blaðið

Ulloq

blaðið - 31.08.2006, Qupperneq 12

blaðið - 31.08.2006, Qupperneq 12
12 I FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST 2006 blaðiö Skemmtiferðaskip: Yfir 100.000 farþegar Talið er að tekjur vegna komu erlendra skemmtiferðaskipa til landsins nemi 450 til 650 millj- ónum, samkvæmt upplýsingum frá samgönguráðuneytinu. Alls er gert ráð fyrir að um 190 er- lend skemmtiferðaskip með yfir 100 þúsund farþega hafi komið og komi til landins í sumar og hafa flest þeirra viðkomu í Reykjavíkurhöfn. Tekjur vegna hafnar- og vitagjalda eru á bilinu 130 til 150 milljónir og þá er talið að ferða- menn sem í land koma eyði um 300 til 500 milljónum króna í vörur og þjónustu. írak: Ekkert lát á ofbeldisöldunni Á fimmta tug manna féllu í valinn í sprengjuárásum í Irak í gær, þar á meðal tuttugu og fjórir sem féllu eftir að sprengja sprakk á markaðstorgi í Bagdad. Á fjórða tug særðust í árásinni. Á sama tíma og sprengjan sprakk féllu tveir og á fjórða tug særð- ust i öðru tilræði í borginni. I Hilla, sem er um 100 kílametra suður af Bagdad, féllu tólf og um íjörutíu særðust þegar sprengja sprakk við skrifstofu íraska hersins. Þrátt fyrir að ekkert lát virðist á skálmöldinni í landinu segja írösk yfirvöld og yfirmenn bandaríska heraflans í landinu að árangur sé að nást i barátt- unni gegn vígamönnum. Benda þeir á að í kjölfar hertra öryggis- aðgerða hafi mortíðnin í landinu lækkað töluvert frá því í síðasta mánuði. Leifsstöð: Aldrei fleiri ferðamenn Tæplega 67 þúsund erlendir ferðamenn komu hingað til lands í síðastliðnum júlímánuði, samkvæmt ta'.ningu Ferðamála- stofu á Keflavíkurflugvelli. Þeir hafa aldrei verið fleiri. Sem fyrr koma flestir ferða- menn frá Norðurlöndunum og Þýskalandi eða tæplega 25 þús- und manns. Um 9 þúsund komu frá Bandaríkjunum. Frá áramótum hafa um 216 þúsund erlendir ferðamenn farið um Leifsstöð. Á sama tíma i fyrra voru þeir 203 þúsund og fjölgar því um 13 þúsund milli ára eða 6,3 prósent. Fjöldi fólks enn án atvinnuúrræða þegar varnarliðið fer: Suðurnesjamenn bíða örlagadagsins mikla Lýst eftir nefnd ráðuneytanna ■ Niðurdrepandi ástand ■ Bandaríkjamenn virrðast mega allt Nefnd á vegum ráðuneyta um mögu- leg atvinnuúrræði á Suðurnesjum verðist ekki vera að vinna vinnuna sína, að minnsta kosti ekki í samráði við hagsmunaaðila þar á bæ. Hátt í þrjú hundruð einstaklingar eru enn án úrræða þegar örlagadagurinn nálg- ast óðum en 30. september rennur uppsagnafresturinn út og fólkið stendur eftir atvinnulaust. Flestir þeirra hafa í marga áratugi starfað hjá Varnaliðinu og jafnvel aldrei unnið utan vallar og því eru margir þeirrar skoðunar að gera eigi kröfu á Bandaríkjamenn að leysa það fólk út með starfslokasamningum og þakka þannig fyrir samstarfið. Undarlegt er hversu lítið heyrist opinberlega af gangi viðræðna við Bandaríkjamenn og fáar hugmyndir hafa komið fram frá stjórnvöldum um hvernig eigi að leysa úr því atvinnuleysi sem virðist blasa við á Suðurnesjum. „Það eina sem hefur gerst eftir sjok- kið þegar Bandaríkjaher tilkynnti brottförina er að tíminn hefur liðið og trén hafa hækkað," segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins. Digurbarkalega yfirlýsingar Samningaviðræður við Bandaríkja- menn um varnarsamstarf standa enn yfir en ljóst er að þeir leggja mikið undir til að komast sem fyrst burtu með starfsemina á Suðurnesjum. Innan við mánuður er þar til uppsagn- arfrestur starfsmann rennur út og þvi miklar líkur á fjölda fólks sem standi eftir atvinnulaus