blaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 2
2IFRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaðið
blaðiðiH
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 • www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Með skæri til Ósló
Guðbjartur Einarsson
komst meö stór skæri á
milli landa en ekki drykk.
Mynd/FMi
Frístundaheimili:
Biðlistar
styttast
Alls var 661 barn á biðlista eftir
plássi á frístundaheimili i Reykja-
vík í gær samkvæmt upplýs-
ingum frá Iþrótta og tómstunda-
ráði Reykjavíkur (ÍTR). í síðustu
viku voru um 8oo börn á biðlista
og hefur því tekist að útvega um
150 börnum pláss í millitíðinni.
íþrótta og tómstundaráði
Reykjavíkur bárust 2.500
umsóknir um pláss á frístunda-
heimilum í vetur en áætlanir
gerðu ráð fyrir um 2.100
umsóknum. Þá hefur gengið
erfiðlega að manna stöður á
frístundaheimilum og því hefur
þurft að vísa börnum tímba-
bundið frá vegna manneklu.
„Umsóknirnar eru miklu
fleiri en i fyrra. Ef áætlanir
okkar hefðu staðist væru rétt
um 200 börn á biðlista nú,“
segir SofFía Pálsdóttir, skrif-
stofustjóra tómstundamála.
Smyglaði óvart skærum á milli landa:
Með banvænt
vopn í farteskinu
■ Komst með stór skæri í gegnum tollinn ■ Tollverðir í Ósló steinhissa
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
„Þeir fundu örlítið rótarý-merki
sem ég var með í skyrtuvasanum
en ekki risapappírsskæri sem voru
í handfarangrinum,“ segir Guð-
bjartur Einarsson framkvæmda-
stjóri sem smyglaði fyrir slysni 25
sentímetra löngum skærum í flug-
vél frá íslandi.
Hann var á leiðinni til Noregs
þegar hann mætti á Leifsstöð sama
dag og tilkynning barst um fyrirhug-
aðar hryðjuverkaárásir í Bretlandi.
Öll gæsla var stórefld þennan dag í
Leifsstöð og mikil töf og óþægindi
bitnuðu á farþegum.
„Ég þurfti að fara úr skónum, skilja
NÝR VALKOSTIJR1
transport í
toll- og flutningsmiölun ehf A • J'
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
drykki eftir og svo var allt gegnum-
lýst í þokkabót,“ segir Guðbjartur
sem þykir atvikið með því spaugi-
legra en skærin voru í handfarangri
hjá honum.
Að lokum komst hann í flugið og
var þá ferðinni heitið til Noregs en
þaðan átti hann að taka tengiflug.
„Þegar ég kom til Ósló var ég kall-
aður inn í herbergi og þar var ég
spurður hvort ég væri með skærin
á mér,“ segir Guðbjartur en hann
bjóst alls ekki við að hann væri vopn-
aður og því neitaði hann sök í góðri
trú. Lögreglan dró þá upp skærin og
sýndi honum og þá áttaði hann sig á
því að þau væru hans eign. Konu hjá
tollgæslunni varð svo mikið um að
hún sýndi öllum sem vildu skærin
frá íslandi, svo furðu lostin var hún
að sögn Guðbjarts.
„Ég fékk að fara þegar ég útskýrði
mitt mál og urðu engar tafir á mtnú
flugi,“ segir Guðbjartur sem prisar
sig sælan að komast svo létt frá
vopnasmyglinu. Hann segir þó,
að málið sé alvarlegra
enda
vopn að ræða sem getur orðið stór-
hættulegt í röngum höndum.
„Auðvitað getur allt gerst,“ segir
Sigurbjörn Hallsson, yfirmaður ör-
yggisdeildar Keflavíkurflugvallar,
um ómeðvitaða skærasmyglið. Hann
segir að það sé afar sjaldgæft að menn
komist með vopn í gegnum vopnaleit
og bætir við að auðvitað sé allt hægt.
„Leitin hjá okkur er mjög nákvæm
en þegar þetta átti sér stað þá beind-
ist eftirlitið meira að þotum sem fóru
til Bandaríkjanna en Evrópu,“ segir
Sigurbjörn en nú mun allt eftirlitið
orðið eins og óháð því hvert farið er.
„Maður heyrir alltaf svona sögur af
og til. Ég man til dæmis eftir einum
manni sem átti að hafa verið að veiða
í Alaska og á leiðinni heim tók hann
veiðihníf með sér í handfarangrinum.
Hnífurinn fannst aldrei þrátt fyrir að
hann færi í gegnum fjölda flughafna,“
segir Sigurbjörn og bætir við að hann
telji þó vopnaleitina á vellinum í mjög
góðum málum.
svo
um
Á förnum vegi
Hver er besta
íslenska hljómsveitin?
Magnús Berg Magnússon, nemi
í augnablikinu er það Jeff Who?
Hildur Sveinsdóttir, nemi
Sigur Rós. Ekki nokkur spurning!
Hrafnkell Lárusson, sagnfræðingur
Það er sú sem var að hætta. Hjálmar.
Steinunn Jónsdóttir, nemi
Sigur Rós er best.
Jöfnunarstyrkur til náms
- Umsóknarfrestur er til 15. október 2006 -
Nemendur á framhaidsskólastigi sem ekki njóta lána
hjá LÍN geta sótt um styrk til jöfnunar á námskostnaði.
Styrkurinn ræðst af búsetu og er fyrir þá sem verða
að stunda nám fjarri heimili sínu.
• Dvalarstyrkur (fyrir þá sem verða að dvelja fjarri
lögheimili og fjölskyldu
sinni vegna nams).
• Styrkur vegna skólaaksturs (fyrir þá sem sækja
nám frá lögheimili oa
fjölskyldu fjarri skóla).
Nemendur og aðstandendur þeirra eru hvattir tíl að
kynna sér reglur um styrkinn á vef LÍN (www.lin.is).
Umsóknarfrestur vegna skólaársins 2006-2007 er til
15. október nk. Sækja má um styrkinn á heimasíðu
LÍN. Móttaka umsókna hefst í september nk.
Lánasjóður íslenskra námsmanna
Námsstyrkjanefnd
fiuy#
Algarve 30
Amsterdam 18
Barcelona 27
Berlín 18
Chicago 16
Dublin 16
Frankfurt 19
Glasgow 18
Hamborg 17
Helsinki 19
Kaupmannahöfn 17
London 16
Madrid 31
Mallorka 28
Montreal 12
New York 17
Orlando 25
Osló 22
París 21
Stokkhólmur 20
Vín 17
Þórshöfn 11
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 9020600
Byggt á upptýsingum frá Veðurstofu ístands