blaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 8
8 IFRÉTTIR FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaðið Flugslysið í Kentucky Aðeins einn á vakt mbl.is Eini flugumferðarstjórinn sem var á vakt þegar flugvél hrap- aði í Kentucky á sunnudag, með þeim afleiðingum að 49 létust, sneri baki í atburðinn. Starfsmaður- inn sá ekki þegar flugvélin fór inn árangaflugbrautviðflugtakvegna Flugmálayfirvöld hafa viður- þess að hann hafði snúið sér að kennt að þau hafi brotið sínar eigin því að sinna öðrum starfsskyldum reglur með því að hafa einungis sínum að sögn embættismanna. einn flugumferðarstjóra á vaktinni. f7Tior>. Ekki vitað hvað manninum gekk til „Við viljum vita hver hann er,“ segir fram- kvæmdastjóri KSI. Sprettharður áhorfandi: Stakk verðina af og hvarf út í rökkrið ■ Þrír hlupu inn á leikvanginnTliTveír náðust ■ Knattspyrnusambandið íhugar að kæra Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladid.net Ekki liggur fyrir hvort Knattspyrnu- samband íslands muni leggja fram kæru á hendur manninum sem truflaði bikarleik í Laugardalnum síðastliðinn þriðjudag. Að sögn framkvæmdastjóra Knattspyrnusam- bandsins er atvikið litið alvarlegum augum en maðurinn slapp eftir að hafa hlaupið þvert yfir völlinn. Þá var kallað á lögreglu eftir að tveir ung- lingspiltar sluppu inn á völlinn eftir að hefðbundnum leiktíma lauk. Varðist fimlega „Við erum með myndir og viljum gjarnan komast að því hver þessi maður er,“ segir Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Knattspyrnu- sambands Islands (KSÍ). „Það er alltaf leiðinlegt þegar svona gerist en sem betur fer hefur ekki verið mikið um þetta.“ Seinni hálfleikur í bikarleik Þróttar og KR var um það bil hálfn- aður síðastliðið þriðjudagskvöld þegar áhorfandi birtist skyndilega á leikvellinum. Tók hann á rás þvert yfir völlinn og upp í stúkuna vest- anmegin. Á leiðinni varðist hann fimlega öllum tilraunum gæslu- manna til að hafa hendur í hári hans og reyndist nokkuð frár á fæti. Að lokum klifraði hann yfir girðingu við bílastæðið og hvarf sjónum gæslumanna fljótlega eftir það. Stuttu eftir þetta atvik sluppu síðan tveir unglingspiltar inn á völl- inn rétt áður en fyrri hálfleikur í framlengingu hófst. Þeir reyndust hins vegar ekki eins sprettharðir og voru handsamaðir. Leikur grunur á að þeir hafi verið undir áhrifum áfengis. Hafa ekki lent í þessu áður Að sögn Jóhanns G. Kristinssonar, vallarstjóra Laugardalsvallar, eru atvik af þessu tagi afar sjaldgæf hér á landi. „Við höfum ekki lent í þessu hérna á Laugardalsvelli síðan við tókum við vellinum árið 1997. Reglan er hins vegar mjög skýr. Þetta er bannað og við reynum að koma í veg fyrir að þetta geti gerst.“ Fjórir vallarstarfsmenn gættu vallarins á meðan á leiknum stóð og nutu þeir aðstoðar níu gæslumanna frá Hjálparsveit skáta. Jóhann segir ekki útilokað að maðurinn sem slapp verði kærður þegar upp kemst hver hann er. „Ég mun skoða það með framkvæmdastjóra KSÍ hvort maðurinn verði kærður en það liggur ekki fyrir núna. Hefði þetta gerst á landsleik eða Evrópuleik hefði KSl verið sektað." Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík eru ekki sér- stök viðurlög við uppákomum af þessu tagi. Menn geta þó búist við einhverjum sektum sem miðast við málsatvik. Aukakílóin herja á Bandaríkjamenn sem aldrei fyrr Offitusjúklingum fjölgar Offitusjúklingum í Bandaríkj- unum fjölgar ört samkvæmt nýrri skýrslu. I þeim ríkjum þar sem ástandið er verst á þriðjungur íbúa við offituvandamál að stríða. Skýrslan var gerð af óháðum sam- tökum sem sinna lýðheilsu Banda- ríkjamanna, Trust for America’s Health. Samkvæmt niðurstöðum hennar fjölgaði offítusjúklingum í 31 ríki í fyrra og á sama tíma varð engin fækkun í öðrum ríkjum. Flestir offit usjúklingarnir búa í Suð- urríkjunum og er ástandið verst í Miss- isippi, Alabama og Vestur-Virginíu. Ástandið er einna skást í Kólóradó, Havaí og Massachussetts en þrátt fyrir það eru á bilinu 17 til 18 prósent Ibúa þessara rikja offitusjúklingar. Að sögn Jeff Levi, sem er læknir Hreyfingarleysi veldur offitu Körfuknattleiksmaöurinn Carmelo Anthony tilheyrir þeim hópi Bandaríkjamanna sem á ekki við offituvandamál að stríða. Þeim sem skipa þann hóp fer fækkandi og fer fyrir samtökunum sem gerðu leiðingar þessarar þróunar alvarlegar. rannsóknina, er ástandið ákaflega Hægt sé að rekja 27% af heildarút- alvarlegt í Bandaríkjunum og það gjöldum til heilbrigðismála í Banda- liggi fyrir að aðgerðir stjórnvalda í ríkjunum til meðferðar á sjúkdómum baráttunni gegn offitu hafi brugðist. sem eru tilkomnir vegna offitu og of Að sögn Levi eru efnahagslegar af- lítillar hreyfingar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.