blaðið - 03.08.2006, Síða 8

blaðið - 03.08.2006, Síða 8
8IFRÉTTIR FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaöió Verslanir á höfuöborgarsvæðinu: Unglingar selja tóbak ■ Á ekki að gerast Heilbrigðiseftirlit gerir stikkprufur Fídel Castro: Segist við hestaheiisu „Ég er við hestaheilsu," höfðu kúbverskir fjölmiðlar eftir Fídel Castró, leiðtoga eyríkisins, í gær. Hann sagðist í yfirlýsingu vera á batavegi eftir aðgerð sem hann gekkst undir vegna inn- vortis blæðinga. í yfirlýsingu Castro kom ekkert fram um hvenær hann myndi snúa aftur til starfa. Hann fól bróður sínum Raul völd sín á mánudag þegar hann gekkst undir aðgerðina og er það í fyrsta skipti frá valdatöku Castro sem einhver annar en hann fer með æðstu völd á Kúbu. Það viðhorf hefur heyrst á Kúbu, og reyndar víðar, að valdaframsal Fidels Castro til Rauls bróður síns kunni að vera undirbúningur að því að hann láti af völdum á næstunni. Castro verður áttræður í þessum mánuði og hefur verið við völd á Kúbu í tæpa hálfa öld. Forsvarsmenn Evrópusambandsins óskuðu Castro skjóts bata í gær, líkt og leiðtogar margra Mið- Ameríkuríkja höfðu áður gert. Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Blaðinu hafa borist ábendingar þess efnis að eitthvað sé um að fólk sé af- greitt um tóbak í verslunum og sölu- turnum án þess að afgreiðslufólkið hafi til þess aldur. í tóbaksvarnar- lögum er skýrt kveðið á um að selj- endur tóbaks verði að hafa náð 18 ára aldri. Lögin veita þó heimild til undanþágu en á skrifstofum heil- brigðiseftirlita á höfuðborgarsvæð- inu kannast menn ekki við að slíkar heimildir séu í gildi í dag. Gera stikkprufur Hjá Heilbrigðiseftirliti Hafnar- fjarðar- og Kópavogssvæðis fengust þær upplýsingar frá Guðmundi Einarssyni, framkvæmdastjóra, að slík heimild hafi ekki verið veitt í langan tíma. „Það eru engar undan- þágur í gangi núna. Það hefur enginn sótt um og ef að það gerðist þá væri umsóknin borin undir Vinnumála- stofnun,“ segir Guðmundur og bætir við að undanþágurnar hafi helst verið notaðar fyrst þegar lögin tóku gildi. Aðspurður hvernig fylgst væri með því að reglunum sé framfylgt segir Guðmundur: „Við gerum stikk- prufur í þessum málum og þetta hefur ekki verið vandamál hér hjá okkur.“ Ingibjörg H. Elíasdóttir hjá Um- hverfissviði Reykjavíkurborgar tekur í svipaðan streng. „ Það er engin und- anþága í gangi. Þetta er veitt til sex mánaða í senn en hér kannast menn ekki við að hafa veitt slíka undanþágu lengi. Þetta var svolítið gert fyrsta árið en nú hafa menn lært á lögin og margir hafa komið sér upp kerfi þar sem tóbakið er aðeins selt á einum kassa. Við tökum á móti kvörtunum frá almenningi og förum þá í málið en ég held að það sé langt síðan slík kvörtun barst sfðast. Hins vegar fáum við öðru hvoru kvartanir um að það sé verið að selja unglingum tóbak.“ Skýrar vinnuregiur Ein ábending sem barst Blaðinu varðaði Nóatúnsverslun. Kristinn Skúlason, rekstrarstjóri Nóatúns, segir að reglurnar hjá þeim séu skýrar. Hann kannast ekki við að hafa fengið kvartanir vegna slfkra atvika inn á borð til sfn enda eigi þetta ekki að gerast. „Reglurnar hjá okkur eru skýrar, starfsmönnum er óheimilt að afhenda tóbak, hafi þeir ekki aldur til að selja það. Vinnu- reglan er sú að séu þau beðin um tóbak þá eiga þau að kalla á yfir- mann,“ segir Kristinn. Hann segir starfsmenn í búðunum yfir 18 ára aldri að minnsta kosti vera tvo yfir daginn og að minnsta kosti einn á kvöldin. Sigurður Jónsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu, segir lögin alveg skýr í þessum efnum og ef brögð séu að því að reglurnar séu brotnar verði menn að taka afleiðingum af þvf. Dómsmálaráðherra: Undrast ummæli A _ Olafs Ragnars Ákvörðun Ólafs Ragnars Gríms- sonar, forseta Islands, að nota ío ára embættisafmæli sitt til að réttlæta umdeilda notkun málskotréttar í fjölmiðlamálinu er undarleg, segir Björn Bjarnason, dóms- og kirkju- málaráðherra. Þetta kemur fram á heimasíðu Björns. Ólafur Ragnar hefur lýst því yfir í viðtölum við fjölmiðla að und- anförnu að hann telji ákvörðun sína um að neita að skrifa undir fjölmiðlalögin á sínum tíma hafi verið rétta. Að hans mati færði Al- þingi forseta enn meira vald þegar það ákvað að draga lögin til baka Telur rök- seradafærslur forsetans nú undarlegar. Björn Bjarna- son, dóras- og kirkjumálaráöherra. án þess setja þau í þjóðaratkvæða- greiðslu. Björn segir þingmenn ekki hafa vitað um afstöðu forseta þegar þeir fjölluðu um málið og forsetann aldrei hafa fært efnisleg rök fyrir synjun sinni. Hann telur röksemdafærslur forsetans nú undarlegar. Með fíkniefni í Herjólfi Maður reyndi að smygla fíkniefnum innvortis til Vestmannaeyja Farþegi með Herjólfi: Með fíkniefni innvortis Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði hald á um 8 grömm af hassi, 2 grömm af amfetamíni og eina e-töflu sem karlmaður bar inn- vortis við komu Herjólfs til Vest- mannaeyja í fyrrakvöld. Efnin fundust eftir að fíkni- efnaleitarhundurinn Sjarmi hafði sýnt manninum áhuga og í fram- haldi af því var farið með mann- inn á Heilbrigðisstofnun Vest- mannaeyja í röntgenmyndatöku og komu efnin þá í ljós. Við yfir- heyrslu viðurkenndi maðurinn að vera eigandi efnanna og telst málið upplýst.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.