eftir þann dag. „Örlagadagurinn nálgast og á þriðja hundrað er enn án atvinnuúr- ræða hér á Suðurnesjum. Það blasir ekkert annað við en mikið atvinnu- leysi. Þrátt fyrir digurbarkalegar yf- irlýsingar stjórnvalda þá er nákvæm- lega ekkert að gerast í þessum málum,“ segir Kristján. Hár meðalaldur Kristján bendir á að stór hluti þessa fólks hafi starfað i áratugi hjá Varn- arliðinu og erfitt sé fyrir það fólk að lenda skyndilega í þeirri stöðu að finna sér annað starf. „Meðalaldur þeirra sem þurfa að fara aftur út á vinnumarkaðinn er mjög hár, ríflega fimmtíu ár. Við höfum bent á að starfslokasamningar eiga hér vel við og jafnvel hugtakið flýtt starfslok. Okkur þykir eðlilegt að Bandaríkjamenn beri atvinnupólit- íska ábyrgð á þessu og þeir greiði fyrir starfslokþessa fólks,“ segir Kristján. „Ég hefði viljað sjá þá nefnd sem .skipuð var gera eitthvað, þeir eru ekk- ert að funda né fara yfir málin. Frum- kvæði nefndarinnar er ekkert og það er bara verið að bíða eftir 30. sept- ember án þess að aðhafast neitt. Við sitjum eiginlega eins og aumingjar og gerum ekkert í málinu.“ Hvar er nefndin? Ketill G. Jósefsson, forstöðu- maður Svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja, tekur undir gagnrýni Kristjáns um störf / nefndar á vegum ráðuneyt- anna sem vinna á í atvinnuúr- . ræðum á Suðurnesjum. Hann hefur jafnframt áhyggjur af því hversu rólegt hefur verið hjá sér miðað við hversu stutt er í endan legan brottflutn- ing Varnarliðsins. „Gallinn er sá að fólkið er enn að vinna samkvæmt uppsagnarfresti og það er ekki enn farið að leita til okkar af þeim sökum. Umferðin hjá okkur hefur verið litil að mínu mati og því hætt við sprengju þegar uppsagna- fresturinn rennur út.“ Ketill segir að verið sé að skipu- leggja námskeið sem miði sérstaklega við þarfir eldra starfsfólksins því stór hluti hópsins sé eldra fólk. „Það verður að bregðast við sérstak- lega við með tilliti til þess. Flestir í þeim hópi sem enn er án atvinnu hafa unnið þarna svo áratugum skiptir og jafnvel aldrei unnið utan vallarins," segir Ketill. „Sú nefnd sem huga átti að atvinnu- úrræðum á Suðurnesjum hefur ekki verið í samvinnu við okkur. Við erum sú skrifstofa sem þarf að mæta þessu fólki þegar uppsagnafrestur þess hjá Varnarliðinu rennur út.“ Hundraðá mann Hjá Svæðisvinnumiðlun Suður- nesja starfa þrír starfsmenn þannig að miðað við spá Ketils þá verður mikið álag á þeim bænum eftir að ör- lagadagurinn rennur upp. Miðað við þann fjölda sem verða atvinnulausir þegar herinn fer þá reiknast hundrað einstaklingar á hvern starfsmann hjá vinnumiðluninni. „Við munum vera með námskeið á haustönninni fyrir þann hóp sem eldri er því hinir yngri hafa flestir fundið sér vinnu. í framhaldinu munum við reyna að finna störf sem henta öldr- uðum eða veikburða einstaklingum.“ Formaður Starfsgreinsambandsins hefur einnig lýst yfir áhyggjum af því að umrædd nefnd sé ekki starfandi þrátt fyrir digurbarkalegar yfirlýs- ingar stjórnvalda og Ketill segir aðila of mikið vera að bauka hver í sínu horni. „Við höfum ekki orðið vör við þessa nefnd. Það er of mikið um það að hver sé bauka í sínu horni í stað þess að vinna saman í því að leysa vandann,“ segir Ketill. m „Fólk hefur verið að leita eftir upplýs- ingum en við hefðum viljað sjá meiri umferð því það styttist óðum í þann dag sem uppsagnarfrestur fólksins rennur út. Eg hugsa einn dag í einu og við reynum að taka hér vel á móti öllum. Ég er ekki banginn á framtíð- ina og með hækkandi sól þá held ég að málin verði leyst.