blaðið - 31.08.2006, Blaðsíða 30
30
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaðið
íþróttir
ithrottir@bladid.net
Lita með Zidane-heilkennið
Leroy Lita, sóknarmaður Reading, var handtekinn i gærmorgun vegna meintrar
likamsárásar sem átti sár stað aðfaranótt síðasta sunnudags. Lita er sagður
hafa ráðist á 24 ára gamlan karlmann og skallað hann i andlitið. Lita, sem er
21 árs og ættaður frá Kongó, var keyptur til Reading frá Bristol City fyrir eina
milljón punda síðasta sumar.
Gunnar Hrafn Gunnarsson er íslenskur atvinnumaður í dansi:
Mikill keppnismaður
sem ætlar á toppinn
■ Harður heimur í dansinum ■ Keppnisdönsurum fer fækkandi hér á landi
Eftir Björn Braga Arnarsson
bjorn@bladid.net
Gunnar Hrafn Gunnarsson er 22
ára íslenskur strákur sem er búsett-
ur í Þýskalandi, hvar hann leggur
stund á dans og keppir fyrir íslands
hönd. Hann segir mikla hörku ríkja
í dansheiminum og erfitt að koma
ár sinni fyrir borð á meðal þeirra
bestu, en er þó hvergi banginn: „Ég
get náð alla leið ef ég vil það,“ segir
Gunnar og lætur ekki á sig fá þótt
oft geti orðið hart í ári.
Heimsmeistaramótið framundan
Gunnar og dansfélagi hans, Mel-
issa Ortiz Gomes frá Spáni, hafa
dansað saman frá því í byrjun þessa
árs og náðu góðum árangri á stór-
móti í Stuttgart um síðustu helgi.
,Það má segja að þetta mót hafi ver-
ið fyrsta stórmótið okkar. German
Open er, ásamt mótinu í Blackpool,
stærsta og fjölmennasta keppnin í
dansheiminum," segir Gunnar, en
hann og Melissa kepptu í svonefnd-
um „Rising Stars“ flokki þar sem
efnilegustu pör heims voru sam-
ankomin. „Við lentum í 65. sæti af
270 pörum og vorum við
nokkuð sátt við
þann árangur,
þar sem við
höfum ekki
verið að dansa
saman svo lengi.“
Gunnar segir að með
því að keppa undir merkj-
um Islands eigi þau Melissa
auðveldara með að fá þátttöku-
rétt á stærstu mótunum. „Það
eru náttúrlega svo fá pör á ís-
landi þannig að það eru færri
að berjast um hituna. í Þýska-
landi eru kannski 100 pör að
keppa um tvö sæti á meðan það
eru í mesta lagi átta á ísland.
Þannig höfum við fengið þátt-
tökurétt á til dæmis heimsmeist-
ara- og Evrópumótinu," segir
Gunnar en heimsmeistaramótið
fer einmitt fram í lok næsta mán-
aðar í þýsku borginni Karlsruhe.
,Það verða 80 pör á mótinu og við
höfum sett okkur það markmið
að komast í 24-para úrslit,“ segir
hann.
Hægt að lifa vel á dansinum
Gunnar flutti til Þýskalands
fyrir ári en áður hafði hann verið
búsettur í Danmörku og Svíþjóð
þar sem hann var við dansæfing-
ar. „í ágúst 2005 fór ég til Stuttgart
í danskeppni og hitti þar Melissu,
en hún hafði þá verið á Spáni að
dansa hip hop og salsa í einhvern
tíma. Hún vildi hins vegar fara aft-
ur í latín-dansana og því fórum við
að dansa saman,“ segir Gunnar og
bætir við að samstarfið hafi gengið
mjög vel.
Gunnar er á dansæfingum um
fjórar klukkustundir á dag en með-
fram þeim stundar hann þrek- og
styrktarþjálfun. Hann segir að ut-
an æfinga geti orðið hálf einmana-
legt á köflum. „Það hefur kannski
ekki verið neitt alltof mikið að gera
hérna. En ég er þó að fara að vinna
eitthvað með þessu á næstunni. Ég
vildi einbeita mér að dansinum
fyrst um sinn og komast aðeins bet-
u r inn í tungumálið áður en ég
færi að vinna.“
Gunnar segist hafa
lítinn pening út úr dans-
inum sem stendur en
vonast til að betri ár-
angur verði til þess að
auðveldara verði að fá
styrki. „Pör þurfa að
vera að gera eitthvað
á heimsvísu og ná
ágætum úrslitum
til að fá styrki.
Um leið og það
fer að nást al-
mennilegur árang-
ur verður auðveldara að
fá styrki og það ætti að
fara að gerast hjá okk-
ur,“ segir Gunnar en
bætir við að komist
hann í fremstu röð
sé auðvelt að lifa
vel á dansinum þó
að til séu arðbær-
ari íþróttagreinar.
„Maður hefði kannski
frekar átt að fara í fót-
boltann, en það er líka
gaman að vera að keppa
í einhverju sem er öðru-
vísi. Ég er keppnismaður
og vil keppa í einhverju.“
Fækkar í leikmannahópi Real Madrid:
Gravesen til Celtic
Thomas Gravesen greindi frá
því í gær að hann hefði komist að
samkomulagi við Gordon Strachan,
stjóra Celtic, um að ganga til liðs við
skosku meistarana. Gravesen var í
Glasgow á dögunum til að ræða um
kaup og kjör en fór aftur til Kaup-
mannahafnar til að hitta landsliðs-
félaga sína, án þess að skrifa undir
samning. Töldu því margir að Dan-
inn hefði ekki náð samkomulagi við
félagið en hann sagði svo ekki vera.
„Ég get aðeins sagt að ég, Gordon
Strachan og umboðsmaður minn
höfum náð samkomulagi og gefum
út opinbera yfirlýsingu á morgun,"
sagði Gravesen við Daily Record.
Talið er að hann muni skrifa undir
þriggja ára samning við Celtic, sem
greiðir Real Madrid tvær milljónir
punda fyrir danska landsliðsmann-
inn. Koma Gravesen gæti þýtt það
að Celtic muni leyfa Búlgaranum
Stilian Petrov að fara til Aston Villa.
Vinsældirnar minnkandi hérlendis
Gunnar segir að keppnisdönsur-
um hafi farið fækkandi á íslandi
undanfarin ár og vinsældir íþrótt-
arinnar hafi minnkað, en á erfitt
með að koma auga á ástæðuna fyr-
ir því.
„Það er erfitt að segja hvers vegna
vinsældirnar hafa farið minnk-
andi. Fyrir svona tíu árum voru
mjög margir krakkar að æfa dans
en þeim hefur fækkað mikið. Það
er líklegt að peningamál spili stórt
hlutverk. Það kostar mikið að vera í
þessu ef maður ætlar sér að ná langt
þannig að það hefur kannski kom-
ið í veg fyrir að fleiri keppi í þessu,“
segir Gunnar en segir að í mörgum
öðrum löndum sé dansinn gríðar-
lega vinsæll.
Sjálfur segist hann hafa ráðið litlu
um að byrja í dansi á sínum tíma en
ekki hafi liðið á löngu þar til dans-
íþróttin var orðin hans helsta áhuga-
mál. „Ég er bara alinn upp við þetta,
mamma henti mér út í dansinn þeg-
ar ég var fimm ára gamall. En svo
var þetta bara stórskemmtilegt og
frábær félagsskapur þannig að það
varð ekki aftur snúið.“
Leikmaður frá Celtic:
Petrov til Villa
Aston Villa hefur gengið frá
kaupum á búlgarska miðju-
manninum Stilian Petrov frá
Celtic. Um er að ræða fyrstu
kaup liðsins frá því að Mart-
in O’Neill tók við stjórn.
Petrov, sem er 27 ára og fyrir-
liði búlgarska landsliðsins, skrifar
undir fjögurra ára samning við
Villa. „Ég hef þekkt hann lengi og
veit að hann er mikill íþróttamað-
ur sem getur skorað mörk. Hann
er gríðarlega leikreyndur en á
samt bestu ár sín framundan,"
sagði O’Neill, sem þekkir Petrov
vel frá stjórnartíð sinni hjá Celtic.
;
Formúla 1:
Ekki keppt í
San Marínó
FIA hefur gefið út mótaskrá
fyrir Formúlutímabilið 2007.
Sautján keppnir verða á árinu og
er það einni færri en í ár. Búið er
að fella út kappaksturinn í San
Marínó og Nurburgring í Þýska-
landi og hefur ekki verið ákveðið
hvar kappaksturinn í Þýskalandi
verði haldinn á næsta ári. Im-
ola-kappaksturinn fer ekki fram
þar sem verið er að endurbæta
brautina og aðstæður eftir því
sem krafist er í dag. Belgíski
Spa-kappaksturinn er hins vegar
aftur á dagskrá eftir sams konar
endurbætur.
IVIÓTASKRÁ FORMÚLUNNAR 2007:
18. mars Albert Park, Ástralía
8. april Sepang, Malasia
15. apríl Barein, Barein
13. mai Katalónía, Spánn
27. maí Monte Carlo, Mónakó
10. júní Circuit Gilles Villeneuve, Kan.
17. júni Indianapolis, Bandaríkin
l.júli Magny Cours, Frakkland
8. júlí Silverstone, Bretland
22. júlí ?, Þýskaland
5. ágúst Hungaroring, Ungl.
26. ágúst istanbul, Tyrkland
9. sept. Monza, Italia
16. sept. Spa, Belgía
30. sep. Sjanghæ, Kína
7. okt. Fuji, Japan
21.okt. Interlagos, Brasilia