blaðið - 22.07.2006, Síða 24
24
LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 biaöÍA
„Ég vil ekki verða ódauðleg-
ur í gegnum verk mín, ég
vil verða ódauðlegur með
því að deyja ekki.“
Woody Allen
Afmælisbörn dagsins
AMY VANDERBILT, RITHÖFUNDUR, 1908.
FRANKA POTENTE, LEIKARI, 1974.
Snorrastofa í Reykholti Hefurbyggt
upp menningarvef fyrír Island.
Menningar-
vefur ferða-
þjónustunnar
Wenningar- og miðaldasetrið
Snorrastofa í Reykholti hefur á
vegum samgönguráðuneytis
byggt upp menningarvef fyrir
ísland, sem hefur vefföngin www.
menning.is og www.culture.is.
Hugmyndin er að gefa öllum
þeim aðilum sem bjóða upp á
hvers kyns menningarviðburði
kost á að koma upplýsingum um
þá á framfæri á vefnum og að allir
hafi greiðan aðgang að þeim upp-
lýsingum. Markmiðið er að skrá
og kynna reglubundið menning-
arviðburði á öllu landinu. Einnig
býður vefurinn upp á flokkað
safn krækja inn á aðra menningar-
vefi. Upplýsingar á vefnum eru á
íslensku og ensku.
Gott samstarf við alla sem
starfa að skipulagningu menn-
ingarviðburða er grunnforsenda
þess að vefurinn virki sem
öflugur gagnabanki, sem getur
komið bæði innlendum og er-
lendum ferðamönnum að góðum
notum. Menningarvefurinn tekur
við upplýsingum um viðburði,
sem sendast á netfangið menn-
ingarvefur@snorrastofa.is. Ekki
er krafist greiðslu fyrir kynningu,
enda meginmarkmiðið að vefur-
inn gefi góða mynd af menningar-
lífi vítt og breitt um landið.
V \ X \
íslenskar
ástarsögur
fyrir vestan
Vestfirska forlagið hefur
ákveðið að hefja útgáfu á
flokki ástarsagna upp á
gamlan og nýjan móð, þar
sem íslenskur veruleiki á
ýmsum tímum kemur við
sögu. Er sú útgáfa hugsuð
sem mótvægi gegn því glæpa-
sagnafári sem tröllríður þjóð-
inni um þessar mundir.
í tilkynningu kemur fram að
æskilegt sé að höfundar séu
tengdir Vestfjörðum á ein-
hvern hátt eða sögurnar fjalli
um vestfirskt mannlíf en það
er þó ekki skilyrði. Sögurnar
verða að hafa upphaf, miðju
og endi. Alls konar stílbrigði
koma til greina og er stíll
Guðrúnar frá Lundi ekki þar
undanskilinn.
Þeir sem hafa undir
höndum eða hafa samið
handrit að íslenskum ástar-
sögum og vilja koma þeim á
framfæri til athugunar eru
beðnir um að senda handritin
í tölvupósti á netfangið jons@
snerpa.is.
Hátíð Ungmenni úr götuleikhúsinu
opnuðu hátíðina íár. Mynd/BörkmJ.
List á Austurlandi
Skipuleggjendur Framkvæmdaráð LungA, frá vinstri: SigríðurEir, Hrefna Bóel, Guð-
mundur, Björt, Aðalheiður, Lísa og Ivar Pétur.
'átíðin LungA hefur staðið yfir
á Seyðisfirði síðan á mánudaginn
í þessari viku. Þetta er í sjöunda
sinn sem hátíðin er haldin en hún
er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-
25 ára. Á listahátiðinni má meðal
annars finna hinar og þessar lista-
smiðjur aukþess sem eitthvað hefur
verið að gerast öll kvöldin. Þema há-
tíðarinnar í ár er götumenning.
Listasmiðjur fyrir alla
Það er í raun ótrúlegt magn af
listasmiðjum á hátíðinni og allir
ættu að hafa fundið eitthvað við sitt
hæfi. I kvöld er síðan uppskeruveisla
LungA þar sem afrakstur smiðj-
anna verður sýndur og herlegheit-
unum slúttað með stórtónleikum.
