blaðið - 20.07.2006, Page 28
28 I DAGSKRÁ
FIMMTUAGUR 20. JÚLÍ 2006 blaðið
Það er margt skrítið og skemmtilegt sem murr
trufla þig i dag. Njóttu þess að vera til en reyndu
samt að hafa augun á boltanum og miða i mark
því það er takmarkið.
©Naut
(20. apríl-20. maQ
Notaðu alla þina krafta til þess að ná markmiðun-
um sem þú hefur sett þér. Fjölskyldan þín mun
styöja þig og fólkið i kringum þig mun ekki reyna
að hægja á þér, þú getur allt sem þú vitL
©Tvíburar
(21. mai-21. júnO
Þú ættir að einbeita þér að framtíðinni því þar
liggja tækifærin. Byrjaðu að skipuleggja og ákveða
hvað þú ætlar að gera því þá verður auðveldara að
byrja á hlutunum.
©Krabbi
(22. júnf-22. júlf)
Það gæti gert þér gott ef þú færir úr amstri hvers-
dagsleikans og gerðir eitthvað skemmtilegt þér til
dægrastyttingar. Hugsaðu um hvað þér finnst virki-
lega skemmtilegt og gerðu það!
®Ljón
(23.JÚIÍ-22. ágúst)
Það er mikill hávaði og skarkali í kringum þig.
Reyndu að útiloka þig frá hávaðanum og einbeita
þér aö þvi sem skiptir máli í raun og veru.
«|V Meyja
(23. ágúst-22. september)
Þín persónulegu vandamál munu taka skref í aðra
átt í dag. Þú munt sjá að það sem þú hélst að væri
stðrt og mikið vesen er í raun eins og sandkorn f
samanburði við þá gleði sem í lífi þínu er.
Vog
(23. september-23.október)
I dag mun það renna upp fyrir þér hversu miklu
máli litlu hlutirnir skipta þig. Þú sérð að þessi lífstíll
sem þú hefur tileinkað þér að undanförnu hentar
þér ekki lengur, njóttu litlu hlutanna.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Þú hefur töglin og hagldirnar i nánast öllum mál-
um sem þig varða i dag. Það er í raun ekkert sem þú
ert ekki fær um að afreka því að þú ert jákvæðu(ur)
og dugleg(ur).
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Það er einhver sem er að fara með þig í ferðalag.
Þetta er ekki stór eða langt ferðalag en það mun
koma þér að óvörum og þú munt gleðjast í hjarta
þinu yfir þvi að viðkomandi hugsar svona fallega
til þin.
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Vertu fyrst(ur) til að tala um viðkvæm mál því að
þú ert manneskjan til þess að gera það. Þú gætir
átt langar og innihaldsríkar samræður sem gætu
leitt til góðrar niðurstöðu.
Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Þú þarft að taka ákvarðanir á erfiðum timapunkt-
um og það gefst ekki alltaf tími til að hugsa málin.
Reyndu að taka réttar ákvarðanir og hugleiddu
það sem þú þarft að taka með í reikninginn.
©Fiskar
(19.febrúar-20.mars)
Þú ert alveg að komast aö gatnamótum þar sem
þú þarft að velja nýja leið í lífi þínu. Á leiðinni eru
margar vísbendingar sem leiðbeina þér með það í
hvaða áttþú ættiraðfara.
<
ö
I
_I
<
-)
£L
- HLAUPTU í BÓKASAFNIÐ
Lestrarmaraþon
fyrir alla í allt sumar.
