blaðið - 22.07.2006, Síða 18

blaðið - 22.07.2006, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 blaöið matur & matur@bladid.net Kaffi Koffin eykur árvekni hugans, einbeitni og getur haft jákvæð áhrif á frammistöðu. Hins vegar getur of mikið koffín valdið kvíða, löngunum, þunglyndi, tilfinn- Kjúklingur eykur gleði Þeir sem eru þunglyndir mælast með lágt serótónín. Kalkúnn og kjúklingur innihalda trýptófan, sem er mikilvæg amínósýra sem breytist í serótónín. IK Gómsætar fylltar bökunarkartöflur Flestir kannast sennilega við bak- aðar kartöflur þar sem allt er skafið úr hýðinu og blandað saman við hitt og þetta. Blandan er síðan sett aftur í hýði. Þetta þótti rosa flott á áttunda áratugnum en þetta er nú alltaf svolítið gott og sérstaklega með grillmatnum. Þar sem veðrið leikur við lands- menn þessa dagana og hægt er að skella sér í útilegu þá þarf maður aðeins að gíra sig upp í stemning- una. Þegar ég skelli mér í útilegu þá passa ég mig alltaf á því að vera búinn að undirbúa útilegumatinn áður en ég fer af stað, til að létta mér aðeins vinnuna þegar á hólm- inn er komið. Þá er ég búinn að skera salatið, græja sósurnar, skera kjötið og þræða það upp á pinn- anna ef ég ætla að vera með svo- leiðis. Og af því ég þykist vera svo agalega sniðugur að undirbúa mig þá kemur loks efni þessarar greinar og það er kartaflan sem ég minnt- ist á í byrjun. Ég er búinn að breyta henni ör- lítið en það á að baka hana eins og gert var í gamla daga, skera hana í tvennt, taka allt innan úr henni og halda skinnhelmingnum heilum. Síðan er kartöflumaukið blandað við ykkar uppáhald, eins og skinku, beikon, lauk, sýrðan rjóma eða hvað sem er. Maukið er síðan sett aftur í skinnið og það sem breytist er að kartaflan er sett heil saman aftur (tveir helmingar) og henni lokað snyrtilega. Kartaflan er síðan sett í álpappír og þá lítur hún út eins og heil bökunarkartafla, nema að þessi er með ljúffengri fyllingu þegar skorið er í hana eftir að hún hefur verið hituð upp á grillinu. Sko, sniðuga kallinn! Hér kemur hugmyndin að fylling- unni sem ég setti í mínar kartöfl- ur um daginn. Fylltar bökunarkartöflur Fyrir fjóra • 4 stórar bökunarkartöflur (bak- aöar og skafið úr) • 4 msk fetaostur • 4 msk hvítlauksolía • 4 msk grænar ólífur (saxaðar) • 2 msk steinselja (fínt söxuð) • 1 msk dijonsinnep . • salt og pipar Öllu blandað saman en samt ekki þannig að kartöflurnar verði algjörlega að mauki. Það mega vera smá bitar í blöndunni. Munið að fyllingin verður alltaf aðeins meiri heldur en passar í sjálfar kartöflurnar en þetta er svo gott að þegar þið byrjið að smakka til þá minnkar hratt í þessu. Blaöil/Steimr Hugi eymsla kryddjurta Það er hægt að þurrka eða frysta krydd- jurtir svo þær geymist lengur. Geymsla matvæla Flestir kannast við það að hafa keypt matvæli sem eyðileggjast eftir tvo daga í ísskápnum. Oft er það vegna þess að matvælin eru ekki geymd rétt. Það er ýmislegt hægt að gera til að lengja líftíma matvæla og hér eru nokkur ráð. Ferskur mozzarella ostur lifir stutt og er bara góður í nokkra daga. Þegar osturinn er geymdur þá verður hann harður, þéttur og auð- veldara er að skera hann. Ef mozz- arella osturinn er fljótandi í vatni þá er best að taka hann úr vatninu, pakka honum inn í plast og geyma hann aftast í ísskápnum, þar sem kaldast er. Vatnið er gott fyrir varð- veislu en það deyfir bragðið. Ef ætl- unin er að hafa ostinn daufan þá er gott að geyma hann í vatni. Geymið hvítlauk á köldum, þurrum stað en ekki í ísskáp eða frysti. Ef hvítlaukur er frystur þá getur áferð og bragð breyst. Það er hægt að geyma nánast allar kryddjurtir, annað hvort með því að þurrka þær eða frysta. Það er best að þurrka þykkar kryddjurtir, eins og oregano, tímían, rósmarín og myntu þótt hún teljist ekki vera þykk kryddjurt. Hengið jurtirnar í búntum á hvolf á köldum og þurrum stað. Síðan er best að fjarlægja laufin og geyma þau í lofttæmdum umbúðum. Mjúkar jurtir eins og ba- sil og steinselja geymast best í frosti. Frystið laufblöðin ásamt litlu vatni í ísmolabökkum. Þýðið þær áður en þær eru notaðar. Sófamatur og bjór Eftir æsispennandi heimsmeist- arakepþni í fótbolta eru flestir langþreyttir á skyndibitamat og löngum dögum í sófanum. Þegar eitthvað mikið er um að vera í íþróttaheiminum sem krefst mik- ils sjónvarpsgláps vill matarmenn- ing oft fara fyrir ofan garð og neðan. Maturinn samanstendur af pizzum, samlokum og öðru sem er einfalt og þægilegt, að ógleymdum blessuðum bjórnum. Fæstir fá leiða á bjór en það er annað mál með blessaðan skyndibitann, sér- staklega ef hans er neytt m ö r g u m sinnum á dag í nokkrar vikur. Rithöf- undurinn Ri- chard Fox fékk þá snilldarhug- mynd að setja saman bók sem hentar einmitt þessum hópi, J)eim sem dvelja langtímum saman í sófanum og vilja samt sem áður fjöl- breytni í matarvali. The Food & Beer Cook Book er upp- full af einföldum upp - skriftum sem henta við öll tækifæri og sérstaklega sem „sófamatur . Simpson sófafjölskylda Simpson fjölskyldan er sennilega ein þekktasta og vinsæiasta „sófafjölskylda“ íheimi. Henni veitti svo sannarlega ekki afgóðri upþskriftabók, ekki síst þar sem mikið er fjallað um uppáhaldsdrykk Hómers í henni. Einfaldar uppskriftir The Food & Beer Cook Book er uppfull af einföldum uppskriftum sem henta einstaklega vel sem „sófamatur". Mat bragð- bættur með bjór 4 Það er vont að vera upp- tekinn af spenn- andi sjónvarps- efni og vera sársvangur. Því er best að und- irbúa sig og hafa allan mat sem og drykkjarföng tilbúin áður en sest er fyrir framan sófann. I The Food & Beer Cook Book eru 6o uppskriftir af alls kyns tagi en auk þess eru leiðbeiningar um hvernig skal velja rétta tegund af bjór með mat og hvernig á að bragðbæta mat með bjór. Sem dæmi um upp- skriftir eru Osta-og bjórfondue og öfugar pylsur. Hægt er að fjárfesta í bókinni á www.amazon.co.uk

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.