blaðið - 15.08.2006, Blaðsíða 16
blaðið
—
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
Sigurður G. Guðjónsson
Sigurjón M. Egilsson
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Janus Sigurjónsson
Var ekki farsæll
Það er ekki rétt sem Siv Friðleifsdóttir, formannsframbjóðandi í Fram-
sóknarflokknum, segir í Morgunblaði gærdagsins að farsæll foringi sé að
kveðja. Halldór Ásgrímsson var foringi, en ómögulegt er að taka undir
með Siv og segja Halldór hafa verið farsælan foringja. Kannski var hann
það á einhverjum tíma, en vegna þess hvernig hann spilaði síðustu mánuð-
ina og árin er ómögulegt að taka undir með Siv og segja að farsæll foringi
sé að kveðja. Það er bara ekki rétt og það er alls ekki rétt af Siv að halda
þessu fram með þessum hætti. Bara alls ekki.
Stjórnlaus metnaður Halldórs varð til þess að Siv var sett út úr ríkis-
stjórn á sínum tíma. Það var gert til þess að Halldór kæmist í stjórnarráðið.
Þá var sagt að það yrði Framsóknarflokknum mikil lyftistöng, það myndi
lyfta flokknum upp úr ládeyðu og til sóknar og sigra. Það gekk heldur
betur ekki eftir. Snemma í forsætisráðherratíð Halldórs tók að gæta
óþreyju innan flokksins. Árangurinn sem stefnt var að lét ekki bara á sér
standa, hann kom aldrei. Flokknum hélt áfram að blæða út og honum
blæðir enn. Þess vegna er nánast galið að tala um Halldór sem farsælan for-
ingja. Kannski sagði Siv þetta til að styggja engan á síðustu dögum fyrir
flokksþingið. Kannski verður hennar metnaður til þess að hún kýs að tala
með þeim hætti sem styggir fæsta.
Framsóknarflokkurinn var um langan aldur langtum stærri flokkur en
hann er nú. Hann hafði um og yfir tuttugu prósenta kjörfylgi og hafði
mikið að segja í landsmálunum. Þrátt fyrir smánarlega útreið í kosningum
og endurteknar vondar mælingar í skoðanakönnunum hefur flokknum
tekist að viðhalda völdum, eða hvað? Situr hann kannski víða í skjóli Sjálf-
stæðisflokksins og getur ekki beitt sér af alvöru sökum þess hversu fáa
fulltrúa hann á og hversu veikt hann stendur? Sennilega er það svo.
Halldór Ásgrímsson leiddi flokkinn frá moldinni á mölina, eða ætlaði
það allavega, en fylgi flokksins í þéttbýli er ekki merkilegt, með einstaka
undantekningum. Staðan er augljós, Halldóri tókst ekki að vera nema
skamma stund í draumastarfinu, starfi sem hann hafði fórnað svo miklu
fyrir, meðal annars Siv Friðleifsdóttur, og Halldóri tókst ekki einu sinni
að enda formennsku í Framsókn með glæsibrag. Hann hrökklaðist frá
landsstjórninni og flokksstjórninni. Þannig er það og þannig hljóðar það,
hvað sem Siv eða aðrir segja.
Halldóri Ásgrímssyni hlýtur að vera mikið í mun að cftriskriftin verði
sem best, en til að það takist verður hún að vera sönn. Það er ekki hægt
að falsa söguna. Halldórs er fyrst og fremst minnst fyrir tröllslegan vilja
í virkjunarmálum, vilja til innrásar í írak, að vera leiðitamur fylgisveinn
Davíðs Oddssonar, einkavinavæðingu ríkisbanka og að hafa tapað um
helmingi af fylgi eigin flokks. Þetta er eftirskriftin núna. Hún kann að
breytast, enda eflaust margt sem Halldór gerði á aldarþriðjungi til heilla.
Það man það enginn núna nema kannski Halldór. Foringi Framsóknar
kveður, en það er ofmælt að segja hann farsælan.
