blaðið - 31.07.2006, Blaðsíða 4
4IFRÉTTIR
MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2006 blaAiö
Vörumerki metin til fjár:
Kók verðmætast
mbl.is Coca-Cola er verðmætasta vöru-
merki heims, fimmta árið í röð, sam-
kvæmt árlegri könnun alþjóðlegu ráð-
gjafarstofnunarinnar Interbrand.
Vörumerkið Coca-Cola er metið
á 67 milljarða dala, jafnvirði 4900
milljarða króna. Microsoft er í öðru
sæti, metið á 57 milljarða dala og
IBM er metið á 56 milljarða dala.
Bandarísk fyrirtæki eru áberandi
á listanum yfir verðmætustu vöru-
merkin en finnski farsímaframleið-
andinn Nokia komst aftur í hóp 10
verðmætustu vörumerkjanna, er í 6.
sæti og metinn á 30 milljarða dala.
VERÐMÆTUSTU
VÖRUMERKIN
Coca-Cola, 67 milljarðar dala
Microsoft, 57 milljarðar dala
IBM, 56 milljarðar dala
General Electric, 48 milljarðardala
Intel, 32 milljarðar dala
Nokia, 30 milljarðar dala
Toyota, 28 milljarðar dala
Disney, 28 milljarðar dala
McDonald’s, 27 milljarðar dala
Mercedes, 22 milljarðar dala
GleraugnaversVún
fyrir konurjm^
STÆRRI VERSLUN
MEIRA ÚRVAL
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfirði
Þar sem gæðagle!
... .kosta minnal
íll
sco;
V i
Alvöru fjallahjúl
1111531311 hafin
Full búð af góðum tilboðum
Rockadile AL 26
Frábært Alvöru fjallahjól,
21 gíra á 30% afslætti
28.S00
Lögreglumenn
i Hafnarfirði: 40
Lögreglumenn
í Kópavogi: 31
Fjöldi lögreglumanna
á höfuðborgarsvæðinu
Alls munu um 350 lögreglu-
þjónar starfa í hinu nýja
umdæmi á höfuðborgarsvæöinu.
Lögreglan í Kópavogi:
Þarf ekki að hafa
áhyggjur af manneklu
■ Bíða spenntir eftir skipulagsbreytingum ■ Löggæslan efld
Eftir Höskuld Kára Schram
hoskuldur@bladid.net
Fjöldi íbúa á hvern lögregluþjón mun
snarminnka í Kópavogi þegar skipu-
lagsbreytingar á lögregluumdæmum
ganga í gildi næstu áramót. í dag er
einn lögregluþjónn á móti 850 íbúum
í Kópavogi en í Reykjavík er hlut-
fallið um 420 manns á móti einum
lögregluþjóni. Nýskipaður lögreglu-
stjóri á höfuðborgarsvæðinu segir
að löggæslan muni eflast og verða
betri eftir að skipulagsbreytingarnar
ganga í garð.
Ríkislögreglustjóri
bjargar málunum
„Ef ekki væri fyrir þessa samnýt-
ingu á mannskap þá væri ástandið
frekar slæmt hjá okkur hérna í Kópa-
voginum," segir Eiríkur Tómasson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn í Kópa-
vogi. Bæjarfélagið hefur vaxið gríð-
arlega á undanförnum árum án þess
að lögreglumönnum hafi fjölgað hlut-
fallslega jafnmikið. Eiríkur segir sam-
starf við Ríkislögreglustjóra bæði
hvað varðar fjarskiptamiðstöð sem
og samnýtingu á mannskap gera það
að verkum að hlutirnir gangi nokkuð
eðlilega fyrir sig. „Það má segja að
þessar breytingar sem hafa verið
gerðar varðandi fjarskiptamiðstöð
Ríkislögreglustjóra og sérsveitina
geri það að verkum að hér ríkir ekki
neyðarástand."
Nú eru starfandi 31 lögregluþjónn
I Kópavogi en þar búa rúmlega 26
þúsund manns. Hlutfallið er því einn
lögreglumaður á móti 850 íbúum. I
Vonast til þess
að skipulags-
» - 1 breytingar
R ■ skili sér í betri
mm *•-->«., löggæslu
BUE | Stefán Eiríksson,
lögieglustjórihöiuð-
■ BS& borgarsvæðisins.
Reykjavík er þetta hlutfall um 420
íbúar á móti einum lögregluþjóni
og í Hafnarfirði eru 561 íbúi á móti
hverjum lögreglumanni.
