blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 19

blaðið - 03.08.2006, Blaðsíða 19
blaðið FIMMTUDAGUR 3.ÁGÚST. 2006 19 „Ég hef fundið út að besta leiðin til að vita hvort þú hatar fótk eða Itkar vel við það er að ferðast með þeim.“ MarkTwain Cardiff, höfuðborg Wales Persónuleg og falleg borg Sífellt fleiri íslendingar leggja leið sina til Cardiff, höfuðborgar Wales, enda er það borg sem er einkar eft- irminnileg. Það má segja að Cardiff sé fullkominn íverustaður fyrir þá sem vilja versla og borða ódýrt ásamt því að njóta lífsins. Cardiff er um margt svipuð Lundúnum utan þess að hún er persónulegri, heimil- islegri og laus við einkenni og verð- lag stórborgar. Það tekur nokkra klukkutíma að ferðast til Cardiff með lest frá London en er vel þess virði. Cardiff varð höfuðborg Wales árið 1955 og er þar með yngsta höf- uðborg í Evrópu. Eitt af því sem gerir Cardiff að vinsælum ferða- mannastað eru sambland nútímans og hins forna í borginni en það þarf ekki að fara langt til að finna forn- aldarkastala, byggingar og söfn. Alltaf nóg að gera Cardiff var lítil borg fram að iðnbyltingunni en hún þróaðist fljótt yfir í að verða ein af heimsins stærstu hafnarborgum og flutti út kol í miklum mæli. Helsta versl- unargatan í Cardiff heitir Queen Street en þar má finna allar helstu verslanir Bretlands á heldur sann- gjarnara verði en í London. En Fagur borg Hér má sjá yfirlitsmynd yfir miðbæ Cardiff en þar eru tugir verslana og veitingastaða, hver öðr- um betri, að ógleymdum fjölda trjáa. Mælt er með Veitingastaður Thai Edge Unit 8, The Old Brewery Quarter, Cardiff, CF10 1FG Frábær staður sem býður upp á tælenskan mat af bestu gerð. Gæði og þjónusta er engu lík og verðið er mjög hagstætt. Bar The Queens Vaults 29 Westgate Street, City Centre CF101EH Heimilislegur pöbb þar sem fasta- það þarf ekki að fara langt til að finna graslendi því það er mikið af trjám í Cardiff sem og garðar í miðbænum. 1 miðju borgarinnar er Millennium Stadium sem er einn stærsti fótboltavöllur Bretlands. Völlurinn var opnaður 1999 og tekur yfir 72 þúsund manns í sæti. Auk þess er þetta eini völlurinn í gestirnir eru vinalegir og ölið er gott. Barinn er staðsettur beint á móti Millennium Stadium og er því troðfullur í hvert sinn sem mikil- vægur leikur er í gangi, hvort sem er í sjónvarpinu eða á vellinum. Skoðunarferð Castle Coch Castle Coch er nokkurs konar ævintýrakastali sem er einkar skemmtilegt að skoða og ógleym- anleg lífsreynsla. Hann var byggð- ur í stíl miðalda og í honum eru ótal herbergi með innbúi. Hægt er að panta kastalann til að gifta sig í en biðlistinn ku vera ansi langur. Bretlandi sem er með inndregnu þaki. íbúar Cardiff eru skemmta- naglaðir og taka vel á móti ferða- mönnum. Skemmtistaðir eru opnir meirihluta sólarhringsins og það er alltaf nóg að gera. Þó er sjaldan meira fjör en þegar leikur er á vell- inum því þá fyllist bærinn af áhang- endum, sölumönnum og öðrum. Um bæinn hljóma söngvar, köll og læti enda eru fáir eins vinalegir og almennilegir og velskir borgarar. svanhvit@bladid.net Menningalandid ísland KortalykiU 1. Flugsafnið á Akureyri 2. Samgönguminjasafnið 3. Byggðasafnið Dalvík 4. Safn Jóns Sigurðssonar forseta 5. Minjasafn Austurlands 6. Listasafn Reykjanesbæjar 7. Byggðasafn Garðskaga Flugsafnið á Akureyri Akureyrarflugvöllur S. 863-2835 | Samgönguminjasafnið Ystafetli Ystafell III 641 Húsavík-dreifbýlí 4643133 Byggðasafnið Dalvík Byggdasafnid Hvoll V/Karlsraudatorg 620 Dalvík www.dalvik.is/byggdasafn Safn Jóns Sigurðssonar forscta Hrafnaseyri 471 Þingeyri www.hrafnseyri.is 456-8260 Ninjasaf n Austurlands Laufskógum 1 MiNjAwrNAUMVRi anðs 700 Egilsstadir s. 471-1412/690-6966 http://www.minjasafn.is Listasafn Reykjancsbaejar Tjarnargata 12 230 Reykjanesbœr S. 421-6700 www.reykjanesbaer.is/listasafn Byggðasafn Garðskaga S: 422-7220 L

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.