blaðið - 03.08.2006, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 3.ÁGÚST. 2006 blaðió
„Lífið er annað hvort djarft
ævintýri eða ekkert.“
Páll Ásgeir Ásgeirsson,
blaðamaður, er mikill
ferðalangur og hefur
ferðast um landið þvert
og endilangt, oftar en
ekki fótgangandi. Um verslunar-
mannahelgina stefnir hann norður í
land. „Ég er dálítið tvístígandi hvert
ég eigi að fara út af veðurspánni. En
eins og spáin er núna verður senni-
lega bara sólskin fyrir norðan. Ég
stefni á að fara í fjallgöngu á Trölla-
skaga. Mig hefur alltaf langað til
að ganga á þessi fjöll en það eru há
fjöll í kringum Eyjafjörð, bæði Kerl-
ing, Blámannshattur og fleiri. Mig
langar lika að fara keyrandi yfir
Heljardalsheiði sem er á milli Kol-
beinsdals og Svarfaðadals. Mér er
sagt að það sé jeppafært en ég þarf
að ganga úr skugga um það,“ segir
Páll Ásgeir og bætir við að ekki eigi
að taka of mikið mark á veðurspám.
,Það verður náttúrlega að hafa í
huga að veðurspá er bara spá. Það
er oft varasamt að bíta eitthvað í sig.
Þeir sem ætla að fara í velheppnaðar
útilegur verða að vera sveigjanlegir.
Ég ætla því svolítið að láta ferðina
ráðast af veðrinu en norður verður
það að vera, því það verður rigning
fyrir sunnan.“
Reyni að vera sem mest úti
„Það næst ekki í mig í síma,“ segir
Páll og hlær þegar hann er inntur
eftir því hvað heilli hann helst við
útiveru. „Ég held því alltaf fram
að ég sæki í þessar kringumstæður
vegna þess að mér líður mjög vel
í náttúrunni. Oti í náttúrunni er
maðurinn í sínu náttúrulega um-
hverfi og þess vegna líður honum
betur þar heldur en alls staðar ann-
ars staðar. Það er ekki flóknara en
það. Mér finnst gott að vera úti og
reyni að vera sem oftast úti. Ég vil
helst vera eitthvað úti á hverjum
degi, ef þvi er að skipta." Samt
sem áður segist Páll Ásgeir eiga
erfitt með að segja til um hver
uppáhaldsstaðurinn hans sé enda
margir fallegir. „Ég stefni norður í
land um helgina af því mig langar
til að fara þangað. Ég er nýkominn
úr hálfs mánaðar langri útilegu á
Hornströndum og þar fannst mér
óskaplega gaman. Samt sem áður
lenti ég þar í versta veðri sem ég hef
lent í á mínum útileguferli en það
var ekkert minna gaman. Það var
suðaustan rok og rigning einn dag
en það kryddaði ferðalagið bara.
Maður fær alls konar veður á Horn-
ströndum, maður verður að vera
við öllu búinn þar.“
Betra samband við náttúruna
Páll Ásgeir segist helst sofa í
tjaldi á ferðum sínum. „Það finnst
mér skemmtilegast því ég tel að
þannig komist maður í betra sam-
band við náttúruna. Það er ekkert
sniðugt að fara í útilegur, sitja inni
Páll Ásgeir „Mér finnst gott
aö vera úti og reyni aö vera
oftast úti. Ég vil helst vera
eitthvaö úti á hverjum degi
efþví eraö skipta. “
svanhvit@bladid.net
Helen Keller
í bíl allan daginn og skríða svo inn
í hús, fellihýsi eða tjaldvagn. Þá
geturðu ferðast heilu dagana en
ert aldrei úti við. Hins vegar sjást
mjög víða merki þess að fólk sækir
í meiri munað. Það eiga stöðugt
fleiri fellihýsi, tjaldvagna og þess
háttar.Gönguferðir þar sem fólk
þarf lítið að bera eru til dæmis
sífellt vinsælli. Sem betur fer eru
margir valkostir í boði og það getur
hver og einn valið það sem hann
vill helst gera.“ Samkvæmt Páli er
þó misjafnt hve margar tjaldúti-
legur hann kemst ( á sumrin. „Ég
hef ekki farið neitt óskaplega mikið
í sumar og sofið minna í tjaldi en
oft áður. En það er líka útivist að
„Úti í náttúrunni er
maðurinn í sínu nátt-
úrulega umhverfi
og þess vegna líður
honum betur þar
heldur en alls staðar
annars staðar. Það er
ekki flóknara en það."
ganga á fjöll í nágrenni Reykjavíkur
eða fara út í Gróttu og hlusta á fugl-
ana. Svo er sumarið ekki eini útivist-
artiminn. Maður getur verið úti að
leika sér allt árið ef maður vill. Mér
finnst mjög gaman að vera úti á vet-
urnar. Undanfarin ár hefur reyndar
vantað snjóinn þannig ég hef ekki
verið eins mikið úti um vetrartim-
ann og ég hefði viljað.“
Þýðir ekkert að skæla
Páll Ásgeir er uppfullur af góðum
ráðum enda vanur maður á ferð. Að-
spurður um hvort hann geti ráðlagt
fólki hvert skal fara um verslunar-
mannahelgina var hann strax tilbú-
inn til þess. „Ef maður vill drekka
sig fullan og vera blautur að utan og
innan þá er valið auðvelt og maður
fer á einhverja útihátíð. Ef það er
ekki áhugi fyrir því þá myndi ég
fara inn á fjöll, að minnsta kosti
miðað við veðurspána. Ég held að
það verði sæmilegt veður á Norður-
landi og fyrir norðan jökla á hálend-
inu. Þangað myndi ég stefna. Það er
erfitt að benda á einhvern einn stað
en það er víða fallegt fyrir norðan.
Ef maður ætlar í útilegu að sumar-
lagi á Islandi þá er ekkert erfitt að
pakka. Maður tekur bara allt dótið
sitt og setur það í bílinn. Svo les
maður veðurspána og fer þangað
sem veðrið er gott og reynir að fara
ekki að skæla ef veðurspáin stenst
ekki. Það er nauðsynlegt að vera
sveigjanlegur og taka því sem að
höndum ber. Það er langskemmti-
legast. Það er líka rétt að hafa í huga
að það er hægt að vera úti að leika
sér þó sólin skíni ekki. Ef það eru
ský á fjöllunum þá fer maður bara
niður í fjöru eða heldur sig á láglend-
inu. Fyrir utan það að ef sólin skín
og það er 25 stiga hiti hver nennir
þá að labba upp á fjall?“
Náttúran Gamli bærinn
á Kvíum f Jökulfjöröum
sokkinn í hvannstóö og
skógarkerfil.
HAFB
Nú getur þú hringt og svarað
símtölum með GPS tækinuí
ASTYRI
www.rs.
Garmin niivi 360
Það er vit í Garmin nuvi sem ferðafélaga. Garmin núvi er GPS leiðsögutæki með korti af allri
Evrópu, með stórum skjá en fer vel í vasa. Tækið inniheldur m.a. MP3 spilara, Ijósmyndarýni,
reiknivél, gengisreikni, heimsklukku, orðabók, ferðahandbók og
einingabreyti. Tækið er einnig með Bluetooth þannig að það nýtist
sem handfrjáls búnaður við GSM í bílnum.
iSGflRM/N ©Bluetooth' <«&>vélasalan gtyjl ©rcKfiomidun pj SIGMUNDSSON
Umboðsmonn I Akureyri: Haftækni ■ Blönduós: Krákur ■ Egilsstaðir Bílanaust ■ Grundarfjörður: Mareind ■ fsafjörður: Bensínstöðin Reyðarfjörðun Veiðiflugan Selfoss: Hársnyrtlstofa Leifs
Vestmannaeyjar Geisli ■ Reykjavlk: Arctlc Trucks, Bllanaust, Elko, Everest, Glsli Jónsson, Hlað, Intersport, Stormur, Toyota aukahlutlr, Útillf, Vestunöst, Yamaha ■ Frihöfnln
ANANAUSTUM 1 | 101 REYKJAVlK | SlMI 520 0000 | www.oarmln.is