blaðið - 10.07.2006, Síða 27
blaóiö MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006
AFÞREYXNG I 21
Ég vildi að ég
' loftbelg
■ Takk fyrir spjallið
BlaöiH/Frikki
,Ég er tvítug og er oftast kölluð
Lísa. Sem stendur er ég að læra
söng í Söngskólanum í Reykjavík
og stefni á Háskóla íslands næsta
haust. Ég er yngsti meðlimur
bandsins og er án efa mesti
stuðboltinn," segir Guðrún Lísa,
söngkona hljómsveitarinnar
ízafold.
Hver var síðasta bókin sem
hafði mikil áhrif á þig?
Án efa var það The Da Vinci Code
eftir Dan Brown. Ég hef mjög mik-
inn áhuga á trúarbrögðum, uppruna
þeirra og í rauninni tilgangi ef svo
má segja. Þetta eru skemmtilegar
pælingar sem hver og einn túlkar
auðvitað á sinn hátt og ræður hvort
hann trúir þeim eða ekki. Ég hafði
ótrúlega mikið gaman af henni og
i hvert skipti sem ég les hana þá
verð ég alltaf jafn hissa á öllu en er
oft mjög sammála því sem skotið
er fram í dagsljósið. Annars les ég
meira af íslenskum bókum og þá
einna helst eftir Arnald Indriðason,
bækurnar hans eru æðislegar!
Hver er mest auðmýkjandi upp-
lifun sem þú hefur orðið fyrir?
Vá, þetta er erfið spurning og alls
ekki auðvelt að svara. Ég man í raun-
inni ekki eftir neinu einu atviki þar
sem ég var auðmýkt verulega, ætli
ég hafi ekki bara kosið að gleyma
því. Maður á aldrei að dvelja í for-
tíðinni og láta hana buga sig heldur
læra af henni og gera betur í fram-
tíðinni. Ég lærði það af minni fjöl-
skyldu að eyða frekar orku í að vera
glöð og hamingjusöm heldur en að
vera reið eða pirruð. Það kemur ekk-
ert gott af reiði.
Uppáhaldsástarsena í kvikmynd?
Ég er ekki sú minnugasta sem til
er og man því engar ástarsenur. Ég
er mest fyrir gamanmyndir. Helst
klisjumyndir því þá veit maður að
hverju maður gengur, svona eins og
að vera í París og vita ekkert hvað
mann langar í því það er svo margt
í boði og ákveða að fara á McDon-
alds því maður veit hvernig matur-
inn bragðast þar og veit að maður
verður saddur.
Hvaða frægu persónu
hefur þér verið líkt við?
Ein vinkona mín sagði við mig að ég
minnti sig á Juliu Roberts, sennilega
vegna brossins. Ég sé það samt ekki.
Annars hef ég ekki heyrt það ansi
lengi en um daginn var einhver sem
sagði við mig að ég minnti sig á Re-
ese Witherspoon í Walk the line. Ég
á eftir að sjá þá mynd svo það verður
gaman að athuga það.
Versti maturinn?
Alls ekki besta spurningin fyrir
manneskju sem er matvönd. Ég
meika ekkert svona „nýstárlegt” og
framandi. Ég er voða mikið fyrir
matarhefðirnar hennar mömmu.
Ég tek svona tímabil þar sem mig
langar bara í eitthvað eitt að borða
og núna er það túnfiskur úr dós.
Auðvitað borða ég eitthvað annað
með en ég er ótrúlega vanaföst og
vil hafa rútínu á hlutunum. Ég hef
einu sinni borðað snigil og ætli það
sé ekki með því versta sem ég hef
bragðað... seigt og vont, jakk!
Besta eða misheppnaðasta lygi
sem þú hefur spunnið upp?
Þessari spurningu gæti ég aldrei
svarað, ég er þekkt fyrir að vera
hraðlygin en flestar „lygarnar” eru
oftar en ekki algjör þvæla sem er oft-
ast hægt að sjá í gegnum. Ég er samt
ekkert mikill lygari svona tæknilega
séð, ég er meira bara svona að plata.
