blaðið - 31.07.2006, Page 19
blaðið MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2006
27
heimilið
Hvar sem ég halla
mínu höfði, þar er
heimili mitt.
heimilid@bladid.net
Poul Yong > Wb?Jm3£U'
Náttúrulega vinsæll kostur
Náttúran í öllum sínum myndum nýtur sívax-
andi vinsælda. Þetta má til að mynda greina í
auknu vægi náttúruverndar og heildrænnar
hugsunar í stjórnmálum og ekki síst í afstöðu
kjósenda. Náttúran á einhvern veginn betra að-
gengi að hugsun manna nú en fyrir nokkrum
árum og áhrifa þessa gætir víðar en í því sem
fólk setur í ruslatunnurnar sínar. Náttúruskreyt-
ingar hvers konar hafa verið óhemju vinsælar
í innanhúsarkitektúr og það sem byrjaði á
náttúrulegu efnisvali eins og stein- og viðarteg-
undum hefur nú verið tekið íengra.
Tré, runnar, strá, hvers kyns trefjabyggðar teg-
undir eru orðnar vinsæl þemu í skreytingum á
innanstokksmunum. Þessi stefna kemur ekki
síst til vegna austrænna áhrifa í innanhúsarki-
tektúr sem byggjast á einfaldari og úthugsaðri
uppsetningum herbergja. Græni liturinn end-
urvarpar ró í umhverfi sitt og hefur löngum
verið vinsæll litur í svefnherbergi. Með auknum
hraða í vestrænum samfélögum, stressi og álagi
er æ algengara að fólk hanni heimili sín út frá
hugmyndum um griðastað sem býður fyrst og
fremst upp á frið og ró.
Gerðu það sjálfur!
Svona skuggamynd má einfaldlega mála á vegg með
pvf að taka Ijósmynd og varpa henni á vegginn með
myndvarpa og mála útlínur hennar á vegginn.
Hin austurlenska ró
Handmáluð kínversk veggfóður njóta reglulega mik-
illa vinsælda enda eru þau ísenn einföld og skraut-
leg og lifga Ijúflega upp á umhverfið.
Náttúruleg sköpun
Þessir sniöugu myndarammar -eða
myndastandar eru útbúnir úr trjá-
greinabútum sem njóta svo stuðnings
úr trjáskífum sem hafa verið holaðar.
Efsti hluti greinanna er svo tálgaður i
hefðbundnar þvottaklemmur.
Náttúran í
stofunni heima
Veggfóörið á gangveggnum gefur
til kynna að friðsæll skógur sé á
næsta leiti og að íbúi þessarar íbúð-
ar þurfi ekki annað en aö snúa sér
viö til þess að vera kominn í faðm
náttúrunnar.
Að innan sem utan.
Bonzai-tré eru ekki einungis forkunnarfögur til
skreytinga heldur einnig til að róa hugann. Þau
þurfa mikla umhyggju og alúö og daglega umhirðu.
naverslun
jyrir stelpur
STÆRRI VERSLUN
L MEIRA ÚRVAL
Reykavíkurvegur 22
220 Hafnarfírði
Hvíld í skauti náttúrunnar
Laufblaöa- og blómaskreytingar á koddum geta tónað fallega
við aðrar náttúruskreytingar í herberginu.
Þar sem gæðagleraugu
....kosta minna