blaðið

Ulloq

blaðið - 20.07.2006, Qupperneq 8

blaðið - 20.07.2006, Qupperneq 8
8 I FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaöið Hafnarfjörður: Matarolía í holræsi Lögreglan í Hafnarfirði var látin vita að olía læki upp úr holræsi við Fjarðargötu í Hafnarfirði. Þegar farið var að athuga málið kom í ljós að mat- arolía hafi lekið frá veitingastað í nágrenninu. Slökkvilið var feng- ið til þess að þrífa olíuna upp. Vestmannaeyjar: Helgi S. Gunnarsson hjá Nýsi: Bankinn á bremsunni ■ Lánveiting stöðvuð tímabundið ■ Ekki búið að blása verkefnið af ■ Ekki okkar frumkvæði, segir bankinn I ■■■■ Málningu sprautað á veggina Sprautað var úr slökkvitækjum og lakkmálningu var sprautað á veggi og vélar i malbikunarstöðinni í Vestmannaeyjum. Lögreglan leitar þeirra seku. Ef einhverjir urðu varir við grunsamlegar mannaferðir eru þeir beðnir um að hafa samband við lögreglu. i's Verslunartækni www. verslun. is Slmi:S3513D0 Draghils 4 110 Rsykjsvlk vfslunQvrslun.it EftirTrausta Hafsteinsson „Allar framkvæmdir við Egilshöll- ina hafa verið settar i bið. Það er ein- faldlega vegna þess að fjármálastofn- anir hafa stöðvað lánveitingar í allar svona framkvæmdir,“ segir Helgi S. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Nýs- is. Samkvæmt þessu virðast bank- arnir vera að halda að sér höndum varðandi lánveitingar til einkafyrir- tækja þvi nú hefur fyrirhugaðri fram- kvæmd við stækkun Egilshallarinnar á þessu ári verið frestað um óákveð- inn tíma. Fyrirtækið Nýsir hf. er langt komið með hönnun haUarinnar þar sem reisa á nýtt bíóhús, keilusal og sýningarsvæði undir henni. Helsti samstarfsaðili fyrirtækisins, Lands- bankinn, hefur ákveðið að bíða með ákvörðun varðandi lánveitinguna í verkefnið í nokkra mánuði. „Eins og er í umræðunni þá eru menn almennt að bremsa af, ekki bara í opinberum framkvæmdum heldur líka hjá einkafyrirtækjum. Þetta er eitt af því sem sett hefur verið á bið. Mig grunar að þetta taki einhverja mánuði og svo vonandi komumst við í gang með þetta aftur,“ segir Helgi. FRJALST.ÓHAÐ 8. ÓKEYPIS! Oflramboð á nýbygginoum: Bankar hætta að lána ■ IbúAamarkaAihwotafýrt ■ FAái hatttr vtA aA bysola ■ Ertttt aA M«a nýtar fcúAtr Forsíða Blaðsins 13. júlí. Blaðið fjall- aði nýverið um að bankamir væru hættir að lána til íbúðakaupa. Aðspurður segir Helgi að svipaða sögu er að segja af öðrum stórfram- kvæmdum á einkasviði og flestar fjármálastofnanir haldi nú að sér höndum. „Þetta hlýtur að vera bara tíma- bundin töf á framkvæmdum og við sjáum enga ástæðu til að leita eftir öðrum samstarfsaðilum. Það er ekkert búið að blása verkefnið af eða neitt svoleiðis, við bíðum bara spennt eftir ákvörðun bankans,“ seg- ir Helgi. Elín Sigfúsdóttir, framkvæmda- stjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans, staðfesti í samtali við Blaðið að lána- stofnanir almennt haldi að sér hönd- um hvað varðar stórframkvæmdir á einkasviði. „Þetta á aðallega við um þegar óskað er eftir lánum til byggingar fjölbýlishúsa eða sumarhúsasvæða en hefur ekki enn haft afgerandi áhrif á byggingu einbýlishúsa eða sérbýla. Þannig mælum við með þvi við okkar viðskiptavini að ekki sé rétt að standa í slíkum framkvæmd- um núna en auðvitað eru sumir það sterkir að þeir halda áfram sjálfir þrátt fyrir okkar ráðleggingar," seg- ir Elín. Varðandi frestun framkvæmda við Egilshöll telur EHn það fyrst og fremst hafa verið ákvörðun Nýsis, sem þó hafi verið tekin í samráði við fyrir- tækjasvið Landsbankans. „Þeir eru náttúrlega mjög víða í framkvæmd- um og við settum þeim ekki stólinn fyrir dyrnar i þessu verki. Nýsir er mjög góður viðskiptavinur bankans og ég held að þetta sé aðallega spurn- ing um tímasetningar,“ segir Elín. Lánastofnanir eru samtaka í þess- um efnum og telur Elin að í það minnsta fram á haustið verði rólegur tími hvað stórframkvæmdir varðar enda eigi það að vera svo til að halda sem mestu jafnvægi. Miðausturlönd: Jónas