„Það eru sex smiðjur í gangi, í
rauninni sjö, því við erum með sex
smiðjur á daginn, frá níu til fimm og
það er ungmenni á aldrinum 16-25
ára sem taka þátt í þeim. Svo erum
við með eina smiðju frá fimm til sjö
sem er opin smiðja og er fyrir alla.
Það er gospelsmiðja og þá förum við
og syngjum saman," segir Sigríður
Eir, sem situr í framkvæmdanefnd
hátíðarinnar.
LungA orðið stórt nafn
Sigríður segir að LungA sé orðin
það þekkt hátíð að fólk hafi jafnvel
samband að fyrra bragði og óski
eftir að fá að halda námskeið. „Nú
er þetta í sjöunda sinn sem hátíðin
er haldin og orðið stórt nafn, nnnið
sér inn ákveðinn sess. Þess vegna er
mjög mikil eftirsókn og þetta hefur
gengið vonum framar, sérstaklega í
ár,“ segir Sigríður.
Gríðarleg þátttaka hefur verið
á listahátíðinni og er hún búin að
sprengja utan af sér eins og Sigríður
kemst að orði. „Það eru 130 manns
að taka þátt í smiðjunum og aldrei
verið jafn mikið. Þegar hún var
haldin í fyrsta sinn þá voru 50 þátt-
takendur. Fjöldinn er því næstum
búinn að þrefaldast frá byrjun. Þetta
eru ungmenni, bæði hérna frá Seyð-
isfirði, Austurlandi öllu og landinu
í heild sinni. Síðan erum við með
ungmennaskiptiverkefni í gangi
þannig að hérna eru ungmenni frá
Eistlandi, Hollandi, Finnlandi og
Færeyjum. Þetta er því orðin tölu-
vert alþjóðleg hátíð,“ segir Sigríður.
Vítamínsprauta fyrir bæjarfélagið
Sigríður vill ekki gera upp á
milli smiðja en segir að vegna ung-
mennaskiptanna þá sé fjölmennast
í leiklistarsmiðjunni en það eru 32
skráðir í hana. Allar smiðjurnar eru
þó fullar.
Hátíðin þykir vera mikil vítamín-
sprauta fyrir Seyðisfjörð og hefur
verið mikið líf í bænum í þessari
viku. „Það lifnar yfir öllu,“ segir
Sigríður.
jon@bladid.net
Söguleg útrýming
Vá hvílir yfir borginni. Illfygli eru á sveimi.
Þau éta börn og unga og þau verður að
skjóta. Fuglaflensan er frétt gærdagsins,
málið í dag er mávavandamálið eða eins
og það mun verða kallað í sögubókum
framtíðarinnar: The war on seagulls.
Kvikmynd Alfred Hitchcock kemur upp í
hugann þegar maður fer yfir fréttaflutning
undanfarna daga. Það er hvergi friður fyrir
þessum illfyglum, þeir ráðast á fólk og bú-
fénað. Börnum sem vilja ekki fara að sofa
verður sagt frá mávunum sem taka en
gefa ekkert í staðinn. Það verður að sækja
um aukafjárveitingu frá Alþingi til þess að
ráða fleiri mávabana. Það verður að finna
lausn á þessum vanda.
Hugmyndir eru uppi um að svæfa þá
því það skapast svo mikið ónæði af því
að freta á þá með hólkum innnan borgar-
marka. Það er réttilega ályktað því fólk vill
almennt ekki vita af því þegar verið er að
murka líf úr einhverjum fyrir framan nefið
á þeim. Margt hefur þrifist í skjóli þess að
líta undan.
Aðgerðir gegn þessari vá þurfa að vera
skipulegar, þær þurfa að vera umfangs-
miklar, þær þurfa að vera hljóðlátar í
skjóli nætur. Aðeins þannig munu góðborg-
arar þessa lands geta sofið rótt, öruggir
um framtíð sína og barna sinna.
Á þessum degi árið 1942 var hafist
handa við að flytja gyðinga frá gettóinu
í Varsjá í útrýmingarbúðir í Treblinka í
Póllandi.
jon@bladid.net