blaðið - 31.07.2006, Page 2
2IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2006 blaðið
blaóiðu—
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Svifið yfir Víkurvelli Flugvél
lenti á golfvellinum í miðju móti.
Sniglar:
Ofsaakstur
er glapræði
„Maður myndi halda að þetta
væri glapræðisegir Garðar
Ingi Steins-
son, ritari
Sniglanna,
um hrað-
akstur
mannsins
sem keyrði
á 240 kíló-
metra hraða
með kærust-
Garðar Ingi una á hjólinu
Steinsson 0g rætt er
við á forsíðu.
Hann segir afar erfitt að rétt-
læta hraðakstur á þjóðvegum
eins og ástand veganna er í dag.
Að sögn Garðars er nauðsynlegt
að haga akstri eftir aðstæðum
og fara eftir lögum þegar ekið
er um vegi landsins. Hann bætir
við að allt of lítið þurfi að bera
út af til þess að svona akstur
leiði hreinlega af sér dauðaslys.
„Eitt banaslys er of mikið,“
segir Garðar, en Sniglarnir hafa
þurft að horfa á eftir góðum
félögum vegna slysa. Rétt skal
taka fram að þeir óku hvorki
óvarlega né ofhratt.
Golfmót í Stykkishólmi:
Flugvél lenti á
áttundu braut
■ Héldu að hún væri að nauðlenda ■ Fjöldi fólks á vellinum.
Eftir Gunnar Reyni Valþórsson
gunnar@bladid.net
Furðulegt atvik varð í Stykkishólmi
á sunnudaginn fyrir viku þegar flug-
maður einshreyfils flugvélar gerði
sér litið fyrir og lenti vél sinni á átt-
undu brautinni á golfvelli bæjarins,
Víkurvelli. Á vellinum var KB-mótið
í fullum gangi og því fjöldi fólks á
svæðinu. Áhorfendur héldu í fyrstu
að um nauðlendingu væri að ræða
en annað kom á daginn því stuttu
seinna hóf vélin sig til flugs á ný.
Tveir að pútta á sjöundu
Eyþór Benediktsson varð vitni
að atvikinu. „Það var í gangi heljar-
mikið mót þennan dag en sem betur
fór voru ekki mjög margir úti á vell-
inum þegar þetta gerðist," segir Ey-
þór og bætir því við að stuttu seinna
hafi völlurinn verið orðinn fullur.
NÝlt VALIíOSTUH Á
transport 4
toll- og flutningsmiðlun ehf t
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
„Þetta var svona venjuleg einshreyfils-
vél en hún virtist vera alveg ómerkt.
Vélin kom fyrst inn yfir völlinn mjög
lágt og hægt. Við tókum einmitt
eftir henni því hún lækkaði sig þegar
hún fór yfir völlinn." Eyþór segir að
vélin hafi því næst hækkað flugið á
ný og tekið hring yfir bænum. „Það
næsta sem gerðist var að vélin kemur
úr vesturátt og lækkar sig meira og
meira þannig að þegar hún var til
móts við okkur sem stóðum við golf-
skálann var hún eiginlega í sömu
hæð og skálinn, sem stendur á litlum
hól.“ Eyþór segir að síðan hafi flug-
maðurinn einfaldlega lent vélinni
mjúklega við endann á áttundu braut
vallarins. „Sjöunda flötin liggur al-
veg við endann á áttundu brautinni
og þar voru tveir að pútta. Það var
holl nýfarið af áttundu brautinni og
þau voru því komin úr flugstefnunni
sem betur fer.“ Eyþór segir að fólkið á
vellinum hafi haldið að um nauðlend-
ingu væri að ræða. „En síðan renndi
hún sér af brautinni, upp á gamlan
vegarslóða sem er þarna og stöðvaði
við íbúðarhús sem eru þarna rétt við
golfvöllinn.“
Hann segir að tveir eða þrír menn
hafi stigið út úr vélinni. „Við héldum
að þeir ætluðu að kíkja á mótor-
inn eða athuga bilunina en eftir
smástund þá fór hún af stað aftur.
Okkur sýndist að einn farþeganna
hafi orðið eftir á jörðu niðri en sáum
það ekki almennilega. Síðan tók hún
einfaldlega flugið á ný og notaði golf-
völlinn reyndar ekki í það skiptið
heldur slétt svæði fyrir utan völl.“
Leist ekki á blikuna þegar
Fokkerinn mætti
Að sögn Eyþórs vita bæjarbúar
enn ekkert hvað flugmanninum
gekk til með athæfinu eða hverjir
voru á ferð og í Stykkishólms-Póst-
inum er greint frá því að ekki sé
vitað hverjir þarna voru að verki.
„Við gátum ekki séð nein merki á
vélinni en Rúnar Gislason, héraðs-
dýralæknir náði myndum af henni
þegar hún var að taka á loft. Okkur
brá svo aftur þegar þremur tímum
seinna Fokker-vél kom yfir völlinn
í lágflugi og leist okkur ekki á blik-
una þá.“ Fokkerinn lenti hins vegar
á flugvellinum eins og lög gera ráð
fyrir og segir Eyþór undarlegt að
litla vélin hafi ekki farið að dæmi
þeirrar stærri, þar sem flugvöllur
bæjarins er aðeins í um tveggja
kílómetra fjarlægð frá golfvellinum.
„Maður hefði getað skilið þetta ef
flugmaðurinn hefði neyðst til að
lenda þarna. En ef þetta var bara
einhver leikaraskapur þá er þetta
auðvitað síðasta sort,“ segir Eyþór
Benediktsson, sjónarvottur.
Samkvæmt upplýsingafulltrúa
Flugmálastjórnar er atvikið til athug-
unar hjá stofnuninni.
Á förnum vegi
Er þörf fyrir inn-
flytjendaflokk?
Eva Hrund Hiynsdóttir,
nemi
,Mér finnst að samfélgið ætti ekki að
þurfa slíkan flokk. Því miður er það
samt þannig að málefni innflytjenda
Isak Sigurjón Bragason,
háskólanemi
,Mér finnst ekki eiga vera slíkur flokkur
á Íslandí. Mérfinnst að innflytjendur
eigi bara að vera partur af öðrum
flokkum".
Jiri Gregr,
tékkneskur túristi
,Ég held að slíkur flokkur geti haft
vond áhrif á íslenska menningu."
Dagný Björk Erlingsdóttir,
verslunarkona
,Mér finnst slíkt framtak frábært. Það
er eiginlega bara æðislegt enda er ég
að deyja úr hamingju."
Ingi Ulfur Helgason,
sölumaður
„Mér líst ekkert á það. Mér finnst bara
ekkert vit í því að minnihlutahópar
stofni stjómmálaflokk."
tþ IMMdrt$r LéttskýjaSia*„ Skýjað AlskýjaðRignlng,lítllsháttar^^VRlgning^^>Súld - SnJókoma«££-Slydda-fi^ Snjúél
Skúr
iiil/jjU* 28
Algarve
Amsterdam 23
Barcelona 31
Berlín 23
Chicago 27
Dublin 19
Frankfurt 26
Glasgow 15
Hamborg 28
Helsinki 22
Kaupmannahöfn 20
London 24
Madrid 33
Mallorka 31
Montreal 21
NewYork 26
Orlando 26
Osló 19
París 24
Stokkhólmur 24
Vín 30
Þórshöfn 13
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 9020600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands