blaðið - 09.09.2006, Page 1
HELGIN
» síða 40
■ IPROTTIR
Sex liö geta enn fallið úr
efstu deild og Eyjamenn
eru í mestri fallhættu
| SlÐUR 38
■ FOLK
Spessi opnaöi ljósmynda-
sýningu sem varð til
næstum því fyrir tilviljun
I SlÐA 18
202. tölublað 2. árgangur
laugardagur
9. september 2006
Metall til
Þýskalands
„Austur-Evrópulöndin eru
mjög blóöþyrst
þungarokkslönd
og svo er Þýskaland
náttúrlega konungs-
ríki þungarokksins,“
segir
Addi í
Sólstöfum.
Hljómsveitin
verður eitt aöal-
númeranna á þýskri
þungarokkshátíð.
FRÉTTIR » síða 10
FRÉTTIR » síða 8
VEÐUR
» siða 2
ISAKAMAL
» síða 28
» siða 42
» siða 4
FRETTIR
VIÐTAL
Sakamal
Rigning
Suðvestan 5-10 metrará
sekúndu, víða rigning en
bjartviðri austanlands. Hiti
á bilinu 8 til 15 stig, hlýjast
austanlands.
Spjall á hádegisbar
Hótels Borgar varð
kveikjan að innbroti á
heimili á Seltjarnarnesi
þar sem okrari var
sagður búa.
Æskudýrkunin
orgar á mann
„Það er mikil lenska hér á landi að tala
alltaf við þetta svokallaða fræga fólk.
Hins vegar finnst mér mun skemmti-
legra að tala við „venjulegt" fólk með
reynslu af lífinu og með aðra sýn á
samfélagið en gengur og gerist. Þá
líður mér vel,“ segir Rósa Björk Brynj-
ólfsdóttir fréttamaður. „Auðvitað finnur
maður fyrir þeirri kröfu að fjölmiðla-
konur þurfi að vera sætar og æsku-
dýrkunin orgar oft á mann. Til dæmis
má spyrja hvar allar miðaldra konur í
íslensku sjónvarpi séu. Þær finnast vart
og ég sakna fleiri kvenna með áratuga-
reynslu í fjölmiðlum.“
Afnotagjöldin hækka
Ríkisstjórnin ákvað í gær að hækka
afnotagjöldin af Ríkisútvarpinu
um átta prósent frá og með næstu
mánaðamótum.
Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra, segir fyrir
hönd menntamálráðherra að ekki hafi
þótt ástæða til að koma til móts við
kröfur RÚV að fullu, sem voru sextán
prósenta hækkun. „Ríkisstjórnin er að
draga úr þenslu og því ekki eðlilegt
að hún gangi fram fyrir skjöldu með
tveggja stafa hækkunum á þjónustu,”
segir Steingrimur.
„Afnotagjöldin hafa ekki hækkað frá
því í maí 2004 og því var kominn tími
á hækkun. Frá síðustu hækkun eru
verðlagsbreytingar samkvæmt vísitölu
13,8 prósent og því er þessi hækkun
talsvert undir því," segir Steingrímur.
Með breytingunum hækkar framlag
ríkisins til Ríkisútvarpsins um rúmar
197 milljónir en framlagið nam tæpum
2,5 milljörðum í fyrra.
Gleymi deginum aldrei
Háhýsin við Engihjalla hristust gríðar-
lega og fólk var í mikilli hættu þegar
vindstrengirnir mögnuðust við húsin
svo ekkert varð við ráðið í janúar 1981.
„Við bókstaflega horfðum á bíla fjúka
yfir aðra bíla. Einn bíll hreinlega lyftist
upp og fauk nokkrar bíllengdir,” segir
Hákon Hákonarson, sem þá bjó í Engi-
hjallanum. (búum var mjög brugðið og
flýðu úr íbúðum sínum inn i stigaganga
í miðju húsinu af ótta við að rúðurnar
brotnuðu. Vindstrengir geta magnast
mjög við háhýsi og dæmi eru um að
háhýsi hafi ekki verið byggð nægilega
traust fyrir íslenskar aðstæður.
Úr örbirgö til nútímans
Roman Abramovich, eigandi knatt-
spyrnuliðsins Chelsea, stýrir héraðinu
Tsjúkotka í Rússlandi.
Abramovich hefur aldrei sagt ástæðuna
fyrir því af hverju hann fékk áhuga á
héraðinu en kenningar eru á lofti um
að hann hafi gert samkomulag við
Pútín. Fá landsvæði fanga hugtakið
útkjálki betur en Tsjúkotka-ríki sem
er í norðausturhluta Síberíu. Þegar
Abramovich kom þar fyrst var aðeins
hægt að kaup salt, edik og skordýra-
eitur. I höfuðborginni er nú að finna
stórmarkað, stórt sjúkrahús, veitinga-
staði og hótel.
Eins og gömul dísilvél
Það getur tekið tíma að
koma sér í gang á haustin
þegar öll verkefnin hlaðast
upp segir Örn Árnason.