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
AÖalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: íslandspóstur
SKOLAR & NAMSKEIÐ
MIÐVIKUDAGINN 16. ÁGÚST
-----------nmm---------------------5
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Katrín L. Rúnarsdóttir • Sími 510 3727 • Gsm 856 4250 • kata@bladid.net
Magnús Gauti Hauksson • Sími 510 3723 • Gsm 6912209 • maggi@bladid.net
16 I ÁLIT
ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006 blaöiö
SotfUR S/eL1- KoWuR EKKi BíNS OG hfcK Voikt/. \
vú nfmwa fw mn matíM, Jwast vbm f 1
vfTJk|U ERu ALLT/ÍR í T/t-Dí^GðR E-OA VÁMSCRlOFí, ETlu \
miKlKMA 1 FÉLAGSSTöRfulVI OG WalhuSum
OG SKtUA Svo VW oKKuR Af WÍ Vi-p ERUM ^ W
sú" .......^ *
Sólskinsdans
Framsóknarflokksins
Átkökin um framtíð Framsóknar-
flokksins eru nú í algleymingi. Því
fer fjarri að um pólitíska fegurðar-
samkeppni sé að ræða. Það er tekist
á um grundvöll flokksins til fram-
tíðar. Lygilega löngu valdaskeiði
flokksins er að ljúka eftir nokkra
mánuði, en flokkurinn hefur átt
aðild að ríkisstjórn Islands frá falli
viðreisnar árið 1971 að undanskil-
dum fjórum árum þegar Viðeyjar-
stjórnin sat árin 1991-1995.
Áhrif Framsóknar hafa verið
óhemjumikil og langt umfram kjör-
fylgi flokksins. Sérstaklega síðasta
áratuginn og eftir sameiningu jafn-
aðarmanna í Samfylkingunni.
Þetta skeið rennur á enda næsta
vor og stefnir í mesta afhroð sem
þessi 90 ára gamli flokkur hefur
goldið í Alþingiskosningum. Það
er ekki bara kosið um hvort karl
eða kona skuli taka stýrið í brúnni
heldur um framtíð flokksins í ís-
lenskum stjórnmálum og auðvitað
áhrif S-hópsins og Halldórsmanna á
stjórn Framsóknar á næstunni.
Skellur fyrir Halldór og S-hópinn
Tapi Jón er það áfall fyrir S-hóp-
inn og Halldór Ásgrímsson. Mikið
áfall sem markar skýr skil og enda-
lok valdaskeiðs Halldórs. Þá tekur
við nýtt tímabil hjá Framsóknar-
flokknum þar sem Siv og líklega
Guðni safna saman rústunum með
því að storma upp vinstri kantinn á
öllum sviðum. Lok einkavæðingar
og stjóriðjustefnunnar er það sem
lesa má úr viðtölum við Guðna og
Siv sem mynda skýrt vinstrabanda-
lag í þessum átökum um framtíð
Framsóknar.
Takist Halldóri og þeim harð-
snúnu mönnum sem eru í kringum
hann með Finn Ingólfsson í broddi
fylkingar að leiða Jón Sigurðsson til
valda og formennsku er engin vafi á
því að Framsókn mun áfram vinna
með íhaldinu. Fái þeir fylgi til þess
að mynda stjórn með Sjálfstæðis-
flokknum fjórða kjörtímbilið í röð.
Björgvin G. Sigurðsson
Hækjunni er kennt um heltina
og Sjálfstæðisflokkurinn „dansar
áfram í sólskini“ eins og Guðni Ág-
ústsson orðaði það á dögunum.
Það var bæði áræðið og gott hjá
Siv Friðleifsdóttir að demba sér í
formannsslaginn hjá Framsókn.
Ekki síst þar sem Guðni Ágústsson
þorði ekki mér til mikillar undr-
unar. Slappt hjá kappanum og það
olli mörgum miklum vonbrigðum
að hann skyldi heykjast á framboð-
inu. Sérstaklega eftir aðför Halldórs
og félaga að honum í vor. Nú hangir
hans pólitíska framtíð í pilsi Sivjar.
Vinni hún þá vinnur hann. Tapi hún
þá fellur Guðni. Karl og kona. Lands-
byggð og borg. Það verður mikill
skellur fyrir hann og Framsókn úti
á landi.
Vinni Siv er kominn formaður til
næstu framtíðar, það er engin spurn-
ing, enda er Siv á besta aldri en með
mikla reynslu á bak við sig. Það yrði
óvæntur skellur fyrir Halldór og
hans menn sem ætla öðrum en Siv
að taka við af Jóni innan nokkurra
ára. Siv sæti lengur og léti þá pilta
ekki stjaka við sér.
