostrur þykja lostæti með úrvals kampavíni og leyfi ég mér að mæla með Nicolas Feuilatte sem er á sérstöku tilboði núna í verslunum ÁTVR. Þannig að það er ekkert betra en að byrja góða veislu á nokkrum ostrum og kampavíni. KRISTJÁN NÓISÆMUNDSSON

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.