blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 10
10 I FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 2006 blaðið í vetnisstrætó Abdul Kalam gaf sér tima til að fara í strætóferð með forseta íslands laðiÖ/Gúndi Forseti Indlands: þegar hann heim- sótti Islands. Hefur ekki séð kvikmynd í hálfa öld Islandsvinurinn Abdul Kalam, forseti Indlands, viðurkenndi um helgina að ekki hafa séð kvik- mynd í meira en hálfa öld þar sem að hann sé svo upptekin við vísindastörf. Kalam heimsótti ind- verska hluta Kasmír-héraðs um helgina og tjáði blaðamönnum að hann væri giftur vísindastörfum sínum og hefði því engan tíma til þess að glápa á bíómyndir. I stað þess hefur hann unnið að því að hörðum höndum að koma Indverjum í hóp kjarnorkuvelda heimsins. Abdul Kalam er faðir kjarnorku- áætlunar Indverja er sagður bera manna mestu ábyrgð á því að stjórnvöld í Nýju-Delí hafi komið sér upp kjarnorkuvopnabúri. I daglegu tali er hann kallaður „eld- flaugakarlinn" en hann fór fyrir liði indverska vísindamanna sem náðu að þróa eldflaugar sem gætu borið kjarnovopn. Kalam hefur alla tíð verið ein- hleypur. í viðtalinu sagðist Kalam stundum verða einmana en hann kæmist yfir það með því að lesa bækur. fituskert og eggjaláus gerir gœfumuninn I 3 1 rs U o 1 VOGABÆR 2 Sími 424 6525 www.vogabaer.is Farþegar í Leifsstöð Þurfa oft að bíða lengi ibiðröö Millilandaflugið: Biðraðir í Leifsstöð ■ Margar brottfarir á stuttum tíma ■ Töluvert álag Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net Mikil fjölgun flugfarþega á undan- förnum árum hefur valdið því að langar biðraðir myndast reglulega við innritunarborð í brottfararsal Leifsstöðvar. Dæmi eru um að brottför flugvéla hafi tafist vegna þessa. Gunnar Ólsen, hjá flugþjón- ustunni á Keflavíkurflugvelli, segir margar brottfarar á stuttum tíma sem og ófullnægjandi flugstöðvarað- stæðum vera um að kenna. Hann er bjartsýnn á að ástandið lagist þegar innritunarborðum verður fjölgað í vetur. Margir farþegar „Það verður bara að segjast eins og er að húsnæðið þolir þetta ekki. Flugfélögin setja upp áætlun sína mjög þétt og á svipuðum tíma á morgnana. Það er í sjálfu sér ekk- ert óeðlilegt við það en fyrir vikið verður álagið töluvert á okkur,“ segir Gunnar Ólsen, hjá flug- þjónustunni á Keflavíkurflug- velli (IGS). Töluverðar biðraðir hafa verið „Nú er háanna- tími og vissu- lega myndast langar biðraðir." Guöjón Arngrimsson, lýsingaful upplýsing; Icolandair, fulltrúi við innritunarborð í brottfararsal Leifsstöðvar að undanförnu. Á há- annatíma á sumrin fara allt upp undir tvö þúsund manns þar gegn á hverjum morgni. I fyrra fóru alls um 750 þúsund farþegar frá Leifsstöð og fjölgaði þeim um sextíu þúsund frá fyrra ári. Allt bendir til þess að þessi tala verði enn hærri í ár. Gunnar segir ástandið alltaf að- eins verra á sumrin. „Sumarmán- uðirnir eru þungir mánuðir. Það er komið gríðarlega mikið af fólki strax um fimmleytið og álagið er mikið. “ Að sögn Gunnars voru sett upp fimm ný innritunarborð síðastliðinn föstu- dag og eru þau nú þrjátíu talsins. í vetur er svo reiknað. með að setja upp sextán ný borð og verða þau þá alls 46. „Þessi fjölgun kemur til með að slá verulega á vandann." Hefur vart undan Guðjón Arngrímsson, upplýs- ingafulltrúi Icelandair, segir langar biðraðir í innritun fylgja þessum árstíma. „Nú er háannatími og vissulega myndast langar biðraðir í innritun á álagstímum á morgnana og síðdegis og tækjabúnaður flugs- vöðvarinnar t.d. hvað varðar tösku- færibönd hefur vart undan. En þetta hefur samt ekki valdið neinum töfum að heitið getur.“ f brottfararsalnum hefur Ice- landairsettuppáttasjálfvirkarinnrit- unarstöðvar að erlendri fyrirmynd. „Þær eru mikið nýttar, sérstaklega af þeim sem eru oft á ferðinni. Það flýtir fyrir og er jafneinfalt og hraðbanki.“ tCeLANOAtR Flugumferð: Meiri mannekla og þjónustuskerðing Raskanir urðu á flugþjónustu flugumferðarmiðstöðvarinnar í gær vegna manneklu í annað skiptið í þessari viku. Á fundi fulltrúa flug- umferðarstjóra og Flugmálastjórnar með samgönguráðherra síðastliðinn þriðjudag var fallist á að erlendir að- ilar yrðu fengnir til að gera úttekt á ástandinu. Stóðu vonir manna til að þetta myndi leiða til þess að friður skapaðist milli deiluaðila. Að sögn Lofts Jóhannssonar, for- manns Félags íslenskra flugumferð- arstjóra, vildi ráðherra ekki fallast á að gamla vaktakerfið yrði tekið upp á meðan á úttektinni stæði. „Ég stakk upp á því við ráðherra að á meðan úttektin væri gerð þá færum við í gamla vaktakerfið. Ráðherra vildi þó ekki sjá til þess þar sem hann vildi ekki setja sig á móti starfsmanna- stjórn Flugmálastjórnar. Við þurfum því áfram að vinna samkvæmt núver- andi vaktakerfi sem er ósveigjanlegt. Menn ættu því ekki að vera hissa ef þeir lenda aftur í sömu vandræðum.“ Að. sögn Ásgeirs Pálssonar, fram- kvæmdastjóra flugumferðarsviðs flugmálastjórnar, hafa flugumferð- arstjórar ekki verið tilbúnir til að vinna að lausn málsins. „Þetta mál er búið að vera í gangi í sex ár. Flug- málastjórn hefur alltaf verið að færa sig nær flugumferðarstjórum í þessu máli í endalausu samráði. En þeir hafa ekki fært sig um millimeter. Flugmálastjórn hefur sýnt mikið langlundargeð og sveigjanleika.“ Afganistan: Sótt að talibönum mbl.is Tugir afganskra lög- reglumanna gerðu áhlaup á felustaði talibana í suðurhluta Afganistan. Létust 18 talibanar í áhlaupinu og fjórir særðust. Einn lögreglumaður lést í átök- unum, samkvæmt upplýsingum frá afgönsku lögreglunni.a Áhlaupið var gert í Helmand héraði í Garmsersýslu en þar er talið að margir talibanar haldi sig. í síðasta mánuði náðu tali- banar yfirhöndinni í höfuðstað sýslunnar í tvo sólarhringa en Garmsersýsla er við landamæri Pakistan. Á mánudag tók NATO við stjórn sex héraða í suðurhluta Afganistan af Bandaríkjaher. Mynd/Golli

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.