Vinstrabandalag Guðna og Sivjar
Með sigri Guðna og Sivjar færi
flokkurinn að mínu mati skýrt til
vinstri. Bæði eru þau félagshyggju-
fólk í skoðunum. Sigur Jóns er
ávísun á framhald með Sjálfstæðis-
flokki og framlenging á hægristefnu
Framsóknar. Fái flokkurinn til þess
styrk í kosningum.
Guðni og Siv munu halla sér að
Samfylkingunni og þá kannski
rætist draumur margra um tveggja
flokka stjórn Framsóknar og Sam-
fylkingar. Fái Framsókn ekki þá
útreið sem við flokknum blasir nú.
Tveggja flokka stjórn þessara flokka
væri kærkomin viðbót í samsteypu-
flóruna og frelsar flokkana úr gísl-
ingu vinstri grænna annarsvegar og
Sjálfstæðisflokks hinsvegar.
Líklega munu Guðni og Siv, verði
þau kjörin, sópa að stórum hluta
til baka fylginu sem nú er í vist hjá
vinstri grænum. Sérstaklega úti á
landi. Sigur Jóns og Jónínu yrði mik-
ill sigur fyrir VG og vatn á myllu
þess flokks. Hægrisinnaður borgar-
flokkur í eilífðarvist hjá íhaldinu er
ekki Hklegur til að ná flóttamönnum
úr Framsókn til baka. Þá er stutt í
endalok Framóknar sem stjórnar-
flokks og við gætu tekið ströng ár í
stjórnarandstöðu með fylgið í eins
stafs tölu.
Því er mikið undir og skarpar
línur á milli bandalaganna tveggja.
Á fundinum eftir viku ræðst fram-
tíð Framsóknar og um leið hvort
framtíðin verði án Framsóknar.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.
Klippt & skorið
Atökin í Líbanon hafa verið mjög í brenni-
depli fjölmiðla undanfarnar vikur og
þaðan hafa streymt fréttir og frátta-
myndir af skelfingunni sem stríðsrekstri fylgir.
Ekki er þó allt sem sýnist því - eins og dyggir
lesendur Blaðsins vissu fyrir viku - komst upp
um fölsun Ijósmynda eins Ijósmyndara frétta-
stofunnar Reuters og grunur er uppi um að
margar myndir annarra myndasmiða á svæð-
inu hafi verið uppstilltar fremur en þvottekta
fréttamyndir. Erlendis hefur þetta vakið mikla
umræðu um eðli fréttaöflunar og hvernig
fjölmiðlar geti varist því að vera misnotaðir (
áróðursskyni. Væri
ekki ráð fyrir Blaða-
mannafélagið að
efnatil Pressukvölds
um málið? Það
varðar trúverðugleika fréttaflutnings þeirra
frá útlöndum, en svo er það náttúrlega ekki
óþekkt að íslenskir fjöldmiðlar séu misnotaðir.
Kurr mun vera í mörgum starfsmönnum
365 miðla Dagsbrúnar hans Baugs þessa
dagana eftir að hafa lesið tekjublað
Frjálsrar verslunar og úttekt DV
á launum fjölmiðlamanna. Sér-
staklega staldra þeir við launa-
kjör undrabarnanna Helga Her-
mannssonar og Arna Þórs
Vigfússonar, en það eru kraftaverkamenn-
irnirá bakvið slitrótta sigurgöngu Sirkuss. Sam-
kvæmt listanum var Helgi með um 1,1 milljón
króna í laun á mánuði, en Árni Þór um 700.000
kr. Sjálfsagt eru mánaðarlaunin þó allnokkru
hærri, því þeir félagar hófu ekki störf fyrr en
nokkuð var á árið liðið og Árni Þór þurfti þar
að auki að fara austur yfir fjall um stundarsakir.
Grínast menn á kaffistofunni með að aldrei
hafi jafnfáum verið borgar jafnmikið fyrir að
gera nokkru fyrirtæki jafnmikið.
*
Aþessum stað var í fyrri
viku minnst á orðróm
þess efnis að Þóra Guð-
mundsdóttir, sem kennd var
við Atlanta, væri fjárhagslegur
bakhjarl hins nýja fjölmiðla-
fyrirtækis Reynis Traustasonar. Þóra hafði
samband við klippara og tók því víðs fjarri
að þannig væri í pottinn búið, hún hefði
verið upptekin við opnun nýrrar verslunar á
Laugaveginum.
andres.magnusson@bladid.net