blaðið - 20.07.2006, Side 14
14
FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaðið
deiglan
He>inlan(®hlaHiH n
deigian@bladid.net
Verk eftir Bach
Douglas A. Brotchie leikur á hádegistónleikum á vegum Alþjóðlegs
orgelsumars í Hallgrímskirkju. Á efniskránni eru verk eftir J.S. Bach,
Mendelssohn Gárdonyi og C.M. Widor en tónleikarnir hefjast klukkan 12:00.
m
Anna Maria Pálsdóttir,
garðyrkjuverkfræðingur
Flytur fyrirlestur i Grasagarðinum.
|
Hvað
ao aer
FIMMTUDAGURINN 20. JULI
KL. 17:00 TÓNLIST
Tónleikaröð Grapevine og Smekk-
leysu. Að þessu sinni kemur fram
hljómsveitin Gavin Portland. Tónleik-
arnir fara fram í Galleri Humar eða
frægð i Kjörgarði, Laugavegi.
KL. 20:00 LEIKLIST
Sýningin Footloose verður sýnd í
kvöld en hún erfull af mögnuðum
dansatriðum og lögum sem slógu
i gegn á 9. áratugnum í útsetningu
Þorvaldar Bjarna. Má til dæmis nefna
lögin Footloose, Holding OutFor A
Hero, Almost Paradise og Let's Hear
It For The Boy. Tónlistina þekkja
flestir enda komust mörg lögin á
topp 40-istann í Bandaríkjunum á
sinum tíma.
Ikvöld fer fram fyrirlestur í
Grasagarðinum í Laugardal
þar sem Anna María Pálsdóttir,
garðyrkjuverkfræðingur og sum-
arstarfsmaður Grasagarðsins,
mun tala um blómengi. Grasagarður
Reykjavíkur stendur fyrir tilraunum
með margs konar blómengi og mun
gestum gefast kostur á að fræðast um
sáningu og gerð slíkra engja.
Blómengi minna eftirsótt
„Efni fyrirlestursins verður eig-
inlega tví- til þríþætt. Ég ætla að
segja fyrst almennt frá fyrirbærinu
blómengi, hvað það er, og hvaða
plöntur tilheyra blómengi. Ég geng
þá aðallega út frá hvernig þetta er
í Svíþjóð þar sem ég þekki til. Það
vill líka svo til að Grasagarðurinn
er að gera tilraunir með blómengi
eða fræblöndur sem eru frá Svíþjóð.
Það passar því vel að ég noti mína
kunnáttu frá Svíþjóð, ég bý þar, við
þær rannsóknir sem verið er að gera
hérna,“ segir Anna María.
„Ég mun þá fjalla um muninn á
blómengi og akurengi. Hann liggur
fyrst og fremst í því hvaða tegundir
eru í hvaða engi en plöntur á akur-
engi eru venjulega einærar því þar
er slegið árlega. Aftur á móti eru
fjölærar plöntur í blómengi sem
blómstra ár eftir ár. Blómengi er
þá oft minna eftirsótt því það þykir
ekki jafn snyrtilegt þar sem því er
leyft að vaxa óáreittu," segir Anna
María.
Breyta ásýnd
grænna svæða
„Síðan ætla ég
að segja frá þeim til-
raunum sem eru í gangi
hérna og hvaða not
Reykjavíkurborg hafi af
þeim við að breyta ásýnd
grænna svæða í höfuðborginni. Þá
munum við taka þær plöntur sem
byrjaðar eru að blómstra og segja
frá þeim ef það er eitthvað sérstakt
og áhugavert við þær,“ segir Anna
María. Þá mun fólki verða kennt
hvernig það á að fara af stað með
sitt eigið blómengi, hvaða leiðir eru
færar í því sambandi.
Anna María segir að í Reykjavík
séu mörg græn svæði sem eru slegin
en hún væri
til í að sjá fleiri
blómengi. „Það
er vonandi að
það verði með tím-
anum en Reykjavík-
urborg hefur tekið
mjög vel í slíkar hugmyndir
á umhverfissviðinu. Það minnkar
sláttukostnað heilmikið og síðan
er það griðarstaður fyrir skordýr,
góðu skordýrin ef maður getur sagt
svo. Síðan taka engin á móti regn-
vatni og vinna á móti koltvísýringi,
þannig að það er allt umhverfisvænt
í alla staði,“ segir Anna María.
Fyrirlesturinn er frá 20:00-
21:00, ókeypis aðgangur og allir
velkomnir.
Blómengi átl
lÆðiÍ/SfCjiVU-jHftli'
KL. 21:00 BÆNASTUND
Kyrrða-og fyrirbænastund er hvert
fimmtudagskvöld í Vídalínskirkju i
Kirkjuhvol við Kirkjulund klukkan 21.
Gott er að Ijúka deginum og undirbúa
nóttina í kyrrð kirkjunnar og bera
þar fram áhyggjur sinar og gleði.
Tekið er við bænarefnum af prestum
og djákna. Boðið upp á kaffi í lok
stundarinnar.
KL. 20:00 GANGA
i kvöld er ganga í röð gangna um
„Græna trefilinn" í fræðslusamstarfi
skógræktarfélaganna og KB-banka.
Skógræktarfélag Hafnarfjarðar hefur
umsjón með þessari göngu. Mæting
er á stæði við fánaborg við Kaldárs-
elsveg við Gráhelluhraun. Gengið
verður um útivistarskóga Skógrækt-
arfélags Hafnarfjarðar í Gráhellu-
hrauni og Höfðaskógi undir leiðsögn
starfsmanna félagsins. i göngulok
verður boðið upp á hressingu i Selinu
i boði félagsins.
Fullelduðu kjúklingabitarnir frá Matfugli á grillið, í ofninn eða á pönnuna.
Með hverjum bakka fyigir Léttsósa frá Salathúsinu.
- Á grillið i örfáar mínútur og maturinn er til!
Síbyl Andri Ólafsson c
mundarson Olguson sl
Síbylur á Hljómalind
I kvöld á Kaffi Hljómalind eru tónleikar sumarhóps-
ins Síbyls sem samanstendur af þeim Andra Ólafssyni
og Finni Guðmundarsyni Olgusyni. Þeir munu þá fá
góða gesti til að halda fjörinu gangandi.
„Við spilum reyndar mikið með öðrum, þá bæði
okkar efni og annarra. Við byrjuðum að spila saman
síðasta vor með sumarhópnum Lama en Síbylur varð
til í sumarstarfi Hins hússins," segir Andri.
Hljómsveitin leikur stef úr útvarpi, sjónvarpi og
kvikmyndum og segir Andri að hlustendur muni
kannast við ýmislegt sem flutt verður á tónleikunum.
„Við tökum Derrick til dæmis og fleiri sjónvarpsþætti
eins og Matlock. Þá tökum við auglýsingar á borð við
Dressmann og það sem er leikið undir lesnum auglýs-
ingum á Rás 2. Þá munum við taka stefið úr Nýjasta
tækni og vísindi auk fjölda stefa úr kvikmyndum,"
segir Andri.
Eins og fram hefur komið munu margir góðir
gestir spila með þeim félögum í Síbyl á tónleikunum.
„Eigum við ekki að skjóta á að um 75% af tónleikunum
muni fólk spila með okkur. Stundum er það bara
trommari og stundum er það lítil hljómsveit. Svo er
það númer þar sem við erum með níu manns í með
okkur,“ segir Andri.