Því fleiri bækur sem þú lest
því meiri möguleikar á að
vinna. Veglegir vinningar
dregnir út á Menningarnótt.
m
kOKÚAKSÖKAJAIN
UYKJAVUUR
S: 563 1717 - borgarbokasafn.is
HEILLANDI STEF
- 1 Fjölmiðlar
Kolbrún Bergþórsdóttir
Sjónvarpsdagskráin á þessum
svokölluðu sumarmánuðum er ekki
nægilega góð. Síðastliðið þriðjudags-
kvöld settist ég þó vongóð fyrir
framan sjónvarpið til að horfa á
breskan glæpaþátt. Þetta reyndist
vera einn af þessum bresku verka-
lýðsmorðþáttum þar sem allir eru
skítugir, ljótir og geðvondir. Þegar
búið var að myrða fimm konur á
hrottalegan hátt missti ég áhugann
og fór að lesa Línu langsokk. Eg er
of viðkvæm til að geta horft á svona
þætti. Ég vil snyrtilega morðþætti
þar sem ástkonan myrðir eigin-
konu elskhuga síns með eitri - eða
eiginkonan myrðir ástkonuna - eða
eiginmaðurinn myrðir eiginkon-
una - eða ástkonuna - eða jafnvel
báðar. Það eru ótal tilbrigði við
þetta sígilda stef og þau eru öll jafn
heillandi. Hvað skyldu margir hafa
framið svona morð í huganum?
Ég bara spyr en er ekki viss um að
ég vilji vita svarið. Prósentutalan
væri sennilega áfellisdómur yfir
siðmenningu okkar. Ég vil samt sjá
fleiri sakamálamyndir þar sem
fólk sem er rólegt og pent á yf-
irborðinu missir fullkomna
stjórn á sér vegna ástríðu-
þrunginna tilfinninga
og iðrast svo í lokin.
P.S. Aukþess legg
ég til að Strœtó sanni
að það sé þjónustufyrir-
tœki og lagi strætisvagna-
ferðir í Árbœjarhverfinu.
kolbrun@bladid.net
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
SJÓNVARPIÐ
08.00 Opna breska meistaramótið í golfi Bein útsending frá mótinu sem fram fer á Royal Liverpool golf- vellinum dagana 20. til 23. júlí.
18.30 Táknmálsfréttir
18.40 Sögurnar okkar(7:i3
19.00 Fréttir, íþróttir og veður
19.35 Kastljós
20.10 Hálandahöfðinginn (8:10) (Monarch oftheGlenVI)
21.00 Kastljós - molar
21.15 Sporlaust (21:23) (Without a Trace) Bandarísk spennuþáttaröð um sveit innan Alríkislögreglunnar sem leitar að týndu fólki. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.
22.00 Tiufréttir
22.25 Mannamein (1:10) (Bodies) Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi barna.
23.25 Aðþrengdar eiginkonur (24:47) (Desperate Housewives II) e.
00.10 Kastljós Endursýndur þáttur.
00.40 Dagskrárlok
■ SIRKUSTV
18.30 Fréttir NFS
19.00 Island í dag
19.30 SushiTV (6:io) (e)
20.00 Seinfeld (2:22) (The Glasses).
20.30 Twins(8:i8)(HorseSense)
21.00 Killer Instinct (8:13) (Forget Me Not)
22.00 Pípóla (2:8)
22.30 X-Files (Ráðgátur) Sirkus sýnir X-fi- lesfrá byrjun!
23.20 Smallville (10:22) (e) (Fanatic)
00.05 My Name is Earl (e) (Joy's Wedd- ing)
00.30 Rescue Me (8:13) (e)
01.15 Weeds (8:10) (e)
01.45 Seinfeld (2:22) (The Glasses)
\\ STÖÐ2
06.58 ísland í bítið
09.00 The Bold And The Beautiful
09.20 Ífínuformi 2005
09.35 Martha (Donny Osmond)
10.20 Alf (Geimveran Alf)
10.45 3rd Rock from the Sun (Þriðji steinn frá sólu)
