blaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 14

blaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 14
14 IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006 MaAÍA Bush með Camus í fríið Norska blaöið Fiskaren: Sótt að sjávarútvegs- ráðherra Mikið er fjallaö um lundaveiði Einars K. Guðfinnssonar í Fiskaren. Þar er meðal annars sagt að hann hafi látið sig vanta á fund um sjóræningjaveiöar á höfunum til að fara íólög- lega veiði á Islandi. Mynd/Þök Framsóknarflokkurinn: Kristinn H. slær til Enn bætist í flokk fram- bjóðenda til æðstu embætta Framsóknarflokksins. í gær gaf Kristinn H. Gunnarsson alþing- ismaður það út að hann sæktist eftir embætti ritara flokksins. Hann er ekki einn um hituna þar sem Birkir Jón Jónsson og Haukur Logi Karlsson höfðu áður gefið kost á sér. I yfirlýsingu sem Kristinn sendi frá sér segist hann á löngum ferli í sveitarstjórnar- og landsmálum hafa öðlast reynslu sem geti orðið gagnleg í því starfi sem framundan er hjá flokknum. Kosið verður um embættin þrjú, ritara, varaformann og formann á flokksþingi Framsóknarflokks- ins um næstu helgi. Lundaveiði ráðherra á forsíðu í Noregi ■ Telja lundaveiðar villimannlegar ■ Segja ráðherra hafa sleppt fundi, alrangt segir Einar ■ Ráðherra gefur lítið fyrir sannleiksást Fiskaren jri$Karen Ráðherra á ólöglegum veiðum Fiskaren gerir mikið úr lundaveiðum sjávarútvegsráðherra George Bush, forseti Bandaríkj- anna, er nú staddur í sumarfríi á búgarði sínum í Crawford í Texas. Ólíkt mörgum kýs forsetinn ekki að lesa léttmeti eins og reyfara í fríinu sínu heldur hefur hann ráð- ist til atlögu við franska skáldið og heimspekinginn Albert Camus. Að sögn Tony Snow, talsmanns Hvíta hússins tók forsetinn bókina Útlendingurinn (fr. L’Étr- anger) með sér í fríið. Útlending- urinn er ein þekktasta skáldsaga tuttugustu aldarinnar og fæst sagan við flóknar tilvistarlegar spurningar um stöðu einstak- lingsins í samfélagi manna. Franski heimspekingurinn er augljóslega George Bush hug- leikinn þar sem forsetinn hefur vitnað til hans í ræðum. Lögreglan: Ölvunarakstur fer vaxandi Alls voru fjórtán ökumenn teknir fyrir ölvuna- rakstur í Reykja- vík um helgina og einn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þá voru um fimmtíu öku- menn teknir fyrir hraðakstur og þar af var einn færður á lögreglu- stöð vegna ofsaaksturs. Samkvæmt lögreglunni í Reykjavík er ölvunarakstur vaxandi vandamál og hafa að meðaltali um tuttugu stútar verið teknir hverja einustu helgi í sumar. Eftir Gunnar Reyni Valþórsson gunnar@bladid.net Lundaveiðiferð sem Einar K. Guð- finnson, sjávarútvegsráðherra, fór í á dögunum hefur vakið athygli í Noregi. Eins og greint hefur verið frá reyndist ráðherrann ekki hafa verið með gilt veiðikort í ferðinni. Hann hefur hins vegar sagst hafa veitt lundann í góðri trú enda hafi hann ekki gert sér grein fyrir að veiðikort þyrfti til veiðanna. Mikið er gert úr málinu i norska sjávarútvegsblaðinu Fiskaren og þekur fréttin forsíðuna auk þess sem nánar er gerð grein fyrir mál- inu inni í blaðinu þar sem málið er kallað skandall. Á forsíðunni er þvi haldið fram að Einar hafi verið á veiðunum á sama tíma og ráðstefna sjávarútvegsráðherra um ólöglegar veiðar var haldin í Þrándheimi. Þetta segir Einar vera alrangt. „Mér finnst mjög athyglisvert ef einhver telur það þjóna sínum hagsmunum að koma höggi á baráttu mína gegn ólöglegum sjóræningjaveiðum sem valda milljarða tjóni á ári hverju með þvi að birta frétt um þetta mál sem er að fara sína eðlilegu leið á íslandi,' segir Einar í samtali við Blaðið. „Mér finnst það segja mesta sögu um þá sem skrifa og tala með þeim hætti.