Það er ekki alveg eins slæmt. Sko, ég
hef oft platað fólk alveg stórkostlega
og svo á ég það til að vera alvarleg
og það frekar lengi svo að fólk veit
ekki alveg í hvorn fótinn það á að
stíga. En það endar allt vel... svona
oftast a.m.k.
Ef þú gætir verið hvar sem er í dag?
Þá væri ég í loftbelg svífandi í
kringum jörðina
Fimm hlutir sem þú
gætir aldrei verið án?
1. Lyklakippan min
2. Debetkortið mitt
3. Síminn minn
4. Þar sem mamma er ekki hlutur
þásegi égvatn
5. Rúmið mitt.
Er líf eftir dauðann?
Já ég trúi því. Ég er frekar hrædd við
dauðann og það að deyja en ég er
handviss um að ég eigi eftir að hafa
eitthvað fyrir stafni þegar ég er farin.
Mér finnst það góð tilhugsun að vita
að þeir sem ég hef misst séu þarna og
ég eigi eftir að hitta þá aftur. Ef ekki
þá yrði ég mjög sorgmædd. Til hvers
að vera mennta sig og afla sér þekk-
ingar í þessu lífi ef við bara deyjum
og ekkert meir? Það hlýtur að vera
meira til.
Ömurlegasta starf sem
þú hefur haft?
Ég hef unnið á fáum en góðum
stöðum og alltaf unnið með ffábæru
fólki svo ég hef aldrei litið á neitt starf
sem ömurlegt. Ég hef eignast mína
bestu vini í gegnum vinnurnar mínar
svo ég kvarta ekki. En auðvitað finnst
manni ekkert sérstaklega gaman í
þessum þjónustustörfum. Fólk sí-
kvartandi og ekkert getur maður gert
nema bara sagt „já ég er sammála þér,
þetta er alltof dýrt. Eg skal koma því
áleiðis til yfirmanns míns.“ Ég vinn
í ísbúð núna en fólk hneykslast ein-
hvern veginn á því, ég fæ svona „jiii,
þú ert búin með menntaskóla og þú
ert að vinna í ísbúð” viðmót. Mér
finnst það ágætt, góður vinnutími.
Ég er frekar sjálfstæð svo sem og get
oftast fengið ffí ef eitthvað kemur
upp á hjá hljómsveitinni. Svo er ísinn
svo góður en auðvitað hefur allt sína
kosti og galla.
Hvaða lykt finnst þér góð?
Af nýslegnu grasi, karamelludýfu og
þegar mamma eldar... Mmm...
Tvö orð fyrir kosti þína og
tvö orð fyrir gallana:
Kostir: glöð, jákvæð
Gallar: morgunfúl, óstundvís
Glœsileg dagskrá á fjölskylduhátíðinni í Galtalœk
Það er löng hefð fyrirþví að fslendingarflykkist unnvörpum út á land um verslunarmannahelgina ogskemmti sér saman á útihátíðum
Stuðmenn eru kröftugir hvar sem þeir stíga á svið. Mynd/EggeriJóhannessoa
Blásið verður til fjölskylduhátíðar
í Galtalæk um verslunarmanna-
helgina í ár. Hátíðin hefur í
gegnum árin verið ein sú fjölmenn-
asta og vinsælasta á landinu og
nú í ár verður dagskráin mjög
glæsileg. Stuðmenn ásamt Birgittu
Haukdal, Valgeiri Guðjóns og Stef-
áni Karli hafa boðað komu sína.
Paparnir og Skítamórall verða
cinnig á hátíðinni og síðast en ekki
síst hefur gamla góða Sumargleðin
með Ragga Bjarna, Hemma Gunn,
Ómari Ragnarssyni, Þorgeiri Ást-
valds og Magga Prins Póló ákveðið
að koma saman að nýju í þetta
eina skipti.
Hljómsveitin Skítamórall er meðal þeirra
sem spila mun í Galtalæk í sumar.
