blaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 blaöið
Tungur froska eru fastar fremst í munni þeirra, ólíkt okkar tungum
sem eru fastar aftast í munninum. Þegar froskur grípur
pöddu þá stingur hann klístraðri tungunni út og um-
vef ur bráð sína. Síðan dregur froskurinn tunguna inn
í munninn og hendir matnum ofan í hálsinn.
Minnsta bók í heimi heitir Chemin de la Cruix
og í henni eru 119 blaðsíður. Hún er 5 cm á
hæð og 0,93 cm á breidd. Stærsta bók í heimi
er landabréfabók sem er hátt í tveir metrar á
hæð og rúmlega meter á breidd.
Finndu fimm villur
Mamma hans Guðmundar tók þessa fínu mynd af honum þegar hann var
úti að hlaupa. Guðmundi fannst myndin æðisleg og bað mömmu sína um
að gera annað eintak handa sér. En seinna eintakið var eitthvað gallað því
það vantar fimm hluti á hana. Nú þarf Guðmundur að finna þessi atriði svo
hann geti lagað myndina. Getur þú hjálpað honum?
Bjössi Björn er
týndur!
Bjössi Björn býr á sveitabænum
Hábýli sem er í Gnúpverja-
hreppi. Bjössi Björn veit að hann
má ekki fara út fyrir lóðina en
honum finnst svo gaman að
brjóta reglurnar. Hann álpaðist
út fyrir lóðina til að leika sér og
skoða heiminn en auðvitað villt-
ist hann á heimleiðinni. Bjössi
Björn verður að passa sig því það
er margt hættulegt á leiðinni,
eins og eldur og eitur. Getur þú
hjálpað Bjössa Birni að komast
heim óhultur?
Ronja Ræningjadóttir
Ronja i Matthíasarskógi
,Ég held ég sé talin mjög
ævintýragjörn, heiðarleg en
frekar orkurik með ríka réttlætis
kennd. Ég vil öllum vel en ég
get líka verið dálítil frekja."
Ronja Ræningjadóttir er stúlka
sem býr í Matthíasarskógi
ásamt foreldrum sínum og
ræningjunum. Ronja er lífsglöð
stúlka sem elskar að leika sér úti
við og finnur sér alltaf eitthvað
sniðugt að gera. I haust leikur
hún á sviði í Borgarleikhúsinu
en núna er hún í sumarfríi. Samt
sem áður vildi hún endilega
koma í stutt viðtal og segja
krökkum aðeins frá sér.
Hvernig persóna ert þú?
„Ég held ég sé talin mjög ævin-
týragjörn, heiðarleg en frekar
orkurík með ríka réttlætiskennd.
Ég vil öllum vel en ég get líka
verið dálítil frekja.“
Hver er besti vinur þinn?
„Það er Birkir Borkason, hann er
langbesti vinur minn. Svo eru
það allir ræningjarnir, náttúran
og skógurinn. Þau eru sérlega
góðir vinir mínir."
Ertu kanhski smá skotin í Birki?
„Ég veit það nú ekki,“ segir Ronja
og hlær. „Það er svolítið skrýtið
sko, það er alveg eins og við
séum systkini. Hann erallavega
langbesti vinur minn og við
eigum örugglega eftir að vera
saman alla ævi.“
Hefurðu einhvern tímann
lent í því að verða það
hrædd að þú stirðnar upp
og geturekkertgert?
„Já, til dæmis festi ég einu sinni
fótinn í holu í miklum snjóskafli
lengst inni í skógi og það voru
litlir rassálfar undir mér. Svo
kom skógarnorn sem ætlaði að
taka mig og gera mér eitthvað
mjög illt. En hún náði mér ekki
og Birkir kom og bjargaði mér
upp úr holunni. Ég var rosalega
hrædd. Það var líka svo mikið
frost, ég lá bara í snjónum og
vonaði að mér yrði bjargað.“
Hélstu einhvern tímann að
þú þyrftir að eyða öllum
vetrinum í heilinum, þegar
þú fórst að heiman?
„Nei ég ætlaði eiginlega að fara
aftur heim en samt hugsaði ég
með mér að ég ætlaði alls ekki
að fara aftur í Matthíasarborg ef
pabbi vildi ekki fá mig til baka.
Þá ætlaði ég bara að vera í hell-
inum með Birki.“
Mamma þín kom og gaf
ykkur brauð að borða.
Var brauðið gott?
„Lovísubrauð er besta brauð í
heimi, það er brauðið hennar
mömmu. Það er rosalega gott
og gefur manni mikla orku.“
Hvernig þorðirðu að stökkva
yfir Helvítisgjána?
„Ég veit það ekki. Fyrst var ég
svo hissa á að sjá Birki því ég
hafði aldrei séð krakka áður, ég
hafði bara séð fullorðna og ég
vissi ekkert hvað þetta var. Mér
leist ekkert á að það væri ein-
hver krakki þarna hinum megin
við gjárbakkann, eiginlega á
mínu heimili. Ég var búin að
heyra að Borkaræningjar væru
óvinir okkar og mér leist ekkert
á þegar hann manaði mig að
stökkva. En þegar hann fór að
stökkva sjálfur þá varð ég að
gera það líka.“
Hvernig hljómar Úlfasöngurinn?
„Hann er ofboðslega fallegur.
Það er fallegasta lagið því það
er lagið sem Lovísa syngur fyrir
mig svo ég sofni. Hún syngur
lagið fyrir mig og ræningjana
þegar það er kominn háttatími.
Það sofna allir þegar hún syngir
Úlfasönginn.'1
Er eitthvað sem þú vilt segja
við krakkana að lokum?
„Ég vil segja þeim að njóta sum-
arsins sem best og vera mikið
úti í náttúrunni því hún er svo fal-
leg og við eigum að vera góð við
hana. Verið góð við vini ykkar,
fjölskyldu og þá sem ykkur
þykir vænt um. Það má alls ekki
taka hluti í leyfisleysi sem þið
eigið ekki, þið skuluð ekki vera
ræningjar. Ég er ekki ræningi
þó ég sé ræningjadóttir því ég
neitaði að vera ræningi. Njótið
þið sumarsins."
Baldur Snær Matthíasson
Krakkakynning
Hvenær áttu afmæli?
„5. júlí.“
í hvaða skóla ertu og
í hvaða bekk?
„Ég er að fara í Vatnsendaskóla í
5. bekk.“
Hvað finnst þér skemmtileg-
asta fagið í skólanum?
„Smíði.“
Æfirðu einhverja íþrótt?
„Já, fótbolta með HK.“
Hvað finnst þér skemmti-
legast að gera?
„Vera í tölvunni og úti í fótbolta."
og hvernig fannst þér hún?
„Pirates of the Caribean. Mér
fannst hún mjög góð.“
Hver er uppáhalds
maturinn þinn?
„Hamborgari.“
Hver er uppáhalds tölvu-
leikurinn þinn?
„Fifa 2006.“
Hvernig tónlist finnst þér
skemmtilegast að hlusta á?
„Rokk.“
Hvað ætlarðu að gera í sumar?
„Ég er búinn að fara til útlanda, svo
ætla ég í sumarbústað og útilegu."
Hvað langar þig að verða
þegar þú verður stór?
.Atvinnumaður í fótbolta.“
Ef þú fengir eina ósk, hvers
myndirðu óska þér?
,Að ég fengi endalausar óskir.'
Baldur Snær llaldurSnærvillverðoalvinnu-
m6ur I fótbolta enda æfirhann fótbolta með HK.
Hvaða kvikmynd sástu síðast