blaðið - 09.09.2006, Qupperneq 39
blaöiö
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2006 3 9
Chelsea veröur auðveld bráð
Ronaldinho hefur látið hafa eftir sér að Chelsea verði auðveld bráð fyrir
Barcelona, en liðin eru saman i riðli i meistaradeildinni. „Flestir segja að
Chelsea verði okkur erfiðastir en þeir verða auðveld bráð,” sagði besti knatt-
spyrnumaður heims. „Ballack, Shevchenko og Ashley Cole þurfa meiri tíma
til að aðlagast liðinu. Ég hef mestar áhyggjur af Werder Bremen.”
. A
Skeytin inn
Pedro Mendes, leikmaður
Portsmouth, íhugaði alvar-
lega að hætta knattspyrnu-
iðkun eftir
að Ben
Thatcher
gaf honum
harkalegt
olnbogaskot
í leik Port-
smouth og
Manchester
City 23. ág-
úst síðastliðinn. „Svona hlutir
geta gerst úti á götu en ekki í
fótboltaleik,” sagði Mendes sem
komst ekki til meðvitundar
fyrr en hann komst á sjúkrahús.
„Eg ræddi það alvarlega við
konuna mína að hætta að spila
fótbolta.” Thatcher fer fyrir
dómstól enska knattspyrnusam-
bandsins 12. september vegna
málsins en hann hefur þegar
verið sektaður um 120.000
pund og settur í sex leikja bann
af forráðamönnum Manchester
City.
„ 'n' .4 %
Ryan Giggsliefúr verið
valinn leikmaður ágúst-
mánaðar í ensku úrvals-
deildinni,
en hann
hefur aldrei
verið valinn
leikmaður
mánaðarins
þau 16 ár
sem hann
hefur leikið
í úrvalsdeild-
inni. Alex Ferguson var valinn
knattspyrnustjóri mánaðarins
en Manchester United hefur
unnið alla þrjá leiki sína í deild-
inni og skorað í þeim tíu mörk.
Alan Smith gáf það út
fyrr í vikunni að hann
væri orðinn leikhæfur og
tilbúinn að
spila gegn
Tottenham
á mánu-
daginn,
en Smith
hefur ekki
leikið síðan
í febrúar á
þessu ári
er hann fótbrotnaði illa í leik
gegn Liverpool. Alex Ferguson
sagði við fjölmiðla í gær að
Smith ætti enn nokkuð i land
með að ná leikformi. „Alan er
svo ákafur og metnaðargjarn
að hann myndi spila fótbrotinn
ef ég bæði hann um það,” sagði
Ferguson.
Rafa Benitez er í skýj-
unum eftir að stjórn
Liverpool ákvað að
ráðastíbygg-
ingu nýs
leikvangs.
„Þetta þýðir
að við
verðum sam-
keppnishæf-
ari við hin
stóru liðin
í deildinni;
Chelsea, Arsenal og Manchester
Utd. Það á eftir að muna okkur
miklu fjárhagslega að hafa
völl sem tekur 60.000 manns,”
sagði Benitez.
Liverpool yfirgefur Anfield Road:
Nýr leikvangur tilbúinn haustið 2009
Rick Parry, stjórnarformaður Liverpool, stað-
festi það endanlega í vikunni að allar samþykktir
lægju fyrir og að nýr leikvangur yrði byggður
aðeins 300 metrum frá núverandi leikvangi
félagsins.
Vangaveltur hafa verið uppi í nokkur ár um
að Liverpool hyggðist yfirgefa Anfield Road og
byggja nýjan leikvang. Anfield Road er orðinn
113 ára gamall og segja verkfræðingar það alltof
flókið mál að endurbyggja leikvanginn sem var
byggður árið 1884.
Borgaryfirvöld í Liverpool hafa gefið forráða-
mönnum félagsins frest til loka september til að
punga út þeim 180 milljónum punda sem þarf til
að hefja byggingu leikvangsins.
Hinn nýi leikvangur mun geta tekið við 60
þúsund áhorfendum en
Anfield Road tekur við 45
þúsund áhorfendum. Leik-
vangurinn mun taka með sér
Anfield-nafnið en.hinn óbyggði leikvangur hafði
gengið undir vinnuheitinu Stanley Park í nokkur
ár og áætla forráðamenn félagsins að fyrsti leikur-
inn verði spilaður í byrjun tímabils 2009.
BREIÐASLIK
Laugardalsvöllur
í dag kl. 16:30
B
H
BIKARINN
VISA-bikarinn 2006
.
Breiðablik -
Aogangseyrir:
Ef greitt er með VIS
Almennt verð fyrir 1
editkorti
Fritt fyrir 16 ara og yngri
Valur
800 kr.
.... 1.000 kr.