blaðið - 15.08.2006, Qupperneq 12

blaðið - 15.08.2006, Qupperneq 12
12 I FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006 blaöið www.ynja.is Útsölustaðir: Esar Húsavík Dalakjör Búðardal Ömmupizzur: ítalskt merkt sem íslenskt Umbúðir utan um eldbakaðar ömmupizzur eru skilmerkilega merktar slagorðinu góðkunna „Veljum íslenskt.og allir vinna.“ Ef grannt er skoðað aftan á pakkann kemur hins vegar í ljós að pizzurnar eru ekki framleiddar hér á landi, heldur í varnarþingi pizzunnar, á Ítalíu. Haraldur Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Ömmubaksturs, segir að um mistök hafi verið að ræða. „Þetta eru gamlar umbúðir sem við erum að klára,“ segir Haraldur. „Það urðu mis- tök í upphafi og þetta verður ekki svona í framtíðinni.“ Har- aldur segir að ömmubakstur láti framleiða pizzurnar fyrir sig á Italíu eftir eigin uppskrift. „Þannig séð er þetta íslensk framleiðsla, en það voru mistök að merkja umbúðirnar með þessu slagorði. Þetta á ekki að vera svona,“ segir Haraldur um pizzurnar sem framvegis verða aðeins kenndar við Italíu, sem hingað til og hér eftir telst gæðastimpill þegar kemur að flatbökum. Hústaka á Reyðarfirði: VoruAn/ ctð tcdccv upp nýjctr vörur frá/Vantty fair Tráhxw verð ötytycbðú ■ TeryýruAZe^ pjóvuAAta/ Opnunartími Mán-fös 11-18 Lau 11-14 Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088 ■ Atvikið kært til lögreglu ■ Kom til ryskinga ■ Gíslataka segir framkvæmdastjórinn Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Hópur mótmælenda sem mikið hefur haft sig í frammi á Austurlandi í sumar gerði í gærmorgun strand- högg á skrifstofu verkfræðistofunnar Hönnunar á Reyðarfirði. Átta manna hópur fólks lokaði sig inni á skrifstof- unni og meinaði starfsmönnum út- göngu. Málið hefur verið kært til lög- reglu enda segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins að um frelsissviptingu hafiveriðaðræða. Verktakar á fasteignasölum: Ótryggðir og án réttra leyfa Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net Það getur verið stórhættulegt að eiga viðskipti við fasteignasölu þar sem ekki er starfandi löggildur fasteignasali að mati Björns Þorra Viktorssonar, formanns Félags fast- eignasala. Hann segir alltof mikið um sjálfstætt starfandi verktaka á fasteignasölum hér á landi sem hafi ekki tilskilin leyfi til að stunda fast- eignaviðskipti og séu því ótryggðir gagnvart mögulegu tjóni. Lögreglan í Reykjavík hefur nú í skoðun mál fasteignasölunnar Eign.is eftir að Eftirlitsnefnd fasteignasala taldi sig hafa rökstuddan grun um að hún stundaði fasteignasölu án tilskil- inna leyfa. „Það er því miður algengt að hér á landi starfi einstaklingar við fasteignasölu sem hafa ekki til þess tilskilin réttindi," segir Björn Þorri Viktorsson, formaður Félags fasteignasala. „Það getur verið stór- hættulegt að eiga viðskipti við þetta /VII « .Stórhættu- legt að eiga viðskipti við þessa menn” Björn Porri Viktors- son, formaður Félags fasteignasala Björn segir að í lögum um fast- eignaviðskipti sé sérstaklega kveðið á um að á hverri fasteignasölu sé starfandi löggildur fasteignasali. „Þessi lög eru sett til þess að tryggja hag neytenda sem eru í flestum til- vikum að eiga viðskipti með aleigu sína og jafnvel verulegan hluta framtíðartekna." Björn segir að því miður sé það undir hælinn lagt