11.10 Whose Line Is it Anyway?
11.35 My Wifeand Kids)
12.00 Hádegisfréttir
12.25 Neighbours (Nágrannar)
12.50 Ífínuformi 2005
13.05 My Sweet Fat Valentina (Valentína)
14-35 Two and a Half Men (13.24) (Tveir og hálfur maður)
15.00 Related (4.18) (Systrabönd)
16.00 Codename. Kids Next Door
16.25 Leðurblökumaðurinn (Batman)
16.50 Fífí (Fifi and the Flowertots)
17-00 Noddy (Doddi litli og Eyrnastór)
17.10 Yoko Yakamoto Toto
17.15 The Bold And The Beautiful
17.40 Neighbours (Nágrannar)
18.05 Simpsons (19.21)
18.30 Fréttir, íþróttir og veður
19.00 ísland í dag
19.40 Svínasúpan (4.8) (e)
20.05 (talíuævintýri Jamie Olivers (2.6) (Marettimo)
20.30 Bones (13.22) (Bein)
21.15 Footballers' Wives (3.8) (Ástir í boltanum)
22.00 Wish You Were Dead (Dáinn úr ást)
23.30 Into the West (3.6) (Vestrið)
01.00 Huff (6.13)
01.55 Lone Hero (Hetjan eina)
03.20 Webs (Vefir)
04.45 Fréttir og fsland í dag
05.55 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí
® SKJÁR EINN
07.00 6 til sjö (e)
08.00 Dr.Phil(e)
15.55 Runofthe House(e)
16.20 Beautiful People (e)
17.15 Dr. Phil
18.00 6 til sjö (e)
19.00 Beverly Hills 90210
19-45 Melrose Place
20.30 Völli Snær
21.00 Everybody Hates Chris Gamanættir með svörtum húmor byggðir á æsku grínleikarans og uppistandarans Chris Rock.
21.30 Rock Star. Supernova fslendingur er nú með í fyrsta sinn í einum vin- sælasta þætti í heimi.
22.30 C.S.I. Miami
23.20 Jay Leno
00.05 America's Next Top Model V (e)
01.00 Beverly Hills 90210 (e)
01.45 Melrose Place (e)
02.30 Óstöðvandi tónlist
^^SÝN
16.20 FH - TVMK Tallin Upptaka frá síðari leiknum milli Islandsmeistara FH og TVMK Tallin sem fram fór í gær- kvöld.
18.00 íþróttaspjallið
18.12 Sportið Bylting í íþróttaf rétta u mfj öl 1 - un. Allar nýjustu og ferskustu íþrótta- fréttirnar á hverjum virkum degi.
18.30 HM 2006 (Brasilía - Ástralfa)
20.10 US PGA f nærmynd (Inside the PGA)
20.40 Sterkasti maður í heimi 2005
21.10 Sænsku nördarnir (FC Z)
22.00 Kraftasport (Suðurlandströll- ið 2006) Upptaka frá aflrauna- keppninni Suðurlandströllið 2006.
22.30 Landsbankamörkin 2006
23.00 442
NFS
07.00 fsland í bítiö
09.00 Fréttavaktin
11.40 Brot úr dagskrá
12.00 Hádegisfréttir
12.00 Hádegisfréttir
13.00 Sportið Itarlegar íþróttfréttir.
14.00 Fréttavaktin
17.00 sfréttir
18.00 fþróttir og veður
18.30 Kvöldfréttir
19.00 fslandídag
19-40 Hrafnaþing
20.20 Brotúrfréttavakt
21.00 Fréttir
21.10 60 Minutes
22.00 Fréttir
22.30 Hrafnaþing
23.10 Kvöldfréttir
00.10 Fréttavaktin
Frétta-, þjóðmála- og dægu
03.10 Fréttavaktin
06.10 Hrafnaþing
F4EB3ISTÖÐ 2 ■Bíó
06.00 Die Another Day (Þótt síðar verði)
08.00 Daddy Day Care (Pabbi passar)
10.00 Mon Pere, ma mere, mes freres et mes soeurs (Faðir minn, móðir min, bróðirminn, systirmín)
12.00 Divine Secrets of the Ya-Ya (Leyndarmál systrafélagsins)
14.00 Daddy Day Care (Pabbi passar)
16.00 Mon Pere, ma mere, mes freres et mes soeurs)
18.00 Divine Secrets of the Ya-Ya
20.00 Die Another Day (Þótt si'ðar verði)
22.00 21 Grams (Lífsins vigt)
00.00 Derailed (Dauðalestin)
02.00 White Oleander (Hvíta lárviðarrós- in)
04.00 21 Grams (Lífsins vigt)
RÁS1 92,4 / 93,5 • RAS2 90,1 / 99,9 • Kiss FM 89.5 • Xfm 91,9 • Bylgjan 98,9 • FM 95,7 • X-ið 97,7 • íltvarp saga 103,3 • Talstöðin 90,9
Píkupopp á Rás 2 öll fimmtudagskvöld:
Eitthvað fyrir... stelpur!
„Píkupopp er kaldhæðið orð yfir
tónlist sem stelpum finnst skemmti-
leg en um leið dálítið glettið" sagði
Sóley þegar hún var spurð um hvað
píkupopp væri. Þátturinn Píkupopp
hóf göngu sína á Rás 2 í byrjun júní
nú í sumar. Sóley Kristjánsdóttir,
betur þekkt sem dj Sóley, er umsjón-
armaður þáttarins. Nafn þáttarins
hefur vakið mikla athygli og til gam-
ans má geta að í íslenskri orðabók
er skilgreining orðsins píka m.a.
þessi: „stúlka (oft notað í spaugi),
vinnustúlka." Orðið vísar því til
stelpupopps. Sóley segir að tónlistin
sem hún spili höfði jafnt til karla og
kvenna á öllum aldri þó að nafnið
gefi kannski annað til kynna. í þátt-
unum ættu allir að finna eitthvað
við sitt hæfi því tónlist frá mörgum
tímabilum er spiluð. „Það er ótrú-
lega margt sem ég spila, allt frá
Rod Stewart til Missy Elliot
og Dolly Parton. Ég spila
eiginlega bara það sem
mér finnst skemmtilegt,
t.d diskó, 8o’s, R’nB,
hipp hopp og soul.“”
Þættirnir Píkupopp
hafa fengið góð-
ar viðtökur hjá
hlustendum
Rásar 2 og Sól-
ey reynir
að hafa
tónlist-
arvalið
e i n s
fjölbreytt og hún getur. „Ég hef t.d.
ekki spilað neitt lag tvisvar, enn
sem komið er alla vega.“
Þegar Sóley er innt eftir því
hver er uppáhaldstónlistarmað-
ur hennar er hún fljót að svara.
„Það er enginn einn, ég gæti
sennilega nefnt svona
hundrað. Reyndar er Sup-
ertramp alltaf í uppáhaldi,
einnig Dolly Parton og
núna hef ég
mikið verið að
hlusta á Diönu
V Ross.“
Sóley hefur
verið plötusnúð-
ur í sjö ár og hóf feril-
inn á útvarpsstöðinni
X-inu árið 1997. Til að byrja með var
hún með næturvaktina og seinna
byrjaði hún með eigin þátt sem
nefndist Púðursykur. Sóley hefur
nú dregið sig í hlé frá því að þeyta
skífum á skemmtistöðum borgar-
innar en hún er komin átta mánuði
á leið. Ásamt því að eiga von á fyrsta
barni sínu og vera með útvarpsþátt
á Rás 2 er Sóley að skrifa BA ritgerð í
sálfræði og starfar sem sölumaður í
veitingadeild hjá Ölgerðinni. Það er
því í nógu að snúast hjá Sóley þessa
dagana og verður líklega áfram því
hún ætlar að gifta sig næsta vor. „Já
já ég er komin í pakkann," segir Sól-
ey hlæjandi á leið inn í hljóðver.
kristin@bladid. net