blaðið - 15.08.2006, Qupperneq 21
blaöið ÞRIÐJUDAGUR 15. ÁGÚST 2006
29
3.
Góðir skór
Mikilvægt er að hlauparar séu á góðum skóm enda mik-
ið álag á fæturna. Uilið þvi ekki fyrir ykkur að kaupa
dýra skó og leitið leiðbeininga hjá sérfræðingum um
hvað hentar ykkur best.
Skemmtiö ykkur
i Reykjavikurmaraþoni Glítnis er hægt að taka þátt í skemmtiskokki sem er
einkar skemmtilegt. Skemmtiskokkið er þriggja kilómetra langt og það er ekkí
nauðsynlegt að hlaupa i spreng alia leiðina. Hví ekki að taka fjölskyldu og vini
með, skokka létt og njóta dagsins.
Reykjavikurmaraþon Glitnls:
Allir sigra á hlaupum
Næstkomandi laugardag verður
Reykjavíkurmarþonið haldið í 23.
sinn. Að þessu sinni er Glitnir sam-
starfsaðili maraþonsins og það ber
því heitið Reykjavíkurmaraþon
Glitnis. Maraþonið skiptist í fimm
mislangar vegalengdir, 1,5 kíló-
metra (km) Latabæjarmaraþon, 3
km skemmtiskokk, 10 km, 21 km og
42 km. Skemmtiskokkið er ætlað
fyrir fjölskylduna og einstaklinga á
öllum aldri en skemmtiskokkið er 3
km vegalengd. Maraþonhlaupið er
opið öllum 18 ára og eldri og hálf-
maraþonhlaupið er opið hlaupurum
16 ára og eldri. Það er ekki æskilegt
að 12 ára og yngri hlaupi 10 km
nema með góðum undirbúningi.
Reglulegar drykkjarstöðvar
Rástímar hlaupanna eru mis-
munandi svo hlaupin rekist ekki á.
I hálfmaraþon- og maraþonhlaupi
er boðið upp á að fara af stað áður
en aðalræsing fer fram. Miðað
er við að maraþon- og hálfmara-
þonhlauparar sem áætla að vera
lengur en 5 tíma á leiðinni notfæri
sér þennan möguleika, þannig að
þeim takist að ljúka hlaupinu þegar
markinu verður lokað klukkan
15:00. Á um það bil 5 km fresti í
hlaupunum verða drykkjarstöðvar
þar sem boðið verður upp á Po-
werade íþróttadrykk og vatn auk
þess sem boðið verður upp á ban-
ana í 42 km hlaupinu. I Lækjargötu
verður boðið upp á kók. Það verða
færanleg salerni eftir 5 km, 12 km,
18 km, 23 km og 34 km. Læknar og
hjúkrunarlið verða til reiðu meðan
á hlaupinu stendur og til aðstoðar
er hlauparar koma í mark. Eins
munu félagar úr Hjálparsveit skáta
í Reykjavík veita aðstoð á hlaupa-
leiðinni og við markið.
Pastaveisla og ókeypis sund
Hægt er að skrá sig á www.
glitnir.is en forskráningu á Netinu
lýkur 17. ágúst kl. 19:00. Eftir for-
skráninguna fer öll skráning fram
í Laugardalshöllinni þann 18. ág-
úst frá kl. 12:00 til 21:00. Eins geta
þátttakendur sótt keppnisgögn og
stuttermaboli í Laugardalshöllina
á sama tíma. Þátttakendum í 3 til
42 km hlaupunum er boðið til pasta-
veislu í boði Barilla, föstudaginn
18. ágúst kl. 18:00 til 21:00 í Laugar-
dalshöllinni. Það er ekki það eina
sem er í boði fyrir þátttakendur því
öllum þátttakendum er líka boðið
í sund í Reykjavík á hlaupadaginn
og daginn eftir, sunnudaginn 20.
ágúst í boði ITR.
HÉR MÁ SJÁ DAGSKRÁ
REYKJAVÍKURMARAÞONS
GLITNIS:
Ræsing fyrir þá sem þurfa lengri tíma:
kl 08:00 Ræst í maraþoni. Áætlaöur hlaup-
tími 5-7 tímar.
kl 08:00 Ræst í hálfmaraþoni. Áætlaður
hlauptími 5-7 timar.
Aðalræsing: kl 09:00 Maraþon. Áætlaður
hlauptími undir 5 tímum.
kl 09:4010 km
kl 10:05 Hálfmaraþon. Hlauptími undir 5
tímum.
kl 10:45 Upphitun fyrir skemmtiskokk.
kl 11:00 3 km skemmtiskokk. Upphaf
menningarnætur.
kl 13:45 Latabæjardagskrá hefst
kl 14:15 Latabæjarhlaup 1,5 km
kl 15:00 Tímatöku hætt í 10, 21 og 42 km
Hlaupaþjálfari gefur ráð:
Skiptir miklu að hlaupa á jöfnum hraða
Gunnar Páll Jóakimsson, íþrótta-
fræðingur og hlaupaþjálfari, ráð-
leggur þeim sem hyggjast taka þátt
í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis að
hlaupa einungis þær vegalengdir sem
þeir telja að þeir ráði við.