áfrýjar Var dæmdur íþriggja ára óskilorösbundið fangelsi ÍHéraðsdómi Reykjavikur ísíðasta mánuði. Mál Jónasar Garðarssonar: Áfrýjar til Hæstaréttar Jónas Garðarsson, fyrrverandi formaður Sjómannafélags Reykja- víkur, hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem var kveðinn upp i síðasta mánuði. Þar var Jónas dæmdur í þriggja ára óskilorðsbundið fangelsi fyrir mann- dráp af gáleysi þegar hann sigldi bát í strand undir áhrifum áfengis á Viðeyjarsundi siðastliðið haust með þeim afleiðingum að tveir létust. Jónas krefst sýknu en ákæruvaldið mun fara fram á þyngri dóm yfir Jónasi, en þeim sem hann fékk í Hér- aðsdómi Reykjavíkur. ÁTVR: Fimm miljónir til Gullfoss Umhverfisstofnun hefur feng- ið fimm milljón króna styrk úr Pokasjóði ÁTVR til framkvæmda við Gullfoss. Jónína Bjartmarz um- hverfisráðherra tók við framlaginu en þetta er í þriðja sinn sem ÁTVR hefur milligöngu um styrkveitingar á svæðinu. Peningarnir verða notaðir til að ljúka við gerð plankstéttar sem ligg- ur frá útsýnispalli að gestastofunni. Íýndu meiftaratakta við ?rillið! Steikar- og grillsmjör ásamt grillsósum frá meistarakokkum Argentínu kóróna Ijúffenga máltíð. Vopnahlé ekki í sjónmáli Hart var barist á landamærum ísra- els og Líbanon í gær. Loftárásir ísra- elsmanna á skotmörk í Líbanon héldu áfram. ísraelskir hermenn fóru yfir landamærin og gerðu árásir á búðir Hizbollah-samtakanna. ísraelar hafa til þessa forðast að senda landgöngu- liða inn fyrir landamærin en reitt sig aðallega á stórskotalið og árásir úr lofti og frá sjó. Talsmenn í hernum hafa ekki útilokað að gripið verði til meiriháttar árásar langönguliðsins á næstunni. Vígamenn Hizbollah svör- uðu fyrir sig með áframhaldandi eld- flaugaárásum á ísraelskar borgir. Ein eldflauganna sprakk í hinni helgu borg Nasaret í ísrael. Gærdagurinn markaði áttunda dag átakanna sem hófust í kjölfar þess að vígamenn Hizbollah rændu tveimur ísraleskum hermönnum við landamærin og fluttu þá til Líbanon. Um þrjúhundruð manns hafa fallið í átökunum til þessa og um hálf millj- ón manna eru á vergangi. I kjölfar stigmagnandi átaka héldu ríki heims að flytja þegna sína frá Líbanon í gær. Israelsk stjórnvöld hafa lýst því yfir að aðgerðir þeirra munu hugs- anlega halda áfram næstu vikurnar. Þær hafa tvíþætt markmið. I fyrsta lagi er þeim ætlað að uppræta getu vígamanna Hizbollah til að gera árás- ir á ísrael frá suðurhluta Líbanon og í öðru lagi að frelsa hermennina sem eru í haldi samtakanna. Að sögn tals- manns ísraelska hersins hafa loftárás- irnar eyðilagt um helming af vopna- búri Hizbollah en að meiri tíma þurfi til þess að ljúka verkinu. Þrátt fyrir stigmagnandi átök lýsti Shimon Per- es, aðstoðarforsætisráðherra fsraels, því yfir í gær að ekki yrði gripið til að- gerða gegn Sýrlendingum og írönum, en þeir eru sagðir standa við bakið á vígamönnum Hizbollah í Líbanon. Bardagar gærdagsins og yfirlýsing- ar ísraelsmanna um áframhaldandi aðgerðir gegn Hizbollah draga úr lík- unum á að vopnahléi verði komið á í bráð og að kröfu margra ríkja um Bæn f skugga átaka Israelskur stórskotaliðsmaður fer meö bænir við landamæri Israels og Libanon umsvifalaust vopnahlé verði hlýtt. Þrátt fyrir það virðist margt benda til þess að stjórnvöld í Bandaríkjun- um og í ísrael hafi komið sér saman um hvernig eigi að leysa deiluna og binda endi á átökin. Bandaríska blað- ið New York Times segir frá því í gær að Condoleezza Rice muni fresta heimsókn sinni til svæðisins um nokkra daga til að gefa ísraelsmönn- um aukið svigrúm til að ná fram hernaðarlegum markmiðum sínum í aðgerðinni gegn Hizbollah í Líban- on. I kjölfar þess munu Bandaríkin reyna að afla því stuðnings að alþjóð- legir friðargæsluliðar, sem hafa sterkt umboð frá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til þess að koma í veg fyrir árásir frá Hizbollah, gæta landamæra og suðurhluta Líbanon.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.