blaðið - 31.07.2006, Qupperneq 23
blaðiö MÁNUDAGUR 31. JÚLÍ 2006
31
Spornað við myndatökum:
Búnaður sem gerir
Vísindamenn við tækniháskóla í
Georgíuríki í Bandaríkjunum hafa
smíðað frumgerð tækis sem gerir
stafrænar ljós- og kvikmyndavélar
óvirkar. Slíkt tæki mætti meðal
annars nota til að koma í veg fyrir
að fólk gæti myndað á tilteknum
stöðum þar sem það er ekki talið
æskilegt einhverra hluta vegna.
Þannig mætti til dæmis hindra að
fólk notaði myndavélar til iðnað-
arnjósna eða til að taka upp ólög-
legar útgáfur af kvikmyndum í
kvikmyndahúsum.
Frumgerð tækisins getur skynjað
stafrænar myndavélar í ákveðnu
rými og gert þær óvirkar.
Enn á eftir að sníða ýmsa van-
kanta af búnaðinum en síðari út-
gáfur hans gætu virkað án þess að
eftir honum yrði tekið.
Útbúnaðurinn virkar þó ekki á
hefðbundnar filmumyndavélar eða
einnar linsu spegilvélar (SLR) sem
flestir atvinnuljósmyndarar nota.
Með auknum rannsóknum
mætti útbúa gerð tækisins sem
gæti nýst í kvikmyndahúsum en
talið er að kvikmyndaiðnaðurinn
tapi um 3 milljörðum Bandaríkja-
dala vegna ólöglegra útgáfa af kvik-
myndum. í mörgum tilfellum eru
ólöglegu myndirnar teknar upp í
kvikmyndahúsum.
myndavélar
óvirkar
L_
Umferðin:
Aldrei of
varlega farið
Ökumaður þessarar bifreiðar
missti stjórn á henni á Sæbraut
í Reykjavík á dögunum. Skipti
engum sköpum að bifreiðin lenti
á hlið í skurði sem grafinn hafði
verið við við götuna í tengslum við
vegaframkvæmdir á Sæbrautinni.
Betur fór en á horfðist en atvikið
sýnir þó mikilvægi þess að fara var-
lega í umferðinni, ekki síst þar sem
framkvæmdir eru í gangi.
Gæðir sér
á ávöxtum
Þessi ísbjörn í stærsta dýra- og
skemmtigarði Suður-Kóreu gæddi
sér á ávöxtum sem frystir höfðu
verið í stóra klaka sem síðan var
komið fyrir í búri ísbjarnarins.
Mikill hiti er í Suður-Kóreu þessa
dagana og ísbjörninn því kuld-
anum feginn.
James Bond:
Feneyjar fuðruðu
upp á Englandi
Mikill eldur braust út í hinu
sögufræga Pinewood-myndveri í suð-
urhluta Englands. Verið var að taka
upp atriði fyrir nýjustu James Bond-
myndina, Casino Royale, þegar ekki
vildi betur til en svo að eftirlíking
af Feneyjum sem byggð hafði verið
í myndverinu brann til kaldra
kola. Sem betur fór fyrir framleið-
endurna mun tökum þó hafa verið
lokið á sviðinu og var verið að taka
leikmyndina niður þegar eldurinn
braust út.
Pinewood hefur verið notað í
fjölmörgum James Bond-myndum
í gegnum árin og er þetta í annað
sinn sem eldur brýst út þar.
Fullkomin gæði og þægindi
í heitum nuddpotti frá MASTER SPAS’
Master Spas nuddpottarnir eru sérhannaðir til að taka á öllum líkamanum
frá hálsi og niður í tær. Nuddstútarnir eru í mismunandi útfærslum og
eru hannaðir til að gefa kraftmikið nudd á rétta staði á líkamanum.
Master Spas gefur góða meðferð, eykur blóðstreymi, losar um vöðvabólgu og streitu.
Master Spas nuddpottarnir eru hlaðnir búnaði og þægindum.
Margar stærðir og gerðir, frá 3 - 4 manna upp í 8 manna. Besta verðið?
LSX 700
214 x 214 x 92 cm
LS 700
214 x 214 x 92 cm
Exeter SE
214 x 214 x92cm
Nuddstútar fyrir
Háls, Herðar
og Axlir
Master Spas LS 750FST hlaut
viðurkenninguna “Best Buy”
Þessi frábæri nuddpottur er með
15” flatskjá, DVD / CD spilara,
útvarpi og hljómkerfi.
4 Þrepa ECO PUR
hreinsikerfi sem er
samsett af, Forsiu
Stóm Hreinsisíu,
smásíu og Ozon.
ECO
MIR
LS 750 FST
214 x 214 x 92 cm
^ V www.ofnasmidja.is
' v OFNASMIÐJA
m REYKJAVÍKUR
Vagnhöfða 11 110 Reykjavík
® 577 5177 fax. 577 5178