„Ég ráðlegg engum að byrja á 42 kíló-
metrum enda er mikið atriði að menn
hlaupi einungis þá vegalengd sem þeir
ráða við. Það er svo hægt að setja sér
það markmið að fara lengra á næsta
ári. Þeir sem fara í maraþon hafa yfir-
leitt æft í mörg ár og eru komnir með
góðan grunn. Þeir vita hvað þeir ráða
við og hafa einhverja hugmynd um
hve hratt þeir eiga að fara. Aðrir sem
hafa æft kerfisbundið í nokkra mán-
uði ættu að ráða við tíu kílómetrana.
Hins vegar ættu þeir sem treysta sér
ekki til að hlaupa langar vegalengdir
að byrja í skemmtiskokkinu. Allir
geta farið í skemmtiskokkið, því þar
er í góðu lagi að ganga þegar maður
verður þreyttur. Svo framarlega sem
þú treystir þér til að ganga í hálftíma
eða svo þá er í fínu lagið að taka þátt í
skemmtiskokkinu.“
Gunnar Páll talar um að mjög
miklu máli skipti að hlaupa á
jöfnum hraða í hlaupinu enda séu
margir sem eyðileggja hlaupið fyrir
sér með því að hlaupa of hratt af
stað. Hann segir mataræði fyrir
hlaup mikilvægt.
„Ef menn fara í lengri hlaup er
mikilvægt að borða kolvetnisríkan
sy1
mat dagana á undan. Síðan falla
sumir í þá gryfju að gera of mikið
fyrir hlaupið og verða því þreyttir
í hlaupinu. Sumir ætla að koma
sér í form á síðustu stundu en það
er betra að byrja fyrr upp á að vera
vel upplagður og tilbúinn til að gera
sitt besta á deginum sjálfum,“ segir
Gunnar Páll og bætir við að best sé
að borða eitthvað lítið og léttmelt
að morgni keppnisdags. „Kannski
ristað brauð með sultu eða banana
og drekka eitthvað með. I hlaupinu
sjálfu er mjög mikilvægt að viðhalda
vökvajafnvæginu með því að neyta
drykkjar 1 hlaupinu og það ættu allir
að gera sem hlaupa meira en einn og
hálfan klukkutíma.“
SAMSUNG
LE32M51BX
32" háskerpu
LCD sjónvarp
SÍr SAMSUNG
DVD-125
DVD upptökutæki
og spilarí
Nettur morgunmatur Gunnar Páll
ráðleggur hlaupurum að borða lítið
og léttmelt að morgni keppnisdags.
11 ára og yngri Krakkar sem eru
ellefu ára og yngri geta tekið þátt í
Latabæjarmaraþoni 19. ágúst.
íþróttaálfurinn
hleypur af stað
Latabæjarmaraþon er nýr liður
á dagskrá Reykjavíkurmara-
þons Glitnis sem fram fer á
laugardag. Allir krakkar, ellefu
ára og yngri, geta tekið þátt í
þessu fjölskyldumaraþoni en
dagskráin hefst fyrir framan úti-
bú Glitnis í Lækjargötu klukkan
13:45. Þá munu íþróttaálfurinn
og félagar hans hita mann-
skapinn upp með tilheyrandi
hoppum en hlaupið sjálft hefst
klukkan 14:15.
Börnin fá boli
Leiðin er einn og hálfur kílómet-
ri, eða sem leið liggur í kringum
litlu tjörnina. Þetta ætti að
vera heppileg vegalengd fyrir
hressa krakka sem muna að
taka lýsið sitt og hafa gaman af
að hreyfa sig.
Þegar hlaupinu lýkur fá þeir
sem tóku þátt í því sérstakan
Latabæjarmaraþonsbol sem
viðurkenningu fyrir þátttökuna.
Til að taka þátt í maraþoninu
þarf að greiða 800 krónur, en
ef systkini taka þátt fá þau
sérstakan afslátt. Innifalinn í
þátttökugjaldinu er Latabæjar-
bolurinn sem er sérstaklega
hannaður fyrir hlaupið auk
þess sem þátttakendur fá af-
hent verðlaun að hlaupi loknu.
Foreldrar sem vilja fylgja börn-
um sínum í hlaupinu þurfa ekki
að greiða fyrir það.
Skráning á Netinu
Skráning í Latabæjarmaraþon-
ið fer fram á vef Glitnis: www.
glitnir.is. og á www.marathon.
is en bolinn og önnur keppnis-
gögn Latabæjarmaraþonsins
má nálgast í Laugardalshöll
(nýju byggingunni) föstudag-
inn 18. ágúst milli kl. 12:00 og
21:00.
HJA ORMSSON
i fimm verslunum og hjá umboðsmönnum
Verð áður: 264.900 kr.
TILBOÐSVERÐ: 219.900 kr.
Þú sparar: 45.000 kr
ÞVOTTAVELAR
ÞURRKARAR
UPPÞVOTTAVÉLAR
KÆLISKÁPAR
OFNAR - VIFTUR
HELLUBORÐ
Pottar
og pönnur
25-40%
afsláttur
ORMSSON
1. LÁGMÚLA 8 ■ Simi 530 2800 2. SÍÐUMÚLA 9 ■ Simi 530 2800 3. SMÁRAUND • Simi 530 2900 4. AKUREYRI • Sími 461 5000 5. KEFLAVÍK ■ Sími 421 1535 WWW.ORMSSON.IS