blaðið - 20.07.2006, Síða 16

blaðið - 20.07.2006, Síða 16
16 FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaðiö vísindi Menn ganga á tunglinu Á þessum degi árið 1969 urðu þeir Neil Armstrong og Edwin Aldrin fyrstu mennirnir til að stíga fæti á tunglið. Nærri 700 milljónir manna um allan heim fylgdust agndofa með í beinni útsendingu. Mýturnar kvaddar Karlmenn hugsa um kynlíf á sjö sekúndna fresti Frá náttúrunnar hendi eru menn þannig gerðir að hugur þeirra hvarflar oft að því að fjölga mannkyninu. Það er þó vísindalega ómögulegt að mæla nákvæmlega að hvaða marki þessar hugsanir hafa áhrif á þeirra daglega líf. Það virðast þó vera stórlegar ýkjur að hugmyndin um kynlíf ásæki karl- menn á sjö sekúnda fresti. Eldingu slær aldrei niður á sama staðinn tvisvar Eldingum slær oftast niður á þá staði sem standa hátt yfir sjó. Eldingu slær t.d. niður í Empire State bygginguna allt að 25 sinnum á hverju ári. Kettir lenda alltaf á fjórum fótum Rannsóknir hafa sýnt að kettir lenda yfirleitt alltaf á fótunum ef þeir falla úr umtalsverðri hæð. Þetta breytist hins vegar ef kettir detta úr mjög lítilli hæð en þá lenda þeir í ýmsum stell- ingum. yrir langa löngu eigr- uðu risavaxin pokadýr um ástralskar lendur. Á svipuðum tíma réðu kaf- loðnir mammútar ríkjum á ströndum Kaliforníu. Milljónum ára áður spígsporuðu risaeðlurnar óáreittar um jörðina. Þessar skepnur eru allar löngu horfnar sjónum, þær dóu út fyrir milljónum ára. Það merkilega er að þær skepnur sem deyja út eru oftar en ekki mjög stórar og þau dýr sem fylltu skarð þeirra voru mun minni í sniðum. Loftsteinn gerir rúmrusk Vísindamenn eru almennt sam- mála um það að stór loftsteinn hafi skollið á Mexíkóflóa fyrir u.þ.b. 65 milljónum ára. Þessi loftsteinn er talinn hafa hrundið af stað keðju atburða sem leiddu til þess að risa- eðlur dóu drottni sínum. Hvort sem loftsteininum umrædda er um að kenna eða ekki þá sýna steingerv- ingar að á þessum tíma stráféllu risaeðlur og önnur risavaxin dýr víða um heim. Hins vegar virðast fuglar og önnur minni spendýr hafa haft meiri burði til að lifa þessa tíma af. Þessi staðreynd hefur valdið vís- indamönnum víða um heim heila- brotum árum saman. Ljóst er að stóru dýrin áttu erfitt með að fela sig og finna sér skjól þegar hættur steðjuðu að líkt og litlu dýrin gátu gert. Einnig er möguleiki að plöntur sem voru aðaluppistaðan í fæðu risa- eðlanna hafi horfið af sjónarsviðinu og þær því átt erfitt með að afla sér fæðu. Vísindamenn hafa líka komið fram með þá tilgátu að sökum allra umbreytinganna hafi risaeðlurnar verið svo þjáðar af streitu að þær hafi verið kynferðislega áhugalausar og átt erfitt með að fjölga sér. Ef lofts- lagsbreytingar hafa valdið því að öll yngri dýrin féllu í valinn þá segir það sig sjálft að það hefur þurft til mikla endurnýjun. Kynkaldar risaeðlur Auk minni spendýra tókst skjald- bökum og krókódílum að komast vel frá þessum erfiðu tímum. Þessi dýr skilja eftir sig ótal egg og þau njóta einnig þeirra forréttinda að geta falið sig undir vatnsyfirborði sem kemur sér óneitanlega vel við ýmsar aðstæður. Stór spendýr verða seint kyn- þroska og dánartíðni þeirra fyrir kynþroskaaldur er nokkuð há. Þessi staðreynd stuðlar augljóslega að út- rýmingu og kann hún að hafa haft áhrif á dauða mammútana. Leifar þessara stórvöxnu spendýra hafa fundist í jarðlögum allra meginland- anna nema í Ástralíu og Suður-Amer- íku. Leifarnar hafa einungis fundist í jarðlögum frá Pleistósen-tímabilinu sem nær yfir tímann frá því fyrir i,6 miljónum ára fram að lokum ísaldar fyrir 10.000 árum. Mögulegt er að of- veiði hafi haft áhrif á dauða þeirra. Dýrategundir deyja reglulega út á jörðinni. Síðustu 250 milljón árin má segja að stór dýrategund hafi dáið út á 26 milljón ára fresti og er síst útlit fyrir að sú tíðni lækki í framtíðinni. Maðurinn er líklega ógn nútímans þegar kemur að út- rýmingu dýrategunda og erum við að hluta til ábyrg fyrir dauða margra tegunda. Nærtækasta dæmið fyrir okkur íslendinga er líklega geirfugl- inn góði en talið er að geirfuglar hafi verið margar milljónir áður en menn fóru að veiða hann í stórum stíl. Upp úr 1800 fór að halla undan fæti hjá geirfuglinum sökum ofveiði. Geirfuglinn var veiddur kjötsins og fjaðranna sem voru notaðar í fatnað. Margar hvalategundir hafa látið á sjá af sömu orsökum og stofn afr- íska fílsins hefur minnkað til muna síðstu 30 árin enda tennur hans og bein eftirsótt vara. Því er ljóst að maðurinn þarfi að hemja græðgi sína og fara vel að hinum stóru skepnum ef þær eiga að deila með okkur jörðinni í framtíðinni. Slátturvélamarkaðurinn Ný verslun á Vagnhöfða 8 (sama gata og Bílabúð Benna) S: 517 2010 mN.slanuvei.is . Flymo loftpúðauélarnar partner Rafmagns uélsög komnar Verð frá 19.900.- 5] Electrolux Bestu verðin í bænum \ % með búkka Verðkr. 9.900- PARTNER Bensín vélsög Verðkr. 14.900- ðtrúlegt verð Væntanlegur Fvrirfram pantanir seldarábessuverði 19,5 HöVökvaskiptur 107 cm slátturbreidd Verð kr. 259.000,- m \ % \ X 4HÖ m/drifi og 751. safnara Verð kr. 38.900- \v tt m, Nftt Briggs&Stratton orf 4gengis (barfekki að blandaolíuvið bensín minni hávaði) Verð kr. 26.900,- Verð áöurkr. 37.901

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.