“ Nefndin er við störf Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoð- armaður forsætisráðherra, segir nefnd- ina hins vegar vera við störf. „Boðað hefur verið til fundar hjá nefndinni í næstu viku og hún hefur hist tvisvar hingað til, að því ég best veit. Varð- andi starfslokasamninga þá er það alfarið í höndum atvinnurekenda og verður ekki til umræðu hjá samninga- nefndinni,“ segir Ragnheiður Elín. Nóg af atvinnuúrræðum Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykja- nesbæjar, telur jákvætt hversu margir hafa nú þegar fundið annað starf en segir ljóst að ákveðinn hópur hafi verið að leita að starfi en ekkert fengið. „Ekkert hefur gengið eða rekið í við- ræðum við ríkið eða Bandaríkjamenn um stuðning við þann hóp sem erfið- ast á með að finna nýtt starf. Það er ákveðinn fjöldi starfsmanna sem hafa valið að klára sinn uppsagnarfrest. I þeim hópi eru ýmsir sem gætu átt í erfiðleikum með að fá önnur störf, bæði fyrir aldurs sakir og sérhæfingar. Æskilegt hefði verið að leggja áherslu á það strax gagnvart bandarískum yfirvöldum að tryggja réttindi þessa hóps," segir Árni. „Það virðist vera rólegt að gera hjá vinnumiðluninni og því spurning hvort fólk sé nokkuð að hafa áhyggjur af þessu. Hins vegar hafa margir leitað til ráðgjafarstofunnar og það er jákvætt. Hörgull er á starfsfólki á Suð- urnesjum og mikið auglýst af lausum störfum. Þetta er spurning um val hjá þeim sem eiga eftir að fá atvinnu," bætir Árni við. Trausti Hafsteinsson skriíarum atvinnuhorfur U áSuðumesjum Jóhannes B. Halldórsson Að sjálfsögðu átti að veita fólki starfslokasamninga. Arni Sigfússon Spurning hvort fólk sé nokkuð að hafa áhyggjur af þessu. Fréttaljós trausti@bladid.n llla komið fram við okkur Jóhannes B. Halldórsson, þungavéla- maður á Keflavíkurflugvelli, hefur starfað fyrir Varnarliðið síðastliðin þrjátíu ár. Hann er ekki sáttur með framferði Bandaríkjahers. „Mér finnst þetta vera frekar niður- drepandi. Bandaríkjaher er ekki að koma vel fram við starfsfólkið sitt. Fólki er gert skylt að hanga þarna fram á síðasta dag án verkefna og án verkfæra. Við höngum bara þarna yfir engu og horfum út 1 loftið,“ segir Jóhannes. „Sumir eru ekki að trúa því að það sé að missa vinnuna. Það er fólk þarna sem hefur starfað í 30-40 á vellinum og ansi erfitt fyrir það að þurfa skyndilega að skipta um vinnu. Áð sjálfsögðu átti að veita fólki starfslokasamninga." Bæjarstjóri Reykjanesbæjar veltir fram þeirri spurningu hvort að þeir sem séu að vinna af sér uppsagnar- frestinn hafi ekki áhyggjur af gangi mála útfrá því hversu rólegt er að gera á vinnumiðluninni. Auðvitað er það sjónarmið út af fyrir sig hvort fólk vilji að missa af þeim tekjum sem bjóð- ast í því að vinna af sér uppsagnarfrest- inn en hefði ekki verið snyrtilegra að greiða fólki út þá upphæð og gefa fólki á meðan tækifæri að leita sér að nýjum atvinnutækifærum. Gera má ráð fyrir því að ástandið sé niðurdrepandi fyrir það fólk sem missir þarna atvinnu sína eftir að hafa unnið sig upp hjá hernum i marga áratugi, sótt fjölda námskeiða og jafnframt hækkað sig í launum. Það er með ólíkindum að því starfsfólki sé ekki sýnd meiri virðing af fyrrum atvinnu- rekendum sínum en v k svo að ekki komi til ÍÉ greina að gera starfs- ■ lokasamninga og 1-S ekki nóg með það VlrÍlife ^ þaff fólkið að hanga í vinnunni án nokkurra verk- efna eða verk- færa því það er búið að tæma skrifstofur þess og fjarlægja atvinnutæki.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.