“ f frétt Fiskaren er haft eftir heim- ildarmanni að ráðherrann hefði átt að vera á ráðstefnu um ólöglegar veiðar í Þrándheimi þegar veiði- ferðin var farin. Hann hafi hins vegar sent sendiherra fslands í Nor- egi. Þetta finnst Fiskaren sérstakt í ljósi þess hve harðlega Einar hafi gagnrýnt ólöglegar veiðar. „Það er alrangt og það er fjarri því að ég hafi verið á lundaveiðum á sama tíma. Ég hef sótt fjölda ráðstefna af þessu tagi og það var fyrir löngu ljóst að ég myndi ekki sækja þennan fund sem þeir vísa til. Þetta segir greinilega meira um sannleiksást þessa blaðs, sem maður hefur nú stundum tekið mark á, heldur en mörg orð,“ segir ráðherrann. Á vefsíðu Fiskaren hefur verið komið á fót skoðannakönnun þar sem lesendur eru spurðir hvaða augum þeir líti lundaveiðar og þegar Blaðið fór í prentun var stór meiri- hluti þátttakenda á þeirri skoðun að lundaveiðar væru villimannlegar, eða „helt barbarisk", eins qg frændur okkar orða það. Ariel Sharon: Heilsunni fer hrakandi mbl.is Ástand Ariels Sharons, fyrrverandi forsætisráðherra fsra- els, fer versandi en hann hefur verið í dauðadái frá því í janúar eftir heilablæðingu, samkvæmt upplýsingum frá Tel Hashomer sjúkrahúsinu í Tel Aviv. Sharon gekkst undir mikla að- gerð á heila eftir að mikið hafði blætt á heila hans þann 4. janúar sl. Hann hefur farið í nokkrar aðgerðir síðan þá en hann hefur aldrei náð meðvitund. Síðasta aðgerðin var fram- kvæmd í apríl sl. en þá var hluta af höfuðkúpu Sharons komið aftur fyrir á sama stað, en það þurfti að opna höfuðkúpuna svo draga mætti úr bólgu sem hafði myndast og þrýsti á heila hans. Sérfræðingar sögðu, mánuði eftir að Sharon féll í dá, að meðvit- undarleysið þýddi það að líkurnar á því að hann næði sér væru litlar. Igleraugu fyrir konur og karla Líklega hlýlegasta gleraugnaverslun norðan Alpafjalla Reykavíkurvegi 22 220 Hafnarfírði 565-5970 www.sjonarholl.is Túrkmenistan: Melónudeginum mikla fagnað Eftir Örn Arnarson orn@bladid.net Túrkmenar hafa þróað nýtt afbrigði af melónum sem eiga að vera sérstak- lega ljúffengar. Að sögn heimildar- manna AFP-fréttastofunnar bragð- ast nýja melónuafbrigðið, sem hefur verið skírt í höfuðið á Saparmurat Niyazov, forseta landsins, „einstak- lega vel” og lyktin af henni mun vera „unaðsleg.” Túrkmenar fagna sögulegu fram- lagi melónuræktar til menningar þeirra í hverjum ágústmánuði. Sap- armurat Niyazov, eða Túrkmenbashi eins og hann kýs að vera kallaður, gaf út tilskipun árið 1994 um að þegnar landsins skyldu fagna melónum með viðeigandi hætti á ári hverju. í yfirlýs- ingu sem forsetinn sendi frá sér í til- Víða í Túrk- menistan er að finna gylltar styttur af for- seta landsins. Saparmurat Niyazov, forseti Túrkmenistan efni upphafs hátíðarhaldanna kemur meðal annars fram að „túrkmenska melónan sé mikilvæg fyrir þjóðar- stolt landsmanna” og að „bragðið af henni sé óviðjafnanlegt og ilmurinn sé svo lokkandi að hann hreinlega rugli fólk í ríminu.” I tilefni af hátíð melónunnar í Túrk- menistan eru veitt verðlaun fyrir bestu melónuna ár hvert, stærstu mel- ónuna auk þess sem landsmenn geta bragðað á margvíslegum melónuaf- brigðum sér að kostnaðarlausu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.