blaðið - 22.07.2006, Qupperneq 21
blaöið LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006
VIDTAL I 21
„Ef borgarbúar eiga að hafa skoðun
á einkalífi borgarstjórans þá ættu
þeir fyrst og fremst að hugsa um það
hvort hann sé hamingjusamur.“
Og er borgarstjórinn
hamingjusamur?
„Já, hann er það. Það skiptir miklu
máli í lífinu að hafa góða heilsu, sem
ég hef. Það getur margt gerst í þessu
lífi og heilsan bilar stundum skyndi-
lega. Ég held samt að það séu nokkur
lykilatriði sem skipti máli til að
maður haldi góðri heilsu. Eitt er að
hafa ánægju af starfi sínu. Það hef ég
haft allt mitt líf. Ég hef ætíð hlakkað
til að vakna á morgnana og takast á
við daginn.
Það hjálpar líka að vera glaðlyndur
og geðgóður. Ég veit að ég get virkað
þungur en innra með mér er ég mjög
glaðlyndur og hef gaman af góðum
húmor og saklausri stríðni. Svo er
mikilvægt að láta sér þykja vænt um
fólk. Það þykir mér og ég veit ekki til
að ég hafi eignast hatursmenn. Mér
finnst gott að umgangast fólk og
reyni að gera það af kurteisi og tillits-
semi. Ég heilsa til dæmis fólki með
handabandi eins oft og ég get. Vinnu-
semi, heiðarleika og gott viðmót eru
þeir eiginleikar sem ég kann best við
í fari fólks. Annars líkar mér við flest
fólk nema nöldurseggi sem hafa allt
á hornum sér. Þá reyni ég að forðast
af fremsta megni.
Síðast en ekki síst er ég hæfilega
kærulaus. Ég fibast ekki við að lenda
í deilum. Skammir í fjölmiðlum
snerta mig lítið og ég reiðist ekki
vegna þeirra. Það kann að vera að
ég hafi gert það áður fyrr en ég er
löngu hættur því. Ég get byrst mig
og hækkað róminn ef ég er að svara
fyrir mig í ræðustól en ég rýk ekki
upp í vonsku. Ég er langminnugur
en ekki langrækinn.“
Bíð ekki eftir laxinum
Hvað hefðirðu gert efþú hefðir lent
í minnihluta í borginni eftir þessar
kosningar?
„Þá hefði ég dregið mig í hlé frá pól-
itík, orðinn sextugur. Ég hefði senni-
lega bara farið að njóta lífsins.“
En það hefðu samt verið vonbrigði
að tapa?
„Ég þekki það að tapa. Ég er hins
vegar fljótur að jafna mig á tapi. Ég er
ekki að velta mér upp úr vonbrigðum
dögum, vikum eða mánuðum saman.
Einfaldlega vegna þess að ég veit að
það tekur alltaf eitthvað nýtt við.“
Kemur tilgreina að láta afembœtti
eftir fjögur ár?
„Ég útiloka það ekki. Fjögur ár eru
ekki langur tími í stóli borgarstjóra
og kannski þarf maður átta ár. Ég hef
ekki ákveðið að sitja í átta ár enda
ræð ég engu um það, það eru kjós-
endur sem eiga valið. Ég er í þessu
hlutverki núna og þegar ég segi að ég
ætli að standa mig og gera vel þá eru
það ekki bara einhver orð. Ég legg
alla mína krafta í þetta starf meðan
ég gegni því. En það er líka alveg
„Eg get byrst mig og hækkað róminn ef ég er að
svara fyrir mig í ræðustól en ég rýk ekki upp í
vonsku. Ég er langminnugur en ekki langrækinn.'
jafn víst að ég ætla að eiga einhver ár
fyrir mig og mína fjölskyldu. Þannig
að nú þarf unga fólkið í borgarstjórn-
arflokknum að sanna sig þannig að
þegar ég hætti geti ég mælt með þeim
sem mér finnst bestur."
Ertu ekki metnaðargjarn?
„Á vissan hátt er ég það. Metnaður
minn felst í því að standa mig vel en
ég hef engan sérstakan metnað til
að krækja í embætti og beita til þess
öllum brögðum. Ég get líkt þessu við
það að veiða lax. Sumir laxveiðimenn
komast í ham og vilja allt til vinna til
að fanga laxinn. Ég er ekki endilega
að bíða eftir laxinum. Mér væri eigin
lega alveg sama þótt ég veiddi engan
lax. En ef ég festi lax þá finnst mér
mikilvægt að ná honum að landi.
Þannig er minn metnaður."
kolbrun@bladid.net
M? hóraní
r hádeginu -
FJÖLSKYLDAN
4 kvoldin
iViðtöi við íslenska
vændiskúnna
ÓKEYPIS
SMÁSÖGUBÓK
LaOsir og liðugir
dIparsVEINAB
„Mér liður ejns
dq ég se nyhætt
aðleikaílöngu
en skemmtilegu
björg Ólafsdóttir,
is Etiassonar
með smásögum fylgir biaðinu að þessu sinni. Við auglýstum eftir sögum í blaðinu
og fengum frábær viðbrögð. Niðurstaðan er skemmtileg blanda af ólikum sögum
eftir höfunda á aldrinum 17 til 80 ára, þekkta sem óþekkta. Góða skemmtun!"
Heiðdís Lilja Magnúsdóttir, ritstjóri
Hvaða blað ert þú að lesa? Kynntu þér frábær áskriftarkjör (slma 515 5555
eða sendu okkur póst á askrift@frodi.is
. HEIMILI - STJORN
matur - r
SZmbÍÍIMMI
Smásögubók fylgir júlíblaðinu
„Júlíblaðið okkar er stútfullt af skemmtilegu og fræðandi efni, auk þess sem bók
FRÓÐ
TlMARITAÚTGÁFA
FÓTBREMSAN GÓÐA
vinsœlu dönsku götuhjólin
komin aftur
i ELLUR
KILDEMOES
G. Tómasson ehf • Súöarvogi 6
• sími: 577 6400 • www.hvellur.com
• hvellur@hvellur.com
f