Sumargleðin saman á ný
Hápunktur helgarinnar verðuir án efa
endurkoma Sumargleðinnar. Þó ný-
liðar komi og fari eru þeir félagarnir
Raggi Bjarna, Hemmi Gunn,
Omar Ragnarsson, Þor-
geir Ástvalds og Maggi
Prins Póló enn
meðal dáðustu
skemmtikrafta
þjóðarinnar.
í fyrra átti
Raggi eina
söluhæstu
plötu ársins.
I vetur hefur
Hemmi Gunn
stjórnað þættinum
Það var lagið á
Stöð 2, Ómar
Ragnarsson
heldur áfram að gleðja landsmenn í
Sjónvarpinu og á víðum velli. Þorgeir
,Ég fer í fríið“ Astvalds hefur stjórnað
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni sem í
áraraðir hefur verið einn vinsælasti
síðdegisþáttur landsins og Prins Póló
er eins og allir vita ennþá vinsælasta
súkkulaði landsins eftir að Magnús
Ólafs söng um bitann fyrir tæpum 30
árum!
Idolstjörnur mæta á svæðið
Þarna verður hljómsveitin ízafold
sem átti stórleik í Idolinu í vetur,
Snorri Idol-sigurvegari kemur fram,
Ingó og Bríet Sunna verða líka í Galta-
læk. Enn er verið að bíða eftir því að
Nylon-flokkurinn staðfesti komu
sína en dagskrá hans næstu mánuði
er enn nokkuð óljós. Aldrei að vita
hverjir slást í hópinn en eitt er víst að
gleðin heldur áfram.
Fjölskylduhátíð í vímu-
lausu umhverfi
Skipuleggjendur hátíðarinnar leggja
áherslu á glæsileika og ferskleika en
á sama tíma er haldið í gömlu góðu
Galtalækjargildin sem eru flestum
kunnug; íjölskylduhátíð í vímulausu
umhverfi. Hin árlega flugeldasýning
verður á sínum stað sem og varðeldur-
inn sem eru fastir liðir um verslunar-
mannahelgina í Galtalæk.
Ævintýri við inngang í víti
Náttúruperlan Galtalækjarskógur
liggur undir rótum Heklu og er gróð-
urvin efst í Landsveit og er aðeins 90
mínútna akstur þangað ffá Reykjavík.
Þar eru fallegar gönguleiðir og stutt er
í veiði, hestaleigu, sund o.fl. Yfir Galta-
lækjarskógi í austri gnæfir frægasta
eldfjall íslands, Hekla, afútlendingum
lengst af talin aðalinngangurinn í víti,
ef ekki helvíti sjálft. Nafh fjallsins
kemur þó úr allt annarri og friðsælli
átt en orðið helda þýðir stuttur hettu-
kufl. íslendingar bera þó óttablandna
virðingu fyrir þessum hettukufli því
Hekla hefur gosið 18 sinnum frá land-
námi, fyrst 1104 og síðast árið 2000 og
oft valdið miklu tjóni. Auk þess hefur
gosið fimm sinnum i næsta nágrenni
fjallsins. Á síðustu öld urðu gosin 7,
þar af 2 stór árin i9470g 1970. í gosinu
1947 hækkaði Hekla um 50 m.
Undir verndarvæng Heklu hefur
svæðið, sem er frá náttúrunnar hendi
einstaklega vel skapað til útivistar og
hátíðahalda, vaxið og dafnað.
Bindindismótið í Galtalæk er fyrir
löngu orðið landsþekkt og allt frá ár-
inu 1967 hafa verið haldnar útihátíðir
í Galtalækjarskógi þar sem mest hafa
komið saman um 9000 manns. Færri
vita að tjaldstæðin í skóginum eru
opin allt sumarið fólki sem vill dvelja
í friðsælu og fögru umhvefi.
kristin@bladid.net
Hins ógleymanlega Sumargleöi, þar sem meðal annars Ómar, Raggi
Bjarna og Hemmi Gunn mun birtast landanum á ný.