blaðið - 03.08.2006, Page 1
FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS!
■FERÐALOG
Eitt það mest heillandi
við ferðalög er að þá
næst ekki í mann í síma.
| SÍÐA18
■ MEWWIWG
Sigurður Örlygsson heldur
upp á sextugsafmælið sitt
með myndlistarsýningu í
Listhúsi Ófeigs. |s(ða37
174. tölublaó 2. árgangur
fimmtudagur
3. ágúst 2006
Valgerður Auðunsdóttir bóndakona á Húsatóftum I á Skeiðunum, óttaðist
um eiginmann sinn og dóttur þegar þau börðust við að bjarga gripum úr
miklum eldi sem braust út á baenum í gærmorgun. „Ég hefði viljað koma í
veg fyrir að þau færu þarna inn, maður gerir ekki svona. Þau eru dýrmæt-
ari en gripirnir.“
Á fjórða tug kúa brunnu inni en ábúendum tókst með snarræði að bjarga
nokkrum gripum. Fjósið og hlaðan á bænum urðu eldinum að bráð
en slökkviliði tókst að koma í veg fyrir að eldurinn læsti sig í verkfæra-
skemmu. Heimilisfólkið þakkar slökkviliðinu fyrir snör handtök. Eldsupp-
tökeruókunn. sfÐA4
Óttaðist um mann sinn og dóttur
Þrír krakkar gripnir við að hnupla áfengi
Þrír 12 ára stálu vodkapelum
■ Settu tvo vodkapela inn á sig ■ Hluti af stærra vandamáli segir forvarnafulltrúi
Eftir Val Grettisson valur@bladid.net
Þrír tólf og þrettán ára drengir voru gripnir i
verslun ÁTVR í Hafnarfirði á þriðjudaginn við
að stela tveimur vodkapelum. Starfsmenn versl-
unarinnar gripu þá þegar þeir gengu út en einn
þeirra komst undan á hlaupum. Hann náðist
síðar og komust báðir pelarnir til skila. Athaefið
hefur verið tilkynnt til lögreglu.
Drengirnir þrír komu inn í Áfengisverslun
ríkisins um miðjan dag á þriðjudaginn og létu
lítið fyrir sér fara að sögn sjónarvotts sem var
staddur í versluninni. Drengirnir tóku tvo vodka-
pela og freistuðust til þess að ganga út og komast
undan með þýfið. Vökulir starfsmenn ríkisins
höfðu veitt þeim athygli og eltu þá út úr búðinni.
Þar gripu þeir tvo pilta en einn kom sér undan
á hlaupum. Pelarnir tveir voru innanklæða á
drengjunum og komust þeir til skila.
Athæfið var tilkynnt til lögreglu og þriðji pilt-
urinn náðist í kjölfarið. Að sögn varðstjóra lög-
reglunnar í Hafnarfirði var haft samband við for-
eldra og svo var félagsþjónustan látin vita en slíkt
er alltaf gert þegar einstaklingur undir lögaldri
verður uppvís að afbroti. Drengjunum var sleppt
í fylgd foreldra samdægurs. Málið telst upplýst
að fullu.
„Þetta er grafalvarlegt vandamál,“ segir Árni
Guðmundsson, fulltrúi æskulýðs- og tómstunda-
mála í Hafnarfirði. Hann segir málið hljóma eins
og hluti af stærra vandamáli. Hann segir allt of
mörg börn vera veglaust á götum úti.
„Ef börn eru komin svona langt, svona ung, þá
er eitthvað stórkostlegt að,“ segir Árni og telur
rót vandans mega finna í skorti á úrræðum fyrir
unglinga sem eiga við vandamál að stríða. Hann
segir að unglingageðdeild hafi ekki fylgt þróun
samfélagsins undanfarin ár og ljóst er að hús-
næði þeirra er löngu sprungið. Hann segir að það
hafi alvarleg áhrif á skólakerfið sem þarf að tak-
ast á við einstaklinga með alvarlveg vandamál án
sértækra sérfræðikunnáttu.
„Það er mikið af krökkum sem þurfa á verulegri
aðstoð að halda," segir Árni áhyggjufullur vegna
ástandsins. Málið er enn í vinnslu hjá lögreglu.
Feröalög:
Löng bið
í Leifsstöð
Farþegar hafa þurft að bíða
langtímum saman í biðröð
eftir innritun í flug í Leifsstöð.
Gunnar Ólsen, hjá IGS, flugþjó-
nustunni á Keflavíkurflugvelli,
segir ástæðurnar vera tvær.
Annars vegar hvað flugfélö-
gin tímasetji flugin sín með
skömmu millibili og hins vegar
að flugstöðvaraðstaðan sé
ófullnægjandi. S|ÐA
■
Þingmenn:
Strandaglópar
í Stokkhólmi
Þrír þingmenn og tveir starf-
smenn Alþingis misstu af fyrsta
degi þingmannaráðstefnu um
norðurskautsmál vegna tafa á
flugi og þess sem einn þeirra kal-
lar klúður hjá starfsmönnum Ice-
landair. Björgvin G. Sigurðsson
þingmaður segir að ef þingmen-
nirnir hefðu ekki gripið til sinna
ráða hefðu þeir sennilega aldrei
komist á leiðarenda.
SIÐA2
IGOLF
Rétta kylfan
„Hver og einn golfari þarf kylfu sem hent-
ar honum. Því er mikilvægt að standa vel
að valinu á réttu kylfunni sem hentar fyrir
stærð og gerð kylfingsins," segir Sigurð-
ur Hafsteinsson golfkennari. i síða 38
■ VEÐUR
Þykknar
Þykknar upp
suðvestan til og rignir.
Hiti 12 til 23 stig, hlýjast
norðaustan til.
| SÍÐA2
■ GOÐSÖGW
Sérvitur stórstjarna
Katharine Hepburn
uð og sérvitur. Hún fór sínar
og er ein skærasta stjarna Hollywood
fyrr og síðar.
| SÍÐUR24 OG25
Eldri týpur á
Góður afs!
sum og serium
Eingöngu í fáeina daga!
byggt
„ , . Kringiunni
Smarahnd 568 9400
554 7760