Samkvæmt skipulagsbreytingum
sem samþykktar voru á Alþingi í
vor verður lögregluumdæmum á
landinu fækkað úr 26 í 15. Þá munu
umdæmin þrjú á höfuðborgarsvæð-
inu þ.e. Hafnarfjörður, Kópavogur
og Reykjavík sameinast í eitt. Mun
lögsaga þessa nýja umdæmis einnig
ná yfir Garðabæ, Mosfellsbæ, Kjósa-
hrepp, Álftanes og Seltjarnarnes.
Eftir breytingar verður hlutfallið
á höfuðborgarsvæðinu 544 íbúar á
móti einum lögregluþjóni.
Eiríkur segir skipulags
breytingarnar valda því
að löggæslan muni
eflast. „Við erum
hættir að hafa
áhyggjur af manneklu
þar sem stutt er í
skipulagsbreyt
i n g a r n a r
ganga í
gegn.“
Betri löggæsla
Á höfuðborgarsvæðinu eru nú starf-
andi 350 lögreglumenn samkvæmt
ársskýrslu Ríkislögreglustjóra en alls
búa um 189 þúsund manns í hina
nýja sameinaða umdæmi. Að sögn
Stefáns Eiríkssonar, nýskipaðs lög-
reglustjóra höfuðborgarsvæðisins,
mun sameiningin skila sér í aukinni
hagræðingu. „Eftir því sem lögreglu-
lið verður stærra því meiri mögu-
leikar eru hvers konar á hagræðingu.
Markmiðið með þessum breytingum
er að nýta betur fjármuni og ná meiri
krafti út úr löggæslunni en hægt
er með góðu móti í dag. í kjölfarið
opnast kannsý möguleikar á því að
fjölga lögreglumönnum."
Að sögn Stefáns sýna skýrslur að
hlutfall lögreglumanna miðað við
íbúafjölda sé í hærra lagi hér á landi
miðað við hin Norðurlöndin. Þá
segir hann ekki liggja fyrir hvort ein-
hverjum lögreglustöðum verði lokað
en allt slíkt eigi eftir að kanna nánar.
„Menn eru bara að skoða hvernig
hægt er að nýta og stýra löggæslunni
út frá þeim lögreglustöðum sem eru
í dag. T.d. væri hægt að nýta stöð-
ina í Kópavogi fyrir Breiðholtið
osfrv. Þetta á allt saman eftir að
skoða nánar."
“■—‘ingar hjá lögregl-
unni Umtalsverðar
ikipulagsbreyting-
ar munu eiga
stað hjá
lögreglunni
næstu
áramót
Fólskuleg árás í miðbæ Reykjavíkur:
Beit eyra af plötusnúði
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Plötusnúðurinn Kári Arnþórsson
varð fyrir því að dauðadrukkinn
maður beit hluta af eyra hans þegar
hann ætlaði að aðstoða hann.
Maðurinn mun hafa verið áfengis-
dauður inni á klósetti á efri hæð Kaffi-
barsins þegar plötusnúðurinn knái og
annar maður ætluðu að hjálpa honum.
Þeir reistu hann við og hjálpuðu niður
tröppurnar og þá réðst hann á Kára.
„Hann rankaði bara við sér og beit
af mér eyrað,“ segir Kári hálfhissa
á viðbrögðum mannsins enda hafi
þeir eingöngu verið að reyna hjálpa
honum. Dyravörður staðarins segir
manninn hafa hlaupið út um leið og
hann beit eyrað af. Tveir menn eltu
hann og náðu að lokum. Dyravörður
staðarins hringdi undir eins á lögregl-
una sem keyrði Kára upp á spítala.
„Þeir saumuðu eyrað aftur á,“ segir
Kári sem vill sem minnst úr málinu
gera. Hann segir að hann nái fullum
bata en ófyrirséð hvort ör komi eftir
árásina eða ekki.
Kári segist undrandi á hegðun
mannsins og getur ekki ímyndað sér
hvað honum hafi gengið til.
„Það er svolítið skrýtið þegar mann-
æta ræðst á mann,“ segir Kári og hlær
aðspurður hvernig hann hafi það.
Hann segist ekki ætla láta þetta slá sig
út af laginu og stefndi á að fara á tón-
leikana með Sigur Rós þegar við hann
var rætt.
„Maður hlustar vel með báðum
eyrum, eins gott að það verði flott
hljóðkerfi á staðnum," segir Kári hlæj-
andi. Málið er í rannsókn.