blaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 33

blaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 33
blaöiö LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 ÝMISLEGT I 33 Skemmtileg ævintýri í faömi vina Það er ekki ýkja langt síðan að það varð að hefð á íslandi að gæsa og steggja verðandi brúðhjón. Hefðin hefur fest í sess undanfarinn áratug en á sama tíma hefur þessi skemmti- lega hefð breyst töluvert. Fyrstu árin virtist skipta meira máli að fylla brúðhjónin og gera þau að fífli en síðari ári hefur gæsun og steggjun frekar snúist um samveru vina. Það er því lagt upp úr því að hafa daginn sem eftirminnilegastan, bæði fyrir brúðhjónin sem og vinina. Hér eru nokkrar hugmyndir um hvað er hægt að taka sér fyrir hendur. Súlufimi Magadanshúsið býður upp á súlufimi fyrir gæsa- og jafnvel steggjapartý. Auk þess er hægt að fara í stutt námskeið í break-dansi, samkvæmisdönsum, magadansi og fleira á ýmsum stöðum í borginni. Minningakassi Allir vinirnir og vinkonurnar í partýinu finna einn hlut sem minnir þau á viðkomandi stegg eða gæs. Hlutirnir eru settir ofan í kassa og steggurinn/gæsin tekur einn hlut upp í einu og reynir að giska hverjum hluturinn tilheyrir. Heilmikil hlátrasköll og skemmtun fylgir þessum leik. Lautarferð Ef veðrið er gott er fátt huggu- legra en að setjast í græna laut, með freyðivín, osta, jarðarber og fleira góðgæti. Hljóðver Gæsin/steggurinn er dreginn í hljóðver og látinn taka upp ást- arlag handa makanum, vitanlega með texta sem vinahópurinn hefur samið. Lagið er svo spilað í brúð- kaupinu, flestum til mikillar kátínu. Flugferð Það er ekki mjög dýrt að fá flug- mann til að taka gæsina/stegginn í stutta útsýnisferð um Reykjavík og nágrenni. Hins vegar er það mjög eftirminnilegt þar sem þetta er ekki eitthvað sem er gert á hverjum degi. Förðun Fyrir gæsina og vinkonur hennar getur verið gaman að fá förðunar- fræðing til að farða hópinn áður en farið er út á lífið. Eins gæti verið gaman að fá spákonu í heimsókn eða einhvern annan sem er fullur af fróðleik um hvað svo sem hópurinn hefur áhuga á. Sjóferð Það er ýmislegt tengt sjónum sem hentar sérstaklega fyrir adrenalín- fíkla. Má þar nefna bátsferð niður straumharða á, kajakferð, sjóskíði, köfun og margt fleira. Lautarferð Það er einstaklega huggulegt að fara ílautarferð með vinunum og vinkonunum, tilvalin stund til að njóta matar og vinskaparins. SU DOKU LEIÐBEININGAR Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða loðrett. Sömu tölu má aukin heldur aöeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. ■ — — n 6 2 5 2 5 7 6 9 6 4 6 1 5 8 2 2 8 3 9 4 5 3 9 7 8 3 2 6 1 9 8 2 3 7 9 3 1 5 8 4 4 1 4 1 6 3 9 2 8 9 6 4 3 5 4 6 9 8 7 7 8 3 2 5 7 5 9 8 3 2 8 3 6 8 7 6 9 5 9 7 3 7 5 — 9 5 4 1 7 2 1 4 7 2 6 9 3 2 9 8 5 2 4 6 1 7 9 4 2 3 1 7 4 4 3 5 1 - . , L_

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.