blaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 8
8 I FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006 blaöiö
Engey RE Stærsta fiskiskip íslen-
dinga. En öll fiskiskip þjóðarinnar
valda um 750 þúsund tonna losun
gróðurhúsalofttegunda á ári.
Breyta þarf skattkerfi til
að draga úr mengun bíla
Blaðið í gær.
OWtY
tlYKMV*
Losún groðurhúsalofttegunda at völdum fiskiskipa:
■ Kvótakerfi og umhverfissjónarmið fara saman ■ Sérstök oiíusparnaðarkerfi geta dregið úr losun
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Fiskiskip á fslandi valda um 750
þúsund tonna losun gróðurhúsa-
lofttegunda á ári hverju. Kristján
Þórarinsson, stofnvistfræðingur
hjá LÍU, segir tilhneiginguna
hafa verið að losun koltvísýrings
við veiðar hafi minnkað. „Frá ár-
inu 1995 hefur losunin minnkað,
en það hafa verið sveiflur. Ljóst
er að nýjar veiðigreinar, svo sem
veiðar á úthafskarfa og kolmunna,
krefjast mikillar olíunotkunar.
Við leggjum hins vegar áherslu
á að hafa olíunotkunina sem
besta, þannig að losunin fari
minnkandi.“
Kvótakerfi leiðir til
orkusparnaðar
Heildarlosun gróðurhúsaloft-
tegunda sveiflast töluvert eftir
aflabrögðum, bæði heildarafla
og aflasamsetningu. „Með upp-
töku kvótakerfisins á sínum tíma
vita menn fyrirfram hvað má
veiða. Veiðarnar byggjast þá á
að veiðarnar fari fram með sem
lægstum kostnaði, þar með talið
sem minnstri olíunotkun. Slíkt
gerist ekki í frjálsum veiðum og í
sóknarstýringu. Það má því segja
að kvótakerfið og umhverfissjón-
armið fari saman,“ segir Kristján.
Aðspurður hvað sé gert til að
minnka losun fiskiskipanna segir
Kristján það fyrst og fremst vera
verkefni einstakra útgerða. „Þær
hafa til þess mjög sterkan hvata
að nota sem minnsta olíu og hafa
sem minnstan útblástur. Að lág-
marka olíukostnað er daglegt verk-
efni í útgerð, enda er það stærsti
kostnaðarliðurinn á eftir launum
starfsmanna.“
Að sögn Kristjáns eru það fjöl-
margir þættir sem spila inn í
hvernig hægt sé að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda. „Hönnun
fiskiskipa, val á búnaði, hvernig
í«fc..
Kvótakerfið
| og umhverfis-
v sjónarmið fara
saman.
'Sr MBNB& Kristján Pórarinsson,
stofnvistfræöingur
Fyrirtæki
hafa náð að
lágmarka
olíunotkun.
Kristinn Aspelund,
upplýsingafulltrúi
Marorku
skipunum er beitt og margt fleira.
Nú fara útgerðarfyrirtækin mun
skipulegar í það hvernig einstakar
veiðiferðir eru lagðar upp. Það fer
hins vegar mikið eftir því hvað á
að veiða, hvort veiðin sé orkufrek
eður ei. Mjög dýrt og orkufrekt er
að veiða til dæmis kolmunna, en
menn leitast við að stunda veið-
arnar með sem hagkvæmustum
hætti.“
Kristján segir þyngstu veið-
arfærin sem skipin draga valda
mestri losun gróðurhúsaloftteg-
unda. „Hitt er svo annað mál að á
móti kemur að hluta aflans er ekki
hægt að ná með neinum öðrum
hætti. Menn binda svo miklar vonir
við áframhaldandi tækniþróun til
að veiðarnar verði enn hagkvæm-
ari. Auðvitað hafa menn augun
opin gagnvart öllum möguleikum,
vetnisvæðingu og fleiru. Ég hugsa
samt að áratugir séu í að það verði
raunhæfur kostur, en framfarirnar
verða vonandi sem hraðastar.“
Lágmörkum olíunotkun
Marorka hefur búið til og selur
sérstakan búnað til að stýra orku-
notkun um borð í skipum. Krist-
inn Aspelund, upplýsingafulltrúi
Marorku, segir að nokkur útgerðar-
félög á íslandi hafi notast við bún-
aðinn og þeim fari fjölgandi. „Við
höfum unnið í nokkur ár með HB
Granda og Eskju og þau hafa náð
árangri í að lágmarka olíunotkun
sína og þar með náð að minnka
losun gróðurhúsalofttegunda."
Búnaðurinn notar tölvulíkön
sem sýna hvernig hagkvæmast er
að haga málum og lágmarka ol-
íunotkun fyrir hvert veitt kíló af
fiski. „Megnið af okkar sölu hefur
verið erlendis,“ segir Kristinn og
bætir við að mesta salan hafi verið
í Kanada, Hollandi, Bandaríkj-
unum og Færeyjum.
leldsneytisspáOrkuspárnefndar
kemur fram að olíunotkun vélbáta
á aflaeiningu muni minnka um
tíu prósent fram til ársins 2015 og
fimm prósent til viðbótar fram til
2030. „Notkun togskipa, og eru
vinnsluskip þá meðtalin, minnki
um fimmtán prósent á aflaein-
ingu til 2015 og fimm prósent til
viðbótar til 2030. Gert verður ráð
fyrir því að notkun loðnu-, síld-
veiði- og kolmunnaskipa standi í
stað til 2030,“ segir í spánni.
■ ■ ■ I
TIIKNINGA-HERBATRÉ
Verktakar
'?í!
í ; il i t
i II...
Teíknístofur
Verkfræðingar
Hönnuðir
■
..það sem
fagmaðurinn
notar!
Armúll 17, tOB Reykjavík
síml: 533 1234 fax: 55B 0439
www.isol.is
I fótspor broðurins Raul Castro sast 1
fyrsta sinn opinberlega er hann tók á móti
Chavez á flugvellinum i Havana á sunnudag
Nýjar myndir birtar af Kubuleiðtoga:
Chavez heimsótti
Castro á sjúkrabeð
Kúbverska dagblaðið Granma birti
nýjar myndir af Fidel Castro, forseta
landsins, í gær þar sem að hann tók á
móti Hugo Chavez, forseta Venesúela,
og Raul Castro, yngri bróður sínum
og starfandi forseta landsins, á
sjúkrabeði sínum. Á sunnudag hafði
blaðið Juventud Rebelde birt fyrstu
myndirnar af Castro eftir að hann
tilkynnti að hann þyrfti að gangast
undir skurðaðgerð vegna innvortis
blæðinga fyrir tveim vikum. Ásamt
myndunum birti blaðið tilkynningu
frá Castro þar sem hann segist vera
á batavegi en varaði þó íbúa landsins
við að þeir kynnu að fá slæmar fréttir
af heilsufari sínu.
Hugo Chavez heimsótti Castro á
sunnudag til þess að óska honum
til hamingju með áttræðisafmælið
og árna honum heilla. Samkvæmt
Granma eyddu forsetarnir þremur
stundum saman og Raul Castro var
einnig viðstaddur. Starfandi forset-
inn sást í fyrsta skipti opinberlega frá
því að hann tók við völdum af eldri
bróður sínum um mánaðamótin á
sunnudag þegar hann tók á móti Cha-
vez á flugvellinum í Havana.
Chavez var eini þjóðhöfðinginn
sem heimsótti Castro á afmælis-
daginn á sunnudag. Chavez er einn
dyggasti stuðningsmaður Castros og
ásamt honum helsti andstæðingur
Farið yfir málin Hugo Chavez og
Fidel Castro ræða saman
Bandaríkjanna í Rómönsku Amer-
íku, og hafa stjórnvöld á Kúbu notið
mikils efnahagsstuðnings frá Venesú-
ela á undanförnum árum. Annar
dyggur stuðningsmaður Castros,
Evo Morales, forseti Bólivíu, stjórn-
aði fjöldaafmælissöng fyrir Castro
fyrir utan spítala i Bólivíu þar sem
kúbverskir læknar starfa. Forsetinn
hét því að baka afmælistertu úr kóka-
laufum handa Castro og færa honum
í desember þegar Kúbumenn munu
formlega halda upp á afmæli leiðtoga
síns.