blaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 30
30
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 blaðið
deiglan
deiglan@bladid.net
Alþjóðlegt orgelsumar
Sophie-Véronique Cauchefer-Choplin leikur á hádegistónleikum á
yegum Alþjóölegs orgelsumars i Hallgrímskirkju í dag klukkan 12.
Á efnisskránni eru verk eftir Bédard, Pierné, Mulet og spuna.
Hvað en
að gerast
LAUGARDAGURINN 22. JÚLf
KL. 10:00 HÁTlÐ
Miðaldamarkaður verður á Gásum
í Eyjafirði dagana 22.-23. júlí. Frá
kl. 10-16 verður markaður, bar-
dagar, söngur, fornleifafræðingar
að störfum, leiðsögn um svæðið og
margt fleira. Friðrik V og Norðlenska
bjóða svo í kjötsúpu að miðaldasið.
Aðgangseyrir er 500 krónur, frftt fyrir
15áraog yngri.
KL. 17:00 TÓNLIST
Tónlistarhátiðin LungAfer fram á
Austurlandi í Herðubreið á Seyðis-
firði. Þar koma fram hljómsveitirnar
Ampop, Fræ, Ghostigital, Jeff Who?,
The Foreign Monkeys, Miri, Tony the
Pony, Benny Crespo’s Gang, Somet-
ime, Biggi Orchestra. 12 ára og yngri
fá einungis aðgang í fylgd með full-
orðnum. Eftir tónlistarveisluna verður
Ball Hótel Öldunnar með Todmobile.
Frítt inn fyrir tónlistarveisiugesti, ann-
ars kr. 2500. Aldurstakmark 18 ár.
KL. 17:00 TÓNLIST
Þriðju tónleikarnir af sjö i röð
orgeltónleika í Reykholtskirkju sem
haldnir eru á vegum kirkjunnar og
FÍO verða haldnir i dag. Douglas A.
Brotchie leikur á orgelið verk eftir
Menelssohn, Buxtehude, Zsolt Gárd-
onyi og C-M Widor. Aðgangseyrir er
1.500 kr.
SUNNUDAGURINN 23. JÚLÍ
KL. 20:00 Tónlist
Sophie-Véronique Cauchefer-Choplin,
annar organisti St Sulpice kirkjunnar
i Paris, leikur á kvöldtónleikum á
vegum Alþjóðlegs orgelsumars f Hall-
grimskirkju í kvöld. A efnisskránni
eru verk eftir Bédard, J.S. Bach,
Mendelssohn, Pierné, Mulet, Duruflé.
KL. 21:00 Tónlist
Gítarsnillingurinn Andreas öberg
ásamt fiðluleikaranum góðkunna Dan
Cassidy og hijómsveitinni Hrafna-
spark mun spila sígauna jazz sveiflu
eins og hún gerist best. Tónleikarnir
fara fram á Cafe Rósenberg.
Skálholtshátíð
lýkur með dýrð
Á morgun verður mikið um dýrðir á Skálholtshátíð
stendur yfir um helgina. Slagverkshópurinn ^
Steintryggur mun hefja hátíðarstemningu dagsins J0ÍM
klukkan 13.00 fyrir framan kirkjuna. Farin verður ^IP
hópreið heim á staðinn með fánaborg
sem myndlistarmaðurinn Halldór Ás-
geirsson hefur búið til. Gunnar Eyj- .
ólfsson, leikari, les Isleifs
þátt og trompetleikarar
spila í turni kirkjunnar. / «
Pílagrímar, sem hafa
gengið frá Þingvöllum
til Skálholts um helg-
ina, munu ganga í hlað í Skálholti um þetta leyti.
Eftir það verður gengið til messu sem hefst
klukkan 14.00. Þar mun herra Sigurbjörn Einarsson
predika en vígslubiskup ásamt staðarprestum þjóna
fyrir altari.
Eftir kirkjukaffið verður haldið áfram í kirkjunni.
Þar munu þeir flytja ávörp: forseti íslands, herra Ólafur
Fagnar Grímsson, biskup íslands, herra Karl Sigur-
björnsson og Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra.
Tónlistarflutningur vefður í umsjá þeirra Harðar
Áskelssonar, söngmálastjóra kirkjunnar, og Hilmars
Arnar Agnarssonar, org- anista í Skálholti.
Upptekin
[ dag opnar Þóra Gunnarsdóttir
sýninguna Upptekin! -hef annað
og betra að gera, í vinnustofu og
sýningarrýminu Skúla í túni, Skúla-
túni 4, þriðju hæð.
