blaðið - 22.07.2006, Qupperneq 15
blaðið LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006
VIÐTALI 15
landabúar erum ekki. Þessu sé stillt
upp í „við og hinir“ tvíhyggju og það
útskýri það m.a. hvers vegna hægt
sé að setja Hamas, Hezbollah, írani,
Sýrlendinga, araba og jafnvel alla
múslíma undir sama hatt.
„Á þennan hóp er svo settur merk-
miði sem á stendur „óskynsemi og
ofbeldi". Þessar hugmyndir eru
gríðarlega sterkar og þær eru undir-
byggðar af vestrænum ráðamönnum
og fjölmörgum fræðimönnum. Þetta
sýnist mér vera ástæðan fyrir því að
við fordæmum ekki unnvörpum
morð á saklausum borgurum. ísra-
elsher talar um að þeir séu í raun að
vinna í þágu alþjóðasamfélagsins og
vísa í samþykkt 15.59 því til stuðn-
ings. Sú samþykkt var gerð þegar
ísraelar yfirgáfu S-Líbanon og fól í
sér að ríkisstjórninni væri skylt að
afvopna skæruliða og hryðjuverka-
samtök. Israelar líta á það sem svo
að Líbanon hafi ekki sinnt þessu og
því verði að ráðast inn í landið. Þetta
er athyglisvert í Ijósi þess að ég held
að menn séu löngu búnir að glata
tölunni yfir þær alþjóðasamþykktir
sem ísraelar hafa brotið í bága við.“
Meðvirkni alþjóðasamfélagsins
Guðrún segir ljóst hver hefur skil-
greiningarvaldið og að alþjóðasam-
félagið tipli á tánum i kringum ráða-
menn í ísrael. „I mínum huga sé ég
fyrir mér ráðamenn í Israel í hlut-
verki ofstopafulls heimilisföður sem
við gerum okkar besta til að styggja
ekki. Ef við reitum hann til reiði er
fjandinn laus og við verðum fyrir
meira ofbeldi og sársauka. Tony
Blair sagði t.d. að það væri nauðsyn-
legt að senda inn friðargæslusveit
inn í Líbanon til þess að koma í
veg fyrir að Hezbollah ráðist gegn
Israelum til þess að þeir þurfi ekki
að grípa til meira ofbeldis. Það er
ekkert tillit tekið til saklausra borg-
ara. Þetta er eins konar meðvirkni
alþjóðasamfélagsins."
Áð mati Guðrúnar opinberar
innrás Israelsher í Líbanon hinar
fordómafullu hugmyndir um araba
Árið 1992 var ég búin að
fá nóg af stríðsástandi
og óöryggi og flutti heim
til íslands með dætur
mínar tvær.
,,í mínum huga sé ég fyrir
mér ráðamenn í ísrael
í hlutverki ofstopafulls
heimilisföður sem við
gerum okkar besta til að
styggja ekki.
sem ríkjandi eru á Vesturlöndum.
,Við verðum að reyna að skilja það
hatur sem sumir arabar bera til Vest-
urlanda. Margt sem Vesturlönd hafa
gert á þessu svæði opinberar aðeins
ákveðna eiginhagsmunabaráttu og
það er að mörgu leyti skiljanlegt
hvers vegna öfgahópar spretta upp.
Misrétti, kúgun og fátækt ala af sér
mannvonsku og öfgar. Það er þó
ekki mögulegt að tala um góða eða
vonda menn í þessu sambandi og
það er síður en svo ætlunin að verja
Hizballah samtökin enda standa
þau fyrir mörgum gildum sem eru
mér ekki að skapi.“
Blæja og háir hælar
Guðrún hefur verið framarlega í
flokki hér á Islandi þegar kemur að
jafnréttisbaráttu og hún skilgreinir
sig sem feminista.
„Meðan ég bjó í Mið-Austurlöndum
var ég ekki feministi og ekki með-
vituð á neinn hátt. Þegar ég gifti mig
gekk ég þó inn í mjög hefðbundin
kynjahlutverk algjörlega gagnrýn-
islaust. Það segir kannski meira
en mörg orð um stöðu kynjanna á
íslandi."
Blæja sú sem margar konur í Mið-
Austurlöndum hefur orðið mörgum
hugleikin og er hún jafnvel talin
vera tákn um þá kúgun sem konur
í þessum heimshluta sæta. Guðrún
segir myndina þó ekki vera svo ein-
falda. „Eg sé engan mun á blæju þeirri
sem konur í Mið-Austurlöndum bera
og þeirri kröfu um kynþokka sem
vestrænar konur þurfa að standa
undir. Hvort tveggja er þetta tákn
um að við séum bundnar af feðraveld-
inu þó birtingarmyndin sé ólík. Það
er ekki tákn um vald að ganga um á
háum hælum eða hylja sig með blæju.
Hins vegar getur verið að sumar
konur reyni að beita þessum tækjum
til valda því ekkert annað er tiltækt.
Auðvitað má þó ekki gleyma því að
hér á Islandi ríkir lagalagt jafnrétti
kynjanna, öfugt við það sem tíðkast í
flestum löndum Mið-Austurlanda.“
h ilma@bladid. net
ALLT A UTOPNU
Fatnaður á álla fjölskylduna í tugþúsundatali fyrir spott-prís
Jakkaföt - Stakir jakkar - Frakkar - Buxur - Skyrtur - Bindi
Bolir Peysur - Kápur - Blússur - Pils - Kjólar - Toppar - Sokkar
Hanskar - Treflar - Vettlingar - Húfur - Nærfatnaður á alla
ObB fjölskylduna - Sængurföt - Lök og handklæði
Fyllið
fataskápinn
fyrir
smápening!
Næg
bílastæði
Opið: Virka daga 11-19
Laugardaga og sunnudaga 12-18
VESTURLANDSVEGUR
ÁRTÚNSBREKKA
UTSALA
Ruby
Tuesday
m
u>
o
‘^SSn
S
3
s
>
X
X
HÚSGAGNAHÖLLIN
FATA$*
HÖFMBAKKI 9