blaðið - 15.08.2006, Qupperneq 2
2IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006 blaðift
Á förnum vegi
Framsóknarflokkur:
Sæunn stefnir
á ritarann
Sæunn Stefánsdóttir, vara-
þingmaður framsóknarmanna í
Norður-Reykja-
vík, hugleiðir
aðgefakostá
IhK sér í embætti
ritara Fram-
sóknarflokks-
ins á flokks-
þingi hans sem
hefst á föstu-
dag. Bláðið
hefur heimildir
fyrir því að
hún muni gefa út tilkynningu
um það í dag, en hún mun njóta
stuðnings þungavigtarmanna í
flokknum.
„Jú, ég er að hugsa málið en
ég ætla að bíða með að ákveða
mig þangað til á morgun,“ sagði
Sæunn í samtali við Blaðið í gær-
kvöldi. Hún sagði að vissulega
væri freistandi að taka við því
spennandi starfi, sem biði nýrrar
forystu flokksins, en yrði það
ofan á, að hún gæfi kost á sér,
mætti búast við tilkynningu þar
um í dag.
Gay Pride:
Þjóðkirkjan
ekki með
Auglýsingin sem birtist á
laugardaginn var ekki unnin í
samráði við Þjóðkirkjuna. Stein-
unn Arnþrúður Björnsdóttir,
verkefnastjóri samkirkju- og upp-
lýsingamála, segir boðskapinn
ekki I samræmi við áherslur Þjóð-
kirkjunnar því samkynhneigðir
eru hluti af samfélagi kirkjunnar.
I auglýsingunni kom fram að
trúfélögin líta á samkynhneigð
sem fjötra og telja að auðveldlega
sé hægt að lækna þá sem haldnir
eru þessari villuhneigð.
Hólmfríður Þórhallsdóttir,
Breiðholtsskóla.
Já, ég er búinn að fá nóg af sumrinu.
Hlakkarðu til að
byrja í skólanum?
íslenskir uppfinningamenn 1 launabaráttu:
Daníel Freyr Jónsson, Vallarskóla.
Já, ég hlakka frekar mikið til.
Elma Rut Jónsdóttir,
Verslunarskóla íslands.
Já, eiginlega of mikið. Ég hlakka
mikið til að byrja að læra.
Elna Albrechtsen,
Kvennaskólanum.
Já, ég hlakka mikið til.
Skilningsleysi yfirvalda
Starfsemi sambandsins hefur að
mestu legið niðri undanfarin ár. Að-
spurð segir Elínóra að LHM hafi
ítrekað sóst eftir fjárstuðningi frá
iðnaðarráðuneytinu, þannig að fé-
lagsmenn geti viðhaldið starfinu og
miðlað af reynslu sinni til ungra ís-
lenskra uppfinningamanna.
„Við höfum átt erfitt með að ná
Eftir Trausti Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Við höfum bæði mætt skilningsleysi
iðnaðarráðherra og líka hjá starfs-
fólki Impru, þjónustumiðstöðvar
Iðntæknistofnunar fyrir frum-
kvöðla,” segir Elínóra Inga Sigurð-
ardóttir, formaður Landssambands
hugvitsmanna.
Landssamband hugvitsmanna,
LHM, er félagsskapur sem stofnaður
var árið 1996. Þar eru samankomnir
66 íslenskir uppfinningamenn sem
eiga það sameiginlegt að hafa frjótt
ímyndunarafl og vilja til að fram-
kvæma hugmyndir sínar. Formaður
sambandsins segir aðalvandamál ís-
lenskra uppfinningamanna það um-
hverfi sem þeir starfa í og það getur
verið mjög kostnaðarsamt að koma
hugmynd sinni í framkvæmd.
„Það er mjög dýrt að gera alvöru úr
hugmynd sinni og maður þarf algjör-
lega að einblína á það. Þegar maður
er að koma með nýja hugmynd á
markað þá er í raun enginn fjárstuðn-
ingur þannig að uppfinningamaður-
inn er ekki að fá nein laun fyrir vinnu
sína. Hægt er að fá ýmsa styrki til að
þróa vöruna en aldrei er gert ráð fyrir
launagreiðslum af neinu tagi,” segir
Elínóra.
eyrum iðnaðarráðherra. Okkar til-
lögur eru þær að taka upp svokölluð
frumkvöðlalaun, ekki ósvipað lista-
mannalaunum, þannig að uppfinn-
ingamenn fengju greitt fyrir vinnu
sína við uppfinningar” segir Elínóra.
Réttast að styðja verkefnin
Jón Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, vísar málinu alfarið
til Iðntæknistofnunar og Nýsköpun-
arsjóðs atvinnulífsins sem eiga að
vera stofnanir til að styðja við bakið
á frumkvöðlum.
„Stuðningur ráðuneytisins er í
gegnum stofnanirnar og sú á þró-
unin að vera í stjórnsýslunni. Til þess
að ráðuneytið beiti sér fyrir þessu
máli sérstaklega þurfa þeir einstak-
lingar sem telja á sér brotið að
leggja inn stjórnsýslukæru,
annars vísa ég á áður-
nefndar stofnanir,”
segir Jón.
„Mér finnst eðlilegast að frum-
kvöðlar fái styrk fyrir verkefni sín
og svo sé hugað að því hvernig það
skiptist niður. Þannig eru einnig lista-
mannalaunin hugsuð og sérstakar
nefndir fjalla svo um hvernig þessu
er úthlutað. Hvað listamenn eða upp-
finningamenn líta á sem laun sín af
styrkjum er eitthvað sem ráðherra
skiptir sér ekki af.”
„Nýsköpunarsjóður er í hremm-
ingum og okkur hefur ekki tekist að
leysa úr því. Það er nú bara eins og
það er og mun taka sinn tíma,” bætir
Jón við.
i£k
& Heiöskirt Léttskýjaö
Aiskýjaö
Rignlng
Suld
Snjókoma
. Skýjaö
Rlgning, litilsháttar
Snjócl
Skúr
Slydda
iliJj'Jjlr'
Algarve 24
Amsterdam 17
Barcelona 25
Berlín 16
Chicago 19
Dublin 13
Frankfurt 18
Glasgow 12
Hamborg 17
Helsinki 22
Kaupmannahöfn 16
London 18
Madrid 28
Mallorka 29
Montreal 19
New York 24
Orlando 24
Osló 18
París 19
Stokkhólmur 20
Vin 21
Þórshöfn 12
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
A morgun
NÝR YALKOSTUR Á
transport
toll- og flutningsmiðlun ehf
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
bladiö==
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 •www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
51Q 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
51Q 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fáum ekki laun
fyrir vinnu okkar
Uppfinningamenn fá ekki laun fyrir störf sín ■ Skilningslaus ráðherra
Nadía Rut Reynjsdóttir,
Verslunarskóla íslands
Já, ég hlakka mikið til.