Skúli í túni er sameiginleg að-
staða sem rekin er af myndlistar-
og hugvísindamönnum í gömlu
höfuðstöðvum (staks í Skúlatúni.
Aðstandendur Skúla í túni hafa
reglulega staðið fyrir sýningum
og öðrum uppákomum í húsnæð-
inu til þess að kynna starfsemina.
Heimasíða hópsins er í smíðum
en hún er á slóðinni www.skulituni.
com. Þar verður hægt að nálgast
upplýsingar um opnunartima sýn-
inga, eldri sýningar, fyrirhugaðar
sýningar og bara allt.
I innsetningunni, Upptekin! -hef
annað og betra að gera, eru settir
saman tveir þættir. Myndband sem
tekið er út um glugga á gamalli
og grárri íbúðabyggingu í Berlín
og sex textar sem sem hafa verið
lesnir inn á diska. Þóra velur að
hafa sex geislaspilara bæði til að
skilja á milli textanna en einnig til
að gefa þeim persónubundnara
vægi. Textarnir eru á ensku en
ástæða þess er að þeir voru hluti af
hljóðinnsetningu í Galleri 300m3 í
Gautaborg í júní síðastliðinn. Þóra
hefur kosið að fara þá leið að þýða
ekki nema lauslega þá texta sem
hún skrifar á ensku og þá sem hún
skrifar á íslensku.
Sýningin opnar klukkan 15:00.
Sögubrot og myndir
Islandsvinaganga
um Kárahnjúka
Hreinn Friðfinnsson opnar sýn-
ingu i Suðsuðvestur í dag. Hreinn
sýnir þar innsetninguna SÖGU-
BROT OG MYNDIR. Hreinn á að
baki langan og fjölbreytilegan
feril og var leiðandi í hópi þeirra
íslensku listamanna sem unnu
með hugmyndalist snemma á 8.
áratugnum. Hann vann þá meðal
annars með ljósmyndir og skeytti
saman við þær texta en hefur síðan
kannað ýmsar aðrar tjáningar-
leiðir. Léttleikinn ræður ríkjum í
verkunum og yfir þeim er ljóðrænn
blær.
Þau höfða yfirleitt ekki einvörð-
ungu til þess sjónræna heldur örva
einnig hugarflug og minningar
áhorfenda með skírskotun í titli
eða á annan hátt. Slíkt hefur verið
kallaðljóðræn hugmyndalist. Hvers-
dagsleikinn er Hreini ofarlega í
huga, eitthvað ofurvenjulegt verður
efniviður verks sem býr yfir marg-
ræðum áhrifum. Hann vinnur úr
einhverju sem er víða til staðar en
reynir að bæta einhverju ofurlitlu
við til að gæða það nýju lífi.
Sýningin opnar klukkan 16:00 og
mun standa til 20. ágúst. Suðsuð-
vestur er opið fimmtudaga og föstu-
daga frá kl. 16 -18 og um helgar frá
kl. 14 - 17. Einnig er hægt að skoða
sýninguna eftir samkomulagi. Nán-
ari upplýsingar má finna á vefsíð-
unni www.sudsudvestur.is
Gengið verður um Kárahnjúka-
svæðið í dag en gangan hefst
hjá Töfrafossi, í 625 metra hæð,
við efri mörk fyrirhugaðs Háls-
lóns. Gengið verður niður með
Kringilsárgljúfri með útsýni inn
á Kringilsárrana, að ármótum
Jöklu og Kringilsár. Síðan verður
gengið vestan megin við Jöklu í
stórbrotnum lyng- og víðvöxnum
gljúfrum, þar sem eru fjölmörg og
fögur heiðargæsahreiður, með-
fram hinni kraftmiklu rauðaflúð
sunnan við Kárahnjúka.
Því næst verða skoðaðir hinir ein-
stöku sethjallar, sem hafa verið
nefndir handritin, en þar má lesa
hörfunarsögu ísaldarjökulsins. Að
lokum verður gengið meðfram
leikandi léttri fossaröð Sauðár,
vestan megin við Jöklu. Göng-
unni lýkur með þögulli mótmæla-
Kárahnjúkar Islandsvinagangan
hefst við Töfrafoss.
stöðu við Kárahnjúkastíflu.
Gangan er ókeypis og hentar
öllum aldurshópum. Gott er að
hafa baksætispoka fyrir lltil börn.