hvort lögunum sé fylgt eftir. Hann bendir á að á sumum fasteignasölum starfi sölu- fulltrúar sem séu sjálfstætt starfandi verktakar og að trygging fasteigna- sala nái ekki til þeirra. „Fasteigna- salinn hefur ekkert húsbóndavald yfir þessum verktökum. Þeir starfa sjálfstætt og ef þeim verða á mistök, sem er auðvitað mannlegt, þá tekur trygging fasteignasalans ekki til þeirra. Þannig að þeir eru fullkom- lega ótryggðir." Lögreglan í Reykjavík hefur nú til skoðunar mál fasteignasölunnar Eign. is eftir að Eftirlitsnefnd fasteignasala taldi sig hafa rökstuddan grun um að hún stundaði enn fasteignasölu án þess að þar starfaði löggildur fast- eignasali. Nefndin sendi dómsmála- ráðuneytinu bréf þess efnis ásamt gögnum þann 31. júlí síðastliðinn. Ráðuneytið óskaði í kjölfarið eftir því að lögreglan athugaði málið. Að sögn Björns er lagaleg staða einstaklings sem verður fyrir tjóni vegna fasteignaviðskipta sem verk- taki hafði umsjón með frekar slæm. „Viðskiptavinur getur prófað að sækja á viðkomandi verktaka en það er alveg ljóst að starfsábyrgðar- trygging hins löggilda fasteignasala tekur ekki tillit til þess tjóns sem verktakinn kann að valda. Það er al- veg skýrt í lögunum." Ráku tréfleyga undir dyrnar „Það má kalla þetta gíslatöku enda var frelsi manna heft hérna,“ segir Valgeir Kjartansson, framkvæmda- stjóri starfsstöðvar Hönnunar á Reyð- arfirði. „Fólkið mætti hér um níu- leytið. Þau lokuðu hurðinni og ráku tréfleyga undir hana auk þess sem þau settu stóla fyrir dyrnar sem þau settust í. Þannig hömluðu þau inn- og útgöngu okkar.“ Valgeir segir átta manns hafi ráðist til inngöngu. „Við gerðum þeim grein fyrir því að um mannrán væri að ræða, enda mein- uðu þeir okkur útgöngu.“ Hann segir að þegar starfsmenn Hönnunar hafi reynt að komast út um dyr á kaffi- stofu hafi fólkið rokið til og byrgt fyrir þær dyr líka. Þá hafi komið til ryskinga. „Menn fóru aðeins að ýta hver við öðrum. Ég varð síðan var við að fólkið var að reyna að læsa að sér inni á skrifstofunni minni og þá settum við öxlina í hurðina og ýtum henni upp. Á meðan á þessu stóð tókst einum starfsmanni að losa tré- fleygana og upp úr því flosnaði upp úr þessu.“ Valgeir segir að málið hafi verið kært til lögreglu og að lögreglu ætti ekki að vera skotaskuld úr því að bera kennsl á fólkið því að starfs- menn hafi tekið myndir af því. „Ég lit þetta alvarlegum augum,“ segir fram- kvæmdastjórinn sem bætir því við að skrifstofan á Reyðarfirði komi lítið að hönnun álversins. „Við erum aðal- lega í þessum sveitarfélagabransa og í morgun var ég einmitt á símafundi um gatnagerð á Djúpavogi." Annar mótmælandi fjarlægður Einn mótmælandi til viðbótar lét til skarar skríða á byggingarsvæði ál- vers Alcoa á Reyðarfirði um svipað leyti og tekist var á um skrifstofur Hönnunar. Sá mun hafa klippt gat á vírnetsgirðingu sem umlykur bygg- ingarsvæðið og smeygt sér inn. 011 umferð um svæðið er bönnuð nema með leyfi verktakans sem byggir álverið, Bechtel. Eftir að mótmæl- andinn hafði komist inn um gatið stöðvaði hann vinnu þar í um tvær klukkustundir. Hann sinnti í engu fyrirmælum um að hverfa á brott og þurfti því að kalla til lögreglu sem fjarlægði hann að lokum. Hann mun einnig verða kærður. Mótmælendur lokuðu verkfræðingana inni

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.