blaðið - 03.08.2006, Side 4

blaðið - 03.08.2006, Side 4
4 I FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaðiö Sprengjuárás Fólk skoðar verksummerki sprengingar. Eldsvoði á Skeiðum: Fjósið og hlaðan brunnin til kaldra kola Afganistan: Danskur hermaður sár Danskur hermaður særðist í suð- urhluta Afganistans í gær þegar tali- banar gerðu árás á danska herstöð. Árásin er sú þriðja á þeirri viku sem liðin er síðan Danirnir voru sendir í landshlutann þar sem mikil róstur hafa verið undanfarið. Á þriðjudag létust þrír breskir hermenn á svip- uðum slóðum og voru það fyrstu dauðsföilin á meðal hermanna NATO síðan að bandalagið tók við stjórn mála i Suður-Afganistan af Bandaríkjamönnum. Danski hermaðurinn var fluttur á spítala í Kandahar en frekari upplýsingar voru ekki gefnar um ástand hans. Forvarnir: Vekjum karla til umhugsunar Karlahópur Femínistafélags íslands og V-dagssamtökin hófu í gær herferðir til að hvetja karla til umhugsunar og umræðu um nauðganir. „Við erum bæði að beina spjótum okkar að körlumsegir Gísli Hrafn Atlason í karlahópi Femínistafélags Islands. Hann segir það sameiginlegt mat sam- takanna að karlmenn séu í mjög sterkri stöðu til að hafa áhrif á umræðuna í sínum vinahópi. Karlahópur Femínistafélagsins er að hefja átak sitt fjórða árið i röð. Það felst meðal annars í að hengja upp veggspjöld sem eiga að vekja fólk til umhugsunar auk þess sem félagar í hópnum verða fyrir framan áfengisversl- anir, á Reykjavíkurflugvelli og BSÍ til að ræða við fólk um mál- efnið. Nokkrir fara einnig til Vest- mannaeyja. „Við verðum þar part úr helginni, ekki til að standa neinn vörð heldur til að vera sýni- leg og spjalla við gesti,“ segir Gísli Hrafn. Eigum nokkra TRIGANO tjaldvagna á frábœru tllboösveröl. Komdu og kynntu þer feröa vagnaúrvalið hjá okkurl SEGLAGERÐIN ÆGIH Tókst að bjarga nokkrum gripum ■ Slökkviliðið stóð I Ijósum logum Eins og sjá má á myndum sem heimasætan á bænum tók logaði glatt í útihúsunum Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net „Það er bara allt brunnið hér,“ segir Valgerður Auðunsdóttir bóndakona á Húsatóftum I á Skeiðunum, en í gærmorgun brunnu hlaða og fjós á bænum til kaldra kola. 30 kýr dráp- ust auk nokkurra kálfa sem og allar hænurnar á bænum. Engin meiðsl urðu á fólki og gekk slökkviliði vel að eiga við eldinn og tókst að koma í veg fyrir að eldurinn læsti sig í önnur hús. Heimilisfólki tókst að bjarga fimm kúm. „Ég heyrði bara eitthvert hljóð og þegar ég fór að gá þá var þetta bara svona, allt í ljósum logum,“ segir Valgerður. Eiginmanni Valgerðar og dóttur tókst að bjarga nokkrum gripum sem Valgerður segir að hafi verið stórhættulegt athæfi af þeirra hálfu. „Ég hefði viljað koma í veg fyrir að þau færu þarna inn, maður gerir ekki svona. Þau eru dýrmæt- ari en gripirnir." Valgerður segir að þeim hafi þó ekki orðið meint af björgunarstörfunum. Að sögn hennar kom slökkvi- liðið fljótlega á staðinn. „Það var allt í mjög góðum gír. Maður stóð þarna og gat ekkert gert á meðan beðið var eftir slökkviliðinu en þeir komu eftir ótrúlega stutta stund. Það var dimma þoka og það var erf- itt fyrir þá að keyra.“ Húsatóftir I eru í aðeins 400 metra fjarlægð frá þjóðveginum en þrátt fyrir það sá síökkvilið ekki heim að bænum frá veginum. Verkfæraskemma var í hættu vegna eldsins en Valgerður segir að slökkviliðið hafi komið í veg fyrir það að skemman yrði eldinum að bráð. „Einangrun var byrjuð að bráðna en þeir björguðu því, guði sé lof. Þeir stóðu sig mjög vel í þessu og vissu alveg hvað þeir voru að gera.“ Valgerður segir að heimilisfólkið sé ekkert farið að huga að endur- uppbyggingu á húsunum eða hvort af þeim verði yfirleitt. „Við ætlum ekkert að gera það í dag að minnsta kosti.“ Fjórir búa á bænum. „Það eru við hjónin, dóttir okkar sem starfar á Hvanneyri og er hér heima núna, og síðan erum við með vinnumann frá Póllandi. Hann fór í þriggja daga frí og slapp því við þessi ósköp blessaður, guði sé lof.“ Upptök eldsins voru ókunn þegar Blaðið fór í prentun. Lögreglan á Selfossi hefur leitað eftir sérfræði- aðstoð frá Reykjavík vegna rann- sóknarinnar og er gert ráð fyrir að hún taki nokkurn tíma. Stígamótakonur ósáttar við skipuleggjendur útihátíða: Litlar forvarnir við kynferðisofbeldi Enginn mótshaldari útihátíðar um verslunarmannahelgina hefur þegið boð Stígamóta um að koma upp aðstöðu þar sem hægt er að taka á móti þeim sem verða fyrir ofbeldi. Talskonur Stígamóta sendu móts- höldurum útihátíða bréf í júní þar sem þær hvöttu til þess að slíkri að- stöðu yrði komið upp. Guðrún Jóns- dóttir hjá Stígamótum segist vona að bréfið hafi borið árangur, en telur þó að mótshaldarar séu hugs- anlega tregir til að fjalla um þessi „Bömin eru eftirlitslaus þegar foreldrar hleypa þeim á útihátíð.” Guðrún Jónsdóttir hjá Stigamótum mál opinskátt þar sem slíkt tal getur sett blett á ímynd hátiðanna. Á síðasta ári kom í ljós að ellefu stúlkur leituðu sér hjálpar hjá Stíga- mótum vegna kynferðisbrota sem áttu sér stað á útihátíðum. Þetta var þó ekki fyrr en töluvert var liðið frá sjálfri verslunarmannahelginni. „Þetta segir okkur að þarna er virk- lega brotalöm á umönnun unglinga,“ segir Guðrún. „I fyrsta lagi eru þau án foreldra sinna og þurfa því ekki að mæta þeim eftir skemmtun. I öðru lagi þá gildir ekki sú regla sem fólk er almennt sammála um; að á venjulegum skemmtunum þar sem áfengi er haft um hönd skuli unglingum yngri en átján ára mein- aður aðgangur.“ Þetta segir hún auka